Samfélagsrýnirinn Björn Birgisson sakar Vilhjálm Birgisson, formann Verkalýðsfélags Akraness, og Sólveigu Önnu Jónsdóttir, formann Eflingar, um svik við félagsmenn sína í færslu á Facebook í dag. Þessum ásökunum svaraði Vilhjálmur fullum hálsi en Björn segist þó standa við hvert orð.Ásakanir Björns varða neikvæða afstöðu þeirra Vilhjálms og Sólveigar til aðildarviðræðna við Evrópusambandið sem kosið verður um í þjóðaratkvæðagreiðslu síðar í þessum mánuði. Bæði hafa þau lýst því yfir opinberlega að þau muni kjósa nei.
Samfélagsrýnir sakar verkalýðsleiðtoga um svik og er svarað fullum hálsi - „Grímulaust að svíkja sitt fólk“