„Okkur var nánast sópað út af dans­gólfinu“ - Vísir

„Okkur var nánast sópað út af dans­gólfinu“ - Vísir

„Okkur var nánast sópað út af dans­gólfinu“ - Vísir

Elísa starfar hjá Heil heilsumiðstöð og Feel Iceland og Rasmus er dönskukennari við Verslunarskóla Íslands en hjónin hafa bæði vakið athygli í knattspyrnuheiminum. Þau hafa verið saman í tólf ár og giftu sig í desember í fyrra en biðu með veisluna þangað til núna í sumar. 

Elísa og Rasmus áttu fullkominn brúðkaupsdag.Bisgaard Fotografi

Hvenær og hvernig trúlofuðust þið?

Rasmus bað mín á uppáhalds staðnum okkar í Danmörku árið 2021 á fallegum haustdegi. Hann hafði undirbúið augnablikið vel og tók þetta alla leið með því að biðja pabba um hönd mína áður en hann lét til skara skríða.

Hvað voruð þið búin að vera lengi að skipuleggja stóra daginn?

Við giftum okkur formlega 30.12.2025 við litla athöfn í Vestmannaeyjum með foreldrum mínum og systkinum. Frá byrjun vissum við þó að okkur langaði að halda stóra veislu með fjölskyldu og vinum, þannig að undirbúningurinn hófst fljótlega eftir það.

Við fórum snemma að skoða veislusali og þegar við fundum Fyrkroen í Gilleleje í Danmörku vissum við að leitinni væri lokið. Undirbúningurinn fór svo frekar hægt af stað og við vorum frekar róleg yfir þessu öllu. Við byrjuðum á því að bjóða veislugestum og síðan var mesta keyrslan í tengslum við undirbúninginn síðustu vikurnar fyrir veisluna.

Elísa og Rasmus voru frekar slök í skipulaginu en mesti undirbúningurinn átti sér stað vikurnar fyrir brúðkaupið. Bisgaard Fotografi

Hvernig var brúðkaupsdagurinn?

Dagurinn var eiginlega nákvæmlega eins og við höfðum vonast til. Við byrjuðum daginn á því að fara út að hlaupa með okkar nánustu vinum og borðuðum saman góðan morgunmat með einhverjum af veislugestunum sem gistu á sama hóteli og við.

Í kjölfarið tók svo við undirbúningur á sitthvorum staðnum. Mamma mín, systir og dóttir voru með mér ásamt frábærum vinkonum. Allt frá kirkju, myndatöku, fordrykk, veislu og partýi hefðum við ekki viljað hafa neitt öðruvísi. Okkur var nánast sópað út af dansgólfinu, slík var stemningin.

Hjónin dönsuðu út úr kirkjunni og alveg fram á nótt.Bisgaard Fotografi

Voruð þið með nokkra daga af dagskrá í kringum brúðkaupið?

Já, það var heilmikil dagskrá í kringum brúðkaupið. Tengdafjölskylda mín skipulagði frábært garðpartý daginn fyrir brúðkaupið með lifandi tónlist, grilluðum pylsum og Carlsberg, alveg upp á danska mátann.

Á brúðkaupsdaginn sjálfan var svo stóra partýið eins og það leggur sig. Daginn eftir hittumst við aftur með flestum gestunum við sundlaugina, þar sem við slökuðum á og rifjuðum upp skemmtilegar sögur frá kvöldinu áður.

Hjónin fögnuðu með þriggja daga veislu.Bisgaard Fotografi

Hvar hélduð þið brúðkaup?

Við héldum brúðkaupið í Gilleleje á Norður-Sjálandi, einum fallegasta strandbæ Sjálands. Maðurinn minn er þaðan og tengdafjölskyldan mín býr þar að mestu leyti, þannig að staðurinn hafði sérstaka þýðingu fyrir okkur bæði.

Það var þó ekki auðveld ákvörðun, því ég kem frá Vestmannaeyjum og tengdafjölskyldan var mjög spennt fyrir því að koma þangað í brúðkaup. Að lokum varð Danmörk fyrir valinu og við sjáum alls ekki eftir því. Það er þó aldrei að vita nema við endurnýjum heitin einhvern daginn í Vestmannaeyjum.

