Myndefni fór fljótlega að berast á internetið eftir að vélin, sem er hluti af bandaríska flughernum, skall á jörðinni fáeinum andartökum eftir að hafa tekið á loft af Edwards-herflugvellinum í sunnanverðu Kaliforníuríki.
Mikið eldhaf gaus upp og svartur reykjarmökkur steig upp. Reykur var sýnilegur í mikilli fjarlægð.
Samkvæmt yfirlýsingu frá stjórnendum flugvallarins hefur flugvellinum verið lokað. Ekki hafa verið borin kennsl á neinn í áhöfninni en í yfirlýsingunni segir að gengið sé út frá því að enginn hafi haft það af.
Flugvélin var að þeirra sögn á leið í reglubundið prufuflug samkvæmt umfjöllun breska ríkisútvarpsins.