Búist er við mikilli skipaumferð í Vestmannaeyjum nú í sumar en samkvæmt Dóru Björk Gunnarsdóttur hafnarstjóra er samtals von á 100 skemmtiferðaskipum í sumar.
Á myndinni sem sjá má hér að ofan lóna tvö stór skemmtiferðaskip í innsiglingu hafnarinnar en þau komu til eyjarinnar í síðustu viku og voru gestir ferjaðir í land á bátum.
Dóra segir skemmtiferðaskipin mikla búbót fyrir bæinn en samtals er búist við að 50.000 ferðamenn komi með skipunum til Eyjar í sumar.
„Júní er mjög þéttur en júlí er aðal mánuðurinn. Svo minnkar þetta smám saman eftir því sem líður á sumarið. Þetta er frábært fyrir svona lítinn bæ eins og okkar, þar sem þessu fylgir mikill fyrirsjáanleiki og við vitum þá bara fyrirfram hvaða dagar verða stórir og þá er hægt að vera með allt tilbúið fyrir það,“ segir Dóra í samtali við mbl.is.
Mjög góð í Tetris
Ofan í ferðamannavertíðina bætist einnig fótboltamótavertíð en eitt slíkt, pæjumótið, fór fram núna helgina og með því stanslaus straumur fólks til Eyja á öllum tímum dags og eðli málsins samkvæmt nóg að gera hjá starfsmönnum hafnarinnar í að passa að allt gangi smurt fyrir sig.
„Herjólfur og Baldur sigldu fjölmargar ferðir til og frá Eyjum núna um helgina. Svo var seyðaútflutningur frá Viðlagafjöru fyrir skömmu og svo er einnig verið að vinna við rafstrenginn svo þetta er bara búið að vera stórkostlegt og alveg nóg að gera,“ segir Dóra.
Spurð hvort að það geti ekki verið snúið að koma öllum þessum skipafjölda fyrir í höfninni, sem ekki er mjög stór, segir hún svo vissulega vera.
„Við erum mjög góð í Tetris hérna,“ segir Dóra og hlær.
„Uppsjávarflotinn liggur allur í landi og verður hér fram yfir þjóðhátíð en það eru stór skip sem taka mikið pláss. Við vitum þó af alltaf þessum stóru skemmtiferðarskipum með 2 ára fyrirvara svo við getum gert nægar ráðstafanir.“
„Næstu skref hjá okkur er þó að fara huga að framkvæmd á stórskipahöfn til þess að taka ennþá betur á móti þessum auknu umsvifum í samfélaginu,“ segir Dóra að lokum.