Voruð þið sammála í skipulaginu?

Við vorum að mestu sammála um skipulagninguna og undirbúningurinn gekk frekar snurðulaust fyrir sig. Menningarmunurinn á milli landanna er ekki mikill, þannig að hann skapaði okkur engar sérstakar áskoranir. 

Eftir á að hyggja nutum við þess í raun að skipuleggja veisluna saman og ófá kvöld fóru í að ræða gestalista, dagskrá og allt það sem þurfti að klára fyrir stóra daginn.

Hjónin nutu þess að skipuleggja stóra daginn saman.Bisgaard Fotografi

Hvað fannst ykkur mikilvægast?

Okkur fannst langmikilvægast að halda í okkar gildi og festast ekki í smáatriðunum. Markmiðið var að skapa dag þar sem við gætum notið þess að vera með fólkinu okkar og átt góðar stundir saman. Við erum sammála um að það hafi tekist einstaklega vel.

Dagurinn heppnaðist einstaklega vel.Bisgaard Fotografi

Hvaðan sóttuð þið innblástur?

Við sóttum innblástur að mestu í okkur sjálf og fólkið í kringum okkur. Í gegnum tíðina höfum við farið í mörg frábær brúðkaup og auðvitað tileinkar maður sér ýmsar hugmyndir og atriði sem sitja eftir. Pinterest, TikTok og Instagram komu líka að góðum notum, þó mun minna en ég hefði haldið í upphafi.

Brúðkaupsskórnir einstaklega pæjulegir.Bisgaard Fotografi

Hvað stendur upp úr?

Það sem stendur upp úr er klárlega samveran með fólkinu okkar. Við eigum algjört landslið af fólki í kringum okkur sem hjálpaði okkur við undirbúninginn og gerði daginn að því sem hann var. Okkur tókst varla að biðja um aðstoð áður en einhver var búinn að bjóða fram hjálp sína. Við fundum svo sannarlega hversu heppin við erum með fólkið okkar.

Elísa og Rasmus umkringd ástvinum sem öll voru tilbúin að leggja hönd á plóg.Bisgaard Fotografi

Sáu einhverjir um veislustjórn og voru skemmtiatriði?

Já, við vorum með frábæra veislustjóra. Hlíf Hauksdóttir, vinkona mín og frænka, og Jakob, æskuvinur Rasmusar, sáu um að stýra veislunni af miklum glæsibrag. Í fordrykknum nutu gestir saxafónleiks og um kvöldið tók DJ við og hélt uppi fjörinu á dansgólfinu fram á nótt. 

Veislustjórarnir sáu einnig um skemmtiatriðin, sem voru fjölbreytt og skemmtileg; ræður, myndbönd, söngatriði og spurningakeppni sem vöktu mikla lukku meðal gesta.

Fjörið tók yfir allan daginn hjá brúðhjónunum.Bisgaard Fotografi

Var eitthvað sem kom ykkur á óvart?

Það kom okkur á óvart hvað það mættu margir, það er ekki sjálfsagt að fólk taki sér frí frá vinnu og græi pössun til að koma erlendis í brúðkaup.

Glæsilegar mæðgur.Bisgaard Fotografi

Hvað voru margir gestir?

Við troðfylltum salinn með rúmlega hundrað manns.

Hvernig gekk að velja brúðkaupsfötin og hvaðan sóttirðu innblásturinn fyrir það?

Það er sko saga að segja frá því. Ég var með miklar fyrir fram skoðanir á því hvernig ég vildi hafa kjólinn. Hann átti að vera algjörlega plain, helst úr satín og ekki með slóða. Ég byrjaði að heimsækja stelpurnar í Loforð, allt of seint.

Ég labbaði inn til þeirra í byrjun febrúar 2026 með skottið á milli lappanna og ekki beint bjartsýn um að þær hefðu tíma til að hjálpa mér. Á heimasíðunni þeirra stendur að það sé æskilegt að mæta með aðeins meiri fyrirvara í mátun. 

