Yfir milljarður barna stendur frammi fyrir minnst þrennum ógnunum af völdum loftslagsbreytinga að mati UNICEF. Við vinnslu nýrrar skýrslu litu rannsakendur til afleiðinga átta helstu birtingamynda loftslagsbreytinga á þá 2,4 milljarða barna sem á jörðinni búa.
Þar á meðal eru sjávarflóð, þurrkar, hitabeltisstormar, hitabylgjur sem vara minnst þrjá daga yfir hámarkshitamörk hvers heimshluta, skógareldar og sandstormar. Skýrsluhöfundar benda á að ógnin sé mest í löndum sunnan Sahara og hlutum Suður-Asíu.
Ógnin magnast iðulegaupp vegna vangetu yfirvalda í glímunni við hana. Lítill hluti fólks finnur nánast ekkert fyrir ógninni, yfirleitt á norðurhvelinu og sérstaklega í hluta Skandinavíu.
Einblínt var á þann rúma milljarð barna sem berskjölduð eru fyrir þremur loftslagsvám, algengasta samsetningin er ofsahiti yfir 35 gráðum, þurrkar og hitabylgjur sem um það bil 300 milljónir barna búa við. Af þeim búa 74 milljónir í Nígeríu, 34 í Pakistan og 32 milljónir á Indlandi.
Börnum sem mega þola þrjár eða fleiri ógnir af völdum loftslagsbreytinga hefur fjölgað verulega síðustu tuttugu ár að sögn UNICEF.
Nærri hvert einasta barn finnur fyrir hættunni, tvennar ógnir steðja að tveimur milljörðum og minnst 364 milljónir finna fyrir minnst fjórum. Sjö eða fleiri loftslagshættur ógna tilvist 123 þúsund barna, þar af 46 þúsund í Mjanmar.