Segir að Bandaríkin muni taka olíu Írans
Donald Trump stigmagnar árásir á Íran og hótar að taka auðlindir landsmanna. Verðbólga og vextir hækka vegna átakanna.
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, hótaði því í dag að gera nýjar árásir á Íran og bætti við að bandarískar hersveitir myndu brátt leggja undir sig helstu olíuinnviði landsins.
Bandaríkjaher mun gera „MJÖG HARÐA ÁRÁS Á ÍRAN Í KVÖLD,“ sagði Trump í færslu á Truth Social.
„Einhvern tíma í ekki svo fjarlægri framtíð munum við taka yfir Kharg-eyju og aðra olíuinnviði og ná fullri stjórn á olíu- og gasmörkuðum þeirra, líkt og við höfum gert með Venesúela,“ bætti hann við.
Trump hefur ekki tekist að ljúka stríðsátökum við Íran, sem hófust með árás Bandaríkjanna og Ísraels á landið 28. febrúar síðastliðinn.
Afleiddar afleiðingar stríðsins eru verðhækkanir á olíu, áburði og fleiru. Í dag hækkaði Evrópski Seðlabankinn stýrivexti sína í fyrsta sinn síðan 2023, vegna verðbólgu sem hlýst af stríðinu.
Heildsöluverð í Bandaríkjunum hækkaði mikið í maí og mældist hæsta 12 mánaða hækkun í meira en þrjú ár. Ástæðan er hækkandi orkuverð vegna stríðsins gegn Íran sem hefur áhrif á stærsta hagkerfi heims.
Vísitala framleiðsluverðs (PPI) hækkaði um 6,5 prósent á 12 mánaða tímabili sem lauk í maí, að því er Hagstofa Bandaríkjanna (BLS) greindi frá í dag. Þetta er mesta hækkun síðan í nóvember 2022.
Milli mánaða hækkaði verð um 1,1 prósent, sem var meira en markaðsaðilar höfðu spáð.
Stærsta hagkerfi heims hefur glímt við þráláta verðbólgu frá Covid-19-faraldrinum og hafa einkennandi tollar Donalds Trumps Bandaríkjaforseta og stríð Bandaríkjanna og Ísraels gegn Íran aukið þrýsting á verðlag.
Íslendingar fara ekki varhluta af hækkunum, en tímabundin lækkun á virðisaukaskatti eldsneytis hefur dempað áhrifin. Engu að síður spáir Landsbankinn því að vísitala neysluverðs hækki um 0,81% í júní og verði verðbólga 5,1%, sem leiðir til þess að forsendur kjarasamninga bresta í ágúst.