Aðgerðir lögreglu til að stöðva rekstur öryggisþjónustu aðfaranótt laugardags leiddu til þess að loka þurfti tveimur skemmtistöðum tímabundið ef ekki næðist að útvega nýja dyraverði innan ákveðins tíma.
Þetta segir Ásmundur Rúnar Gylfason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, í samtali við mbl.is. Hann bendir á að lögregla og aðrir eftirlitsaðilar hafi um árabil sinnt sameiginlegu eftirliti sem beinist að brotum á vinnumarkaði.
„Fyrirtæki geta verið með áfengisleyfi, rekstrarleyfi og starfsleyfi í lagi. Ef þjónusta öryggisfyrirtækis fellur hins vegar niður getur það haft í för með sér að rekstraraðili þurfi að loka tímabundið á meðan annarra starfsmanna er aflað til að sinna viðkomandi verkefnum,“ segir Ásmundur.
„Höfum lent í að það verði árekstrar“
Að sögn hans hefur einnig verið gagnrýnt að lögreglumenn séu einkennisklæddir við eftirlitið.
„Það er hluti af því að lögreglan þarf að vera sýnileg svo fólk viti að eftirlit sé framkvæmt á vinnustöðum. Við höfum lent í vandræðum þegar lögreglumenn hafa verið óeinkennisklæddir og þá hafa komið upp árekstrar. Slík tilvik eru hins vegar hverfandi þegar eftirlitið er framkvæmt af einkennisklæddum lögreglumönnum.“
Kanna hvort starfsfólk sé á réttum launum
Hann segir að eftirlitið verði að fara fram þegar starfsemin sé í gangi en ekki eingöngu á dagvinnutíma.
„Við erum að fara í eftirlit og hitta starfsfólk á vinnustaðnum, hvort sem um er að ræða veitingastaði, skemmtistaði eða jafnvel byggingariðnað. Markmiðið er meðal annars að kanna hvort starfsfólk sé á réttum launum, hvort það fái yfirhöfuð greitt fyrir vinnu sína og hvort kjör þess séu viðunandi,“ segir hann.
Hann bætir við að hlutverk stofnananna sem taki þátt í aðgerðunum sé meðal annars að fylgjast með kjörum og aðbúnaði starfsfólks og grípa inn í ef grunur vaknar um ósæmilega meðferð eða brot á réttindum þess.
„Það er alveg ljóst að við munum aldrei ná tali af þessu starfsfólki á dagvinnutíma, því það er bara ekki við vinnu.“