Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur tvívegis heimsótt Brussel, höfuðborg Belgíu, það sem af er ári. Hefur hún heimsótt Washington, höfuðborg Bandaríkjanna, einu sinni á sama tímabili.
Þetta kemur fram í svari Þorgerðar Katrínar við fyrirspurn Diljár Mistar Einarsdóttur, þingmanns Sjálfstæðisflokksins, sem hljóðar svo: Hversu oft og í hvaða tilgangi hefur ráðherra ferðast eða hefur áform um að ferðast til annars vegar Brussel og hins vegar Washington á árinu 2026?
Fór tvisvar til Brussel
Í svari Þorgerðar kemur fram að fyrsta heimsóknin til Brussel hafi verið þann 11. febrúar síðastliðinn þar sem hún sótti varnarmálaráðherrafund NATO og átti samtal við Elbridge Colby, aðstoðarvarnarmálaráðherra Bandaríkjanna. Heim var haldið daginn eftir, 12. febrúar.
Þann 10. mars fór Þorgerður svo til Washington. Hún stoppaði stutt í bandarísku höfuðborginni og hélt á brott daginn eftir.
Þar átti hún fundi með sex embættismönnum: Andy Baker varaþjóðaröryggisráðgjafa, Elbridge Colby aðstoðarvarnarmálaráðherra, Jeff Goettman varautanríkisviðskiptaráðherra ásamt öldungadeildarþingmönnunum Jeanne Shaheen, Lisu Murkowski og Steve Daines.
Ræddi við Kaju Kallas
Síðar í marsmánuði lá leið Þorgerðar svo aftur til Brussel en í þetta skipti var aðeins um dagsferð að ræða að því er fram kemur í svarinu.
Átti hún þar fundi með Radmilu Shekerinska varaframkvæmdastjóra NATO auk þriggja embættismanna Evrópusambandsins: Maros Sefcovic, framkvæmdastjóra hjá ESB sem er ábyrgur fyrir utanríkisviðskiptum og samskiptum við Ísland, Mörtu Kos, framkvæmdastjóra stækkunarmála ESB, og Kaju Kallas, utanríkismálastjóra ESB.
Þá undirritaði hún samstarfsyfirlýsingu Íslands og ESB um öryggis- og varnarmál með utanríkismálastjóra ESB.
Ræddi við Rubio í tvígang
Auk ofangreindra ferða átti Þorgerður samtal við Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í Helsingborg í Svíþjóð 22. maí. Þau áttu svo fund síðar sama dag í ranni norðurskautsríkjanna sjö innan Atlantshafsbandalagsins.
Þorgerður stefnir á að heimsækja Brussel í þrígang það sem eftir lifir árs, á varnarmálaráðherrafundi Atlantshafsbandalagsins í júní, utanríkisráðherrafundi bandalagsins í desember og EES-ráðsfundi í nóvember.
Gert er ráð fyrir að hún heimsæki Washington í október þar sem hún leiðir viðskiptasendinefnd á vegum Amerísk-íslenska viðskiptaráðsins til Minneapolis. Þá er gert ráð fyrir að hún heimsæki borgina á nýjan leik og eigi fundi með þarlendum ráðamönnum á seinni helmingi ársins.