Antonio Guterres, aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna, hvatti í gær til varanlegs vopnahlés á Gaza í aðdraganda þess að þrjú ár verða liðin frá árás Hamas-hreyfingarinnar á Ísrael 7. október næstkomandi.
„Það er kominn tími til að vopnahléð verði varanlegt. Það er tímabært að heimila umfangsmikla mannúðaraðstoð og að virða alþjóðalög,“ sagði Guterres í yfirlýsingu. Hann hvatti jafnframt til að fundin verði pólitísk leið til varanlegs friðar í heimshlutanum öllum.
Hann minntist þeirra rúmlega 1.200 Ísraela og erlendu ríkisborgara sem drepnir voru í árás Hamas og þeirra sem teknir voru gíslingu.
Hann lýsti árásinni sem viðbjóðslegri. Guterres krafðist þess jafnframt að gífurlegri þjáningu Palestínumanna á Gaza ljúki umsvifalaust. Þeir hefðu búið við hræðilegt mannfall, eyðileggingu og fólksflótta árum saman.
Heilbrigðisráðuneyti Hamas á Gaza segir yfir 74.200 hafa verið drepna í árásum Ísraelshers. Sameinuðu þjóðirnar segja þær tölur áreiðanlegar.
Guterres viðurkenndi að þótt vopnahléð sem hófst í október í fyrra hafi veitt nokkurn létti hafi það ekki enn leitt af sér öryggi, fullnægjandi mannúðaraðstoð eða trúverðugri leið til endurreisnar og friðar.
Ísrael stjórnar enn mestöllu Gazasvæðinu og neitar að kalla hermenn til baka fyrr en Hamas hafa afvopnast. Hamas hafa hins vegar talað fyrir stigvaxandi afvopnun fremur en að hreyfingin láti allt vopnabúr sitt af hendi umsvifalaust og einhliða.