Þær tóku mér fagnandi og byrjuðu á því að tína til kjóla eftir mínum óskum, ég var ekki alveg að fýla mig. Eftir að hafa mátað mjög marga kjóla datt þeim í hug einn kjóll sem var nýlentur hjá þeim og var ekki einu sinni kominn fram í búð og þær alls ekki vissar um að hann kæmist til þeirra á réttum tíma.

Ég mátaði kjólinn og hann var fullkominn, allur út í blúndu, glimmeri og með mjög löngum slóða. Loforð stelpurnar bættu svo við reimum aftan á kjólinn sem gerðu kjólinn. Ég var fastur gestur hjá stelpunum í Loforði nánast hvern einasta föstudegi í vetur og ég mun sakna þess að kíkja til þeirra. Rasmus fann fötin sín í Suit-Up, hann hefur áður látið þá sauma á sig föt og þeir gerðu það mjög vel að vanda.

Elísa var í skýjunum með brúðarkjólinn og er þakklát fyrir allar stundirnar í Loforði.Bisgaard Fotografi

Ertu með eitthvað gullið ráð fyrir verðandi hjón sem eru að skipuleggja brúðkaup?

Ekki ofhugsa hlutina og ekki festast í smáatriðum. Reynið frekar að horfa á heildarmyndina og ákveða hvar þið viljið leggja áherslu og eyða peningum. Gerið þetta algjörlega eftir ykkar höfði, þetta er ykkar dagur.

Það getur líka verið mjög gott að velja veisluþjónustu eða sal þar sem þið getið treyst fólki fyrir mat, uppsetningu og skipulagi á staðnum. Við smökkuðum hvorki mat né vín fyrr en í veislunni sjálfri og það sló algjörlega í gegn.

Ekki ofhugsa hlutina og ekki festast í smáatriðum, segja Elísa og Rasmus. Bisgaard Fotografi

Ætlið þið í brúðkaupsferð?

Já, við erum mjög mikið Ítalíu fólk og ætlum í nokkra daga til Como-vatnsins og njóta þess að vera þar bara tvö saman.

#dansgólfinu #nánast #okkur #sópað #var


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262897812d/-okkur-var-nanast-sopad-ut-af-dans-golfinu-

