Umfangsmikið kynferðisofbeldi sem beitt er sem vopni í borgarastyrjöldinni í Súdan hefur valdið gríðarlegum geðheilbrigðisvanda að mati Alþjóðaheilbrigðisstofnunarinnar og hjálparsamtakanna Læknar án landamæra.
Þau síðarnefndu sögðu í liðnum mánuði að vel á fjórða þúsund fórnarlömb kynferðisofbeldis, langflest konur og stúlkur, hefðu leitað aðstoðar þeirra í Norður- og Suður-Darfúr milli janúar 2024 og nóvember 2025.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur ofbeldið enn umfangsmeira en þær tölur benda til enda sé súdönskum konum erfitt að leita læknishjálpar því þær þurfi oft að fara um langan veg, fátt sé um sérhæft starfsfólk, öryggi sé lítið auk þeirrar smánar sem þykir fylgja því að hafa verið nauðgað.
Því sé afar krefjandi fyrir konur og stúlkur að leita sér aðstoðar, þótt brýnt sé að gera það hið fyrsta. Líklegast sé að átta til níu konur þjáist í þögn á móti hverri einni sem stígur fram, að mati Avni Amin, sem stjórnar þeirri deild heilbrigðisstofnunarinnar sem fjallar um kynbundið ofbeldi.
Ofbeldið sé nánast gegndarlaust, fjöldi kvenna hafi stytt sér aldur til að komast hjá nauðgun og Mannfjöldasjóður Sameinuðu þjóðanna segir brýnt að veita andlegan stuðning.
Kynbundið ofbeldi valdi ekki aðeins fórnarlömbum þjáningum heldur einnig þeim sem horfi upp á það og jafnvel komandi kynslóðum. Blóðug átök Súdanshers og RSF-uppreisnarsveitanna hafa staðið í þrjú ár og valdið dauða tugþúsunda og stökkt minnst ellefu milljónum landsmanna á flótta.