Áhorfendur á hinni virtu kvikmyndahátíð Midnight Sun Film Festival völdu íslensku heimildarmyndina Fuglar og menn meðal sinna uppáhalds á hátíðinni um helgina.
Í fréttatilkynningu kemur fram að engin verðlaun séu veitt á hátíðinni, þess í stað ráði atkvæði áhorfenda hvaða myndir fá aukasýningar á hátíðinni.
Í ár voru þrjár myndir valdar til endursýninga, þar á meðal Fuglar og menn, í leikstjórn Ingvars Þórðarsonar, Ragnars Axelssonar og Mika Kaurismäki.
Hlaut Einarinn fyrir skemmstu
Er þetta í annað sinn sem myndin hlýtur sérstaka viðurkenningu frá áhorfendum en hún hlaut fyrir skemmstu Einarinn, áhorfendaverðlaun Skjaldborgar 2026.
Myndin var heimsfrumsýnd á CPH:DOX í Kaupmannahöfn fyrr á þessu ári og verður hún svo frumsýnd hér á landi í september.
Uppbygging æðarvarps í Loðmundarfirði
Myndin fjallar um hjónin Ólaf Aðalsteinsson og Jóhönnu Óladóttur sem hafa í yfir tvo áratugi helgað líf sitt uppbyggingu og verndun æðarvarps í hinum afskekkta Loðmundarfirði á Austfjörðum.
Í firðinum, sem lagðist í eyði fyrir meira en hálfri öld, hafa þau byggt upp eitt öflugasta varpsvæði landsins við krefjandi aðstæður.
Midnight Sun-hátíðin hefur farið fram árlega í Sodankylä í Finnlandi síðan hún var stofnuð af bræðrunum Aki og Mika Kaurismäki árið 1986. Meðal gesta á hátíðinni í ár voru Susan Seidelman, Abderrahmane Sissako, Stéphane Brizé og İlker Çatak.