Friðrik Einarsson, betur þekktur sem Taxý Hönter, hefur birt færslu á samfélagsmiðlum þar sem hann rekur sögu leigubílstjórans Mohamoud Farah Hassan og spyr hvernig honum hafi verið leyft að starfa áfram árum saman þrátt fyrir að hafa komið við sögu í nokkrum umdeildum málum.
Í færslunni rifjar Friðrik upp nokkur mál sem áður hafa verið til umfjöllunar í fjölmiðlum, þar á meðal dóm fyrir brot gegn barni, umferðarslys þar sem eldri kona varð fyrir bíl og hið svokallaða Bláfjallavegsmál.
„Hvernig var þessum manni leyft að keyra svona lengi?“ spyr Friðrik.
Þess má geta aðaldraður leigubílsstjóri fékk rekstrarleyfi sitt ekki endurnýjað vegna þess að hann keypti vændi rúmum áratug fyrr.
Dæmdur fyrir brot gegn barni
Fyrsta málið sem Friðrik rifjar upp varðar atvik í búningsklefa sundlaugar í mars 2022.
Mohamoud Farah Hassan var í desember 2024 dæmdur fyrir brot gegn barni vegna atviksins. Samkvæmt dómi hafði hann farið inn í kvennaklefa þar sem 14 ára stúlka var stödd. Í dómsmálinu bar hann því við að hann hefði villst inn í klefann vegna tungumálaörðugleika.
Fram kom í dómi að öryggismyndavélar sýndu að hann hefði ítrekað farið inn í kvennaklefann á sama degi og daginn áður. Einnig kom fram að hann hefði átt samskipti við stúlkuna og meðal annars spurt hana um símanúmer, samfélagsmiðla og hvort hún vildi giftast sér.
Umferðarslys á rauðu ljósi
Friðrik bendir einnig á umferðarslys sem varð árið 2025 þegar Mohamoud var dæmdur fyrir að aka yfir á rauðu ljósi og á eldri konu.
Samkvæmt dómi jók ökumaðurinn hraða sinn þegar hann nálgaðist gatnamót áður en hann ók yfir á rauðu ljósi og lenti á konunni.
Friðrik segir málið hafa vakið spurningar um hvort gripið hafi verið nægilega fljótt til aðgerða gagnvart ökumanninum.
Bláfjallavegsmálið vakti mikla athygli
Þá rifjar Friðrik upp hið svokallaða Bláfjallavegsmál sem vakti mikla athygli undir lok árs 2025, en Nútíminn fjallaði um málið.
Málið varðaði tvær ástralskar ferðakonur sem töldu sig hafa verið blekktar í leigubílaferð og síðar skildar eftir við Bláfjallaveg. Málið rataði bæði í fjölmiðla og fyrir kærunefnd.
Friðrik heldur því fram að Mohamoud hafi haldið áfram að aka leigubíl um nokkurt skeið eftir dóminn vegna búningsklefamálsins og að það hafi ekki verið fyrr en eftir niðurstöðu kærunefndarinnar í Bláfjallavegsmálinu að honum hafi loks verið kippt af götunni.
Rifjar einnig upp eldri gagnrýni
Í færslunni nefnir Friðrik jafnframt að sumarið 2024 hafi skjáskot af kvittun úr leigubíl Mohamoud birst á samfélagsmiðlum. Þar hafi ferðamaður greitt 5.000 krónur fyrir ferð sem Friðrik segir að venjulega hefði átt að kosta um 3.000 krónur samkvæmt mæli.
Hann heldur því einnig fram að Mohamoud hafi starfað hjá fleiri en einni leigubílastöð á ferli sínum og heldur því fram að hann hafi verið látinn hætta hjá fleiri en einu fyrirtæki eftir að umdeild mál komu upp.
Segir deilurnar hafa staðið árum saman
Hann segir að bróðir Mohamoud, Hamse Farah Hassan, hafi árið 2024 látið lögmann senda sér kröfu um að fjarlægja færslur þar sem hann hafi kallað bræðurna svindlara. Friðrik segist ekki hafa orðið við þeirri kröfu.
„Sama sumar sigar bróðir hans Hamse mannréttinda-lögfræðistofunni Norðdahl, Narfi og Silva á mig með hótunum um málssókn ef ég fjarlægi ekki færslur af samfélagsmiðlunum þar sem ég kalla Farah Hassan-bræðurna svindlkarla. Ég svara lögfræðistofunni ekki og hún lætur sig hverfa. Tíu mánuðum seinna lenda bræðurnir í fréttum Stöð 2 vegna Bláfjallavegs-túrsins fræga!“
Nútíminn fjallaði um stofuna í tengslum við mögulega hagsmunaárekstra Magnúsar Norðdahl í starfi en stofan þáði um sjö milljónir á mánuði frá utanríkisráðuneytinu á þeim tímapunkti.
Lögmannastofa Pírata í borgarstjórn Reykjavíkur malar gull á flóttamönnum og hælisleitendum
Þá heldur hann því einnig fram að bræðurnir hafi ítrekað kvartað yfir honum til lögreglu og að hann hafi alls 17 sinnum þurft að sæta afskiptum lögreglu vegna kvartana þeirra, sem Friðrik segir vera tilefnislausar.
Friðrik segir að deilurnar tengist meðal annars átökum innan leigubílageirans eftir lagabreytingar sem tóku gildi árið 2023 og að ágreiningurinn hafi staðið yfir í nokkur ár.
„YOU HAVE A GREAT BODY, ME TOO, WOULD YOU LIKE TO SEE?“
– Leigubílstjórinn og vinur minn Mohamoud Farah Hassan við nakta 14 ára stelpu í kvennaklefa sundlaugar 13.mars 2022. Í desember 2024 hlýtur hann dóm fyrir brot gegn barni.
– Samkvæmt dómskjölum bar hann fyrir sig að hafa… pic.twitter.com/0YhaZmtt4s
— Taxý Hönter (@fridrikeinarss1) June 12, 2026