Samtök fyrir heimilislausa notuð í söfnun vegna meiðyrðamáls Margrétar
Reikningur félagasamtaka sem stofnuð voru til að aðstoða heimilislausa er notaður til að safna fé vegna málskostnaðar Margrétar Friðriksdóttur í meiðyrðamáli héraðsdómara sem hún kallaði „lausláta mellu“.
Margrét Friðriksdóttir óskar á samfélagsmiðlum og á vefnum Fréttin.is sem hún ritstýrir eftir fjárframlögum til að standa straum af málskostnaði í meiðyrðarmáli sem hún tapaði.
Framlögin vill hún fá greidd inn á reikning Náungans - hjálparsamtaka, sem stofnuð voru árið 2017 og er tilgangur þeirra skráður sem „samhjálp og aðstoð fyrir heimilislausa á Íslandi“.
Margrét var nýverið dæmd í Héraðsdómi Reykjavíkur til að greiða 200 þúsund króna sekt í ríkissjóð fyrir ummæli sín um Barböru Björnsdóttur héraðsdómara. Hún hafði kallað Barböru „lausláta mellu“ eftir að Barbara hafði dæmt henni í óvil í meiðyrðamáli.
Málið fjallaði um meintar hótanir Margrétar í garð Semu Erlu Serdaroglu, stofnanda Solaris samtakanna, en dómnum sem Barbara felldi var áfrýjað til Landsréttar sem snéri honum við og sýknaði Margréti.
„Ég hef verið hvött til að setja af stað söfnun og geri ég það því hér með,“ skrifar Margrét í opnu bréfi á Fréttin.is og birtir …