Samfylkingin mælist aftur stærsti flokkurinn á Alþingi í nýrri könnun Maskínu sem gerð var í ágúst. Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna þriggja er 42,9% og breytist lítið milli kannana.
Vísir greinir frá.
Í könnuninni mælist Samfylkingin með 26,2% fylgi og bætir þar með við sig 1,8% frá Maskínukönnun júlímánaðar. Fast á hæla Samfylkingarinnar mælist Sjálfstæðisflokkurinn með 25,1%. Þar á eftir mælist Miðflokkurinn með 12,7% fylgi og því næst Viðreisn með 11,5%.
Framsóknarflokkurinn mælist með 7,8% fylgi og Flokkur fólksins með 5,2%. Þrír flokkar mælast með undir 5% fylgi en það eru Vinstri græn með 4,2%, Sósíalistaflokkurinn með 3,9% og Píratar með 3,5%.
Samanlagt fylgi ríkisstjórnarflokkanna lækkar um 0,1% milli mánaða, úr 43% í 42,9%. Flokkarnir fengu í 50,4% allra atkvæða í alþingiskosningum 2024.