Seðlabanki Rússlands hefur lækkað stýrivexti um hálft prósentustig, úr 15 af hundraði niður í 14,5.
Tilkynning þess efnis barst í morgun, fáeinum dögum eftir að forsetinn Vladimír Pútín sagði að dregið hefði úr hagvexti í landinu.
Seðlabankinn kvaðst í tilkynningu óttast að verðbólga kunni að aukast verulega á næstunni. Hagvöxtur jókst aðeins um eitt prósent á síðasta ári og stjórnvöld búast við litlum sem engum vexti á þessu ári.