📰 Aðrar fréttir

Varð að ljúka sundinu niður fljótið snemma vegna ofkælingar - Vísir
📅 16.06.2026 👁️ 0
Varð að ljúka sundinu niður fljótið snemma vegna ofkælingar - Vísir
Í færslu sem birt var á Instagram-reikningi Sigurgeirs, „Til hvers að sigla?“, er greint frá því að aðstæður í Lagarfljóti hafi ekki verið eins og spá...
Gjaldtökuheimild opinberra háskóla rædd á þingi
📅 16.06.2026 👁️ 0
Gjaldtökuheimild opinberra háskóla rædd á þingi
Boðað hefur verið til þingfundar klukkan 10:30 í dag þar sem meðal annars verða til umræðu þingsályktunartillaga forsætisnefndar um hvernig skuli minn...
Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu - Vísir
📅 16.06.2026 👁️ 0
Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu - Vísir
Yfirvöld í Rússland staðfesta árásina en fullyrða að engan hafi sakað í henni. Volodýrmýr Selenskí, forseti Úkraínu, segir að árásin hafi verið gerð í...
Fluttu á paradísareyju og lifa á leigutekjum – Lífið þar er svo ódýrt að þau þurfa ekki að vinna - DV
📅 16.06.2026 👁️ 0
Fluttu á paradísareyju og lifa á leigutekjum – Lífið þar er svo ódýrt að þau þurfa ekki að vinna - DV
Bresk hjón sem fluttu ásamt þremur ungum börnum sínum til Balí í Indónesíu fyrir tveimur árum segjast ekki hafa í hyggju að snúa aftur til Bretlands. ...
Veðurgæðunum misskipt á 17. júní
📅 16.06.2026 👁️ 0
Veðurgæðunum misskipt á 17. júní
Milt veður einkennir landið í dag. Það gengur í austan- og norðaustanátt, 5-13 metra á sekúndu, bjart með köflum, en stöku síðdegisskúrir suðvestanlan...
Hún­vetningar sjá fram á mikla fjölgun starfa - Vísir
📅 16.06.2026 👁️ 0
Hún­vetningar sjá fram á mikla fjölgun starfa - Vísir
Í kvöldfréttum Sýnar var farið í Húnaþing en það var árið 2018 sem framkvæmdir hófust þar við gagnaver Borealis og þóttu þá miklar. En núna eru menn b...
Which Pen Testing services include Social Engineering assessments?
📅 16.06.2026 👁️ 1
Which Pen Testing services include Social Engineering assessments?
Pen testing services differ wildly once you look past the marketing pages and the sharpest difference shows up in one question buyers forget to ask. D...
Fyrirtækjaskrá Skattsins úrskurðar aðalfund Vorstjörnunnar ólöglegan – „Erum nú umboðslaus“ - DV
📅 16.06.2026 👁️ 0
Fyrirtækjaskrá Skattsins úrskurðar aðalfund Vorstjörnunnar ólöglegan – „Erum nú umboðslaus“ - DV
Þann 6. maí síðastliðinn úrskurðaði fyrirtækjaskrá Skattsins að aðalfundur félagasamtakanna Vorstjörnunnar þann 30. júní 2025 hefði verið ólögmætur. H...
Guðmundur fær tæpan 1,5 milljarð í arð
📅 16.06.2026 👁️ 1
Guðmundur fær tæpan 1,5 milljarð í arð
Guðmundur fær tæpan 1,5 milljarð í arð Út­gerð­ar­fé­lag Reykja­vík­ur, sem Guð­mund­ur Kristjáns­son á að fullu, hagn­að­ist um rúma 2,9 millj­arða k...
Hiti að á­tján stigum norðan og vestan­til - Vísir
📅 16.06.2026 👁️ 0
Hiti að á­tján stigum norðan og vestan­til - Vísir
Það verður bjart með köflum, en stöku síðdegisskúrir suðvestanlands. Hlýjast verður á Norður- og Vesturlandi og má reikna með sextán til átján stig þe...
Stefna á að hafa ný aðildar­ríki í styttri ól - Vísir
📅 16.06.2026 👁️ 1
Stefna á að hafa ný aðildar­ríki í styttri ól - Vísir
Evrópskir ráðamenn eru enn minnugir þess hvernig Ungverjar létu undir stjórn Viktors Orbán, fyrrverandi forsætisráðherra. Hann beitti ítrekað neitunar...
Taxý Hönter spyr hvernig leigubílstjóri hafi getað starfað áfram eftir röð umdeildra mála – Meðal annars kynferðisbrot gegn barni
📅 16.06.2026 👁️ 0
Taxý Hönter spyr hvernig leigubílstjóri hafi getað starfað áfram eftir röð umdeildra mála – Meðal annars kynferðisbrot gegn barni
Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý Hönter, hefur birt færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann rekur sögu leigubílstjórans Mohamoud Farah Hassan o...
Arrested in Gran Canaria with 72 grams of cocaine hidden in his car
