Evrópusambandið boðar að nýjar reglur varðandