„Við vorum bjartsýn frá upphafi og trúðum því að upplifunin, sem við vorum að skapa, myndi vekja athygli. Um leið fylgdi því ákveðin óvissa að opna nýjan áfangastað í október, þegar veturinn var fram undan og ferðamannastraumur almennt minni. Fyrstu vikurnar fóru hins vegar algjörlega fram úr væntingum og gáfu okkur mikinn meðbyr,“ segir Bryndís Björnsdóttir, framkvæmdastjóri Laugaráss lagoon.
Mikill og góður gangur hefur verið í starfsemi þessa glæsilega baðlóns frá því það var opnað í október á síðasta ári. Alls hafa um 88 þúsund gestir heimsótt Laugarás lagoon frá því í október.
Áætlað er að um 75% gesta frá opnun hafi verið Íslendingar og um 25% erlendir ferðamenn. Stærstu erlendu markaðirnir hingað til hafa verið Bandaríkin, Bretland, Frakkland og Kanada.
Mikill velvilji heimamanna
Að sögn Bryndísar standa vonir til þess að erlendum gestum fjölgi á komandi sumarmánuðum. Kynningarstarf á erlendum mörkuðum tekur tíma og margir ferðaskipuleggjendur ákveða framboð sitt með löngum fyrirvara, en fyrirtækið sér þegar merki um aukinn áhuga frá lykilmörkuðum sínum.
Flestir gestir leggja leið sína í lónið á laugardögum, sem er ekki að undra, enda er lónið á vinsælum og fjölförnum slóðum, bæði meðal erlendra ferðamanna en ekki síður Íslendinga og sumarbústaðabyggða þeirra. Þrátt fyrir það hefur áhugi fólks í sveitinni í kring skipt miklu máli að sögn Bryndísar. „Það sem hefur kannski glatt okkur mest eru viðbrögð heimamanna. Við finnum fyrir stolti gagnvart verkefninu í nærsamfélaginu og það skiptir okkur miklu máli. Svona uppbygging verður aðeins farsæl ef hún á sér stað í góðu samtali við fólkið sem býr á svæðinu.
Við höfum fundið fyrir miklum velvilja og viljum halda áfram að byggja upp öflugt fyrirtæki sem hefur jákvæð áhrif á samfélagið til framtíðar,“ segir Bryndís. Ekki skemmir fyrir að á skömmum tíma hefur Laugarás lagoon orðið einn af stærri vinnustöðum svæðisins. Í nýliðnum maí störfuðu um 80 manns hjá fyrirtækinu í um 62 stöðugildum og á starfsfólki eftir að fjölga enn frekar yfir sumarmánuðina. Meirihluti starfsfólksins býr í nærsveitum og telur Bryndís að starfsemin hafi skapað fjölda nýrra starfa á svæðinu.
Lónið og glæsileg hönnun þess hefur sömuleiðis vakið athygli á alþjóðavettvangi. Áfangastaðurinn hefur verið til umfjöllunar í fjölmörgum stórum erlendum miðlum, þar á meðal Forbes, Business Insider, Condé Nast Traveler, Travel + Leisure, ELLE, Women's Health, Dezeen og þýska tímaritinu Feinschmecker.
Tilnefnt til virtra verðlauna
Þá hefur Laugarás lagoon jafnframt verið tilnefnt til Condé Nast Traveler Readers’ Choice Awards, einna virtustu viðurkenninga ferðaiðnaðarins þar sem lesendur velja eftirsóttustu áfangastaði heims.
Nýverið var sett upp hestagerði við baðlónið enda liggur vinsæll reiðstígur meðfram Hvítá og niður að lóninu. Fyrstu reiðhestarnir heimsóttu svæðið um síðustu helgi og segir Bryndís að þeir hafi vakið mikla athygli baðgesta sem nutu þess að sjá hestana á meðan þeir slökuðu á í heitu vatninu.
Veitingastaðurinn vinsæll
Ekki er hægt að sleppa því í umfjöllun um Laugarás lagoon að minnast á veitingastaðinn Ylju sem hinn kunni kokkur, Gísli Matthías Auðunsson, fer fyrir. Þar er áhersla lögð á íslenskt árstíðabundið hráefni sem framleitt er í nærumhverfinu. Margir gestir fá sér annað hvort kvöldverð eða hádegisverð á staðnum og nýjungar á matseðli munu örugglega höfða til þeirra. Nýr sumarseðill hefur nú tekið við þar sem áfram er byggt á því besta sem fæst hverju sinni frá bændum og framleiðendum í héraðinu, meðal annars kúrbít sem ræktaður er í Laugarási. Nýjasti rétturinn á seðlinum, þorskur í bréfi, hefur að sögn Bryndísar fengið sérstaklega góðar viðtökur.