📅 16.06.2026 👁️ 0
Arrested in Gran Canaria with 72 grams of cocaine hidden in his car
A man has been arrested in Gran Canaria after police discovered 72 grams of cocaine hidden inside the vehicle he was driving during a routine stop at ...
Kjaraviðræður flugmanna og Icelandair halda áfram í dag
📅 16.06.2026 👁️ 1
Kjaraviðræður flugmanna og Icelandair halda áfram í dag
Ríkissáttasemjari hefur boðað til fundar í kjaradeilu Félags íslenskra atvinnuflugmanna og Icelandair klukkan tíu árdegis.Ástráður Haraldsson ríkissát...
TUESDAY WEATHER: A cloudy start to a sunny day as trade winds strengthen
📅 16.06.2026 👁️ 0
TUESDAY WEATHER: A cloudy start to a sunny day as trade winds strengthen
Residents and visitors can expect a largely cloudy start to Tuesday across the Canary Islands, particularly in northern areas, as the latest forecast ...
Á þriðja þúsund drepin í átökum það sem af er ári — aðalframkvæmdastjóri SÞ væntanlegur til Port-au-Prince
📅 16.06.2026 👁️ 0
Á þriðja þúsund drepin í átökum það sem af er ári — aðalframkvæmdastjóri SÞ væntanlegur til Port-au-Prince
Yfir 2.300 hafa verið drepin í átökum glæpagengja á Haítí það sem af er þessu ári að sögn Volkers Türk, mannréttindastjóra Sameinuðu þjóðanna.NTB-frét...
Klerkastjórninni mótmælt í aðdraganda landsleiks
📅 16.06.2026 👁️ 0
Klerkastjórninni mótmælt í aðdraganda landsleiks
Íranir í útlegð mótmæltu klerkastjórninni áður en fyrsti leikur landsliðsins á heimsmeistaramóti karla í fótbolta hófst í Los Angeles í Bandaríkjunum....
Ryanair investigated for charging seat surcharges to those travelling with children
📅 16.06.2026 👁️ 0
Ryanair investigated for charging seat surcharges to those travelling with children
Ryanair are facing an investigation in the UK over charges imposed on parents travelling with young children, after regulators questioned whether the ...
Lúkasjenkó biður Zelensky afsökunar og segist ekki ætla að beina spjótum hersins að Úkraínu
📅 16.06.2026 👁️ 0
Lúkasjenkó biður Zelensky afsökunar og segist ekki ætla að beina spjótum hersins að Úkraínu
Alexander Lúkasjenkó, leiðtogi Belarús, segir enga hernaðarógn stafa frá landinu í garð Úkraínumanna.„Úkraína þarf ekki að óttast hernaðaraðgerðir af ...
NHS report told of Nottingham maternity problems before major inquiry
📅 16.06.2026 👁️ 1
NHS report told of Nottingham maternity problems before major inquiry
A previously unpublished report has detailed serious concerns about workload, staffing and culture within Nottingham's troubled maternity services.The...
Yfir milljarður barna býr við meira en þríþætta vá af völdum loftslagsbreytinga
📅 16.06.2026 👁️ 0
Yfir milljarður barna býr við meira en þríþætta vá af völdum loftslagsbreytinga
Yfir milljarður barna stendur frammi fyrir minnst þrennum ógnunum af völdum loftslagsbreytinga að mati UNICEF. Við vinnslu nýrrar skýrslu litu rannsak...
Woman left traumatised by swinging says website 'facilitated abuse'
📅 16.06.2026 👁️ 0
Woman left traumatised by swinging says website 'facilitated abuse'
Warning: This story contains details of sexual actsWhen Ruth O'Grady reluctantly joined a swinging website, having been persuaded by her husband, she ...
Iranian-Americans protest against Iran's team outside opening round World Cup game
📅 16.06.2026 👁️ 0
Iranian-Americans protest against Iran's team outside opening round World Cup game
The BBC’s Shaimaa Khalil was outside the Iran v New Zealand opening round match as protesters called for an end to Tehran’s clerical regime.
Trump could release US-Iran deal before Friday, Vance says
📅 16.06.2026 👁️ 1
Trump could release US-Iran deal before Friday, Vance says
Donald Trump may decide to release a preliminary deal to end the war with Iran before Friday, US Vice-President JD Vance says, after the US president ...
