Alexander Lúkasjenkó, leiðtogi Belarús, segir enga hernaðarógn stafa frá landinu í garð Úkraínumanna.
„Úkraína þarf ekki að óttast hernaðaraðgerðir af hálfu Belarús og enn síður af minni hálfu,“ sagði Lúkasjenkó í viðtali á sjónvarpsstöðinni Al Arabiya.
Hann viðurkenndi að með þessari yfirlýsingu vildi hann bregðast við yfirlýsingum Úkraínuhers um að hann hefði um fimm hundruð skotmörk í Belarús í sigtinu. Lúkasjenkó bað jafnframt Volodymyr Zelensky Úkraínuforseta afsökunar á öllum harðneskjulegum orðum sem hann hefði látið falla í hans garð.