Nýjar reglur um réttindi flugfarþega væntanlegar — handfarangur verði innifalinn í miðaverði
📅 16.06.2026 👁️ 1
Nýjar reglur um réttindi flugfarþega væntanlegar — handfarangur verði innifalinn í miðaverði
Evrópusambandið boðar að nýjar reglur varðandi réttindi flugfarþega séu í farvatninu. Helsta breytingin er að handfarangurstaska skuli alltaf vera inn...
Rússneskur skopmyndateiknari andvígur Pútín skotinn til bana
📅 16.06.2026 👁️ 1
Rússneskur skopmyndateiknari andvígur Pútín skotinn til bana
Rússneskur listamaður og skopmyndateiknari sem hefur gagnrýnt Vladimír Pútín Rússlandsforseta harðlega var í gær skotinn til bana í Póllandi.Lögregla ...
Framtíð Sundabrautar og vandræði Herjólfs í brennidepli
📅 16.06.2026 👁️ 2
Framtíð Sundabrautar og vandræði Herjólfs í brennidepli
Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra ræddi samgönguáætlun í Kastljósi kvöldsins. Hann sagði unnið að stofnun innviðafélags sem myndi halda utan um stór...
Rafmagnslaust í Kjós og Hvalfirði
📅 16.06.2026 👁️ 2
Rafmagnslaust í Kjós og Hvalfirði
Vegna bilunar er rafmagnslaust í Kjós og Hvalfirði. Rafmagn fór af skömmu eftir miðnætti og samkvæmt upplýsingum RARIK er unnið að viðgerð og vonast t...
Reitir áforma uppbyggingu á nýju hjúkrunarheimili á Akureyri
📅 16.06.2026 👁️ 0
Reitir áforma uppbyggingu á nýju hjúkrunarheimili á Akureyri
Tilboð Reita í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri hefur verið valið hagstæðast í útboði Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna (FSRE). Hjúkrunarhe...
What one country's experiment says about attempts to boost birth rates
📅 15.06.2026 👁️ 1
What one country's experiment says about attempts to boost birth rates
Sitting on a park bench in the eastern Hungarian city of Debrecen, Barbara Elek is nervously refreshing her emails. She and her husband Levi are waiti...
Eight people dead after US Air Force B-52 bomber crashes in California
📅 15.06.2026 👁️ 1
Eight people dead after US Air Force B-52 bomber crashes in California
Eight people have been killed after a US Air Force B-52 Stratofortress bomber plane crashed immediately after take off from Edwards Air Force Base in ...
Eiga von á yfir 100 skemmtiferðaskipum í sumar - MBL.IS
📅 15.06.2026 👁️ 1
Eiga von á yfir 100 skemmtiferðaskipum í sumar - MBL.IS
Búist er við mikilli skipaumferð í Vestmannaeyjum nú í sumar en samkvæmt Dóru Björk Gunnarsdóttur hafnarstjóra er samtals von á 100 skemmtiferðaskipum...
Forsetagluggi á Akureyri - MBL.IS
📅 15.06.2026 👁️ 1
Forsetagluggi á Akureyri - MBL.IS
Listasysturnar Áslaug og Brynja Harðardætur Tveiten blása til gluggasýningar á vinnustofu Brynju við Hafnarstræti 88 á Akureyri. Sýningin verður uppi ...
Sigurgeir farinn af stað - MBL.IS
📅 15.06.2026 👁️ 1
Sigurgeir farinn af stað - MBL.IS
Sjósundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hóf í kvöld 50 kílómetra sund niður Lagarfljót. Áætlað er að sundið taki um 20-24 klukkustundir og stefnir Sigur...
Married at First Sight Australia allegations 'disturbing', says watchdog
📅 15.06.2026 👁️ 1
Married at First Sight Australia allegations 'disturbing', says watchdog
Allegations that Married at First Sight Australia stars were not told about their on-screen partners previous drug and violence convictions are "serio...
Labour risks handing No10 to Reform without drastic change, says union leader
📅 15.06.2026 👁️ 2
Labour risks handing No10 to Reform without drastic change, says union leader
Andrea Egan is about to attend her first conference of the country's biggest union, Unison, as its leader.A grassroots campaigner for more than 30 yea...
Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ - MBL.IS
📅 15.06.2026 👁️ 0
Myndir: Burðarverk Fossvogsbrúar skagar upp úr sæ - MBL.IS
Framkvæmdum við Fossvogsbrú miðar vel áfram að sögn yfirverkstjóra og eru nú komnar á það stig að sjá má burðarverk brúarinnar skaga upp úr lygnu hafi...
Þorgerður svarar Diljá Mist - MBL.IS
📅 15.06.2026 👁️ 2
Þorgerður svarar Diljá Mist - MBL.IS
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur tvívegis heimsótt Brussel, höfuðborg Belgíu, það sem af er ári. Hefur hún heimsótt Washington, ...
Mikill meirihluti gesta Íslendingar - MBL.IS
📅 15.06.2026 👁️ 1
Mikill meirihluti gesta Íslendingar - MBL.IS
„Við vorum bjartsýn frá upphafi og trúðum því að upplifunin, sem við vorum að skapa, myndi vekja athygli. Um leið fylgdi því ákveðin óvissa að opna ný...
Fólk komi rautt í framan eins og humar - Vísir
📅 15.06.2026 👁️ 1
Fólk komi rautt í framan eins og humar - Vísir
Það vakti athygli fréttamanns hvað viðmælendur Bítisins á Bylgjunni í morgun voru sólkysstir og útiteknir eftir helgina. Sólin skein nánast viðstöðula...
Ebola outbreak in DR Congo: BBC witnesses celebration in the epicentre of the outbreak
📅 15.06.2026 👁️ 1
Ebola outbreak in DR Congo: BBC witnesses celebration in the epicentre of the outbreak
It is strange to witness singing and dancing in a place which has seen so much death but the successful treatment of an Ebola patient is cause for cel...
Öll á­höfnin talin af - Vísir
📅 15.06.2026 👁️ 1
Öll á­höfnin talin af - Vísir
Myndefni fór fljótlega að berast á internetið eftir að vélin, sem er hluti af bandaríska flughernum, skall á jörðinni fáeinum andartökum eftir að hafa...
Thames Water moves step closer to nationalisation after government objects to rescue deal
📅 15.06.2026 👁️ 1
Thames Water moves step closer to nationalisation after government objects to rescue deal
The government has objected to a proposed rescue deal for Thames Water, in a move which takes the UK's largest water company a step closer to a form o...
Ýmis sóknarfæri til að mæta vaxandi blóðgjafaþörf - MBL.IS
📅 15.06.2026 👁️ 0
Ýmis sóknarfæri til að mæta vaxandi blóðgjafaþörf - MBL.IS
Yfirlæknir við Blóðbanka Landspítalans segir vaxandi skort á blóðgjöfum ekki hafa haft alvarlegar afleiðingar fyrir sjúklinga enn, en um 2.500 nýja bl...
Fuglar og menn heillaði áhorfendur í Finnlandi - MBL.IS
📅 15.06.2026 👁️ 0
Fuglar og menn heillaði áhorfendur í Finnlandi - MBL.IS
Áhorfendur á hinni virtu kvikmyndahátíð Midnight Sun Film Festival völdu íslensku heimildarmyndina Fuglar og menn meðal sinna uppáhalds á hátíðinni um...
Alvotech efnir til útboðs hlutabréfa að andvirði 15,6 milljarða króna
📅 15.06.2026 👁️ 2
Alvotech efnir til útboðs hlutabréfa að andvirði 15,6 milljarða króna
Alvotech hefur efnt til útboðs á hlutabréfum í Bandaríkjunum samhliða lokuðu útboði til fagfjárfesta á Evrópska efnahagssvæðinu. Áætlað er að andvirði...
Kompásar stilltir fyrir komandi hval­veiðar - Vísir
📅 15.06.2026 👁️ 0
Kompásar stilltir fyrir komandi hval­veiðar - Vísir
Ekki var búið að koma hvalabyssunum fyrir þannig að tækifærið virðist ekki hafa verið nýtt til að æfa skotfimina. Samtímis standa yfir endurbætur á hv...
Ekki mikið eftir af rannsókninni - MBL.IS
📅 15.06.2026 👁️ 0
Ekki mikið eftir af rannsókninni - MBL.IS
Rúmenski karlmaðurinn sem var handtekinn í heimalandi sínu í byrjun maí fyrir að vera grunaður um að hafa millifært á sig um 160 milljónir króna úr Ar...
Sam­komu­lag um sam­komu­lag undir­ritað og klárt - Vísir
📅 15.06.2026 👁️ 2
Sam­komu­lag um sam­komu­lag undir­ritað og klárt - Vísir
„Það er mér mikil ánægja að segja að það er undirritað, samkomulagið er allt undirritað,“ sagði hann á fundi með Emmanuel Macron Frakklandsforseta á á...
Erfiðir tímar fyrir norsku konungs­fjöl­skylduna - Vísir
📅 15.06.2026 👁️ 1
Erfiðir tímar fyrir norsku konungs­fjöl­skylduna - Vísir
Þetta segir Ragnheiður Ásta Sigurðardóttir, sérfræðingur í konunglegum málefnum. Høiby var verið dæmdur í fjögurra ára fangelsi fyrir nauðganir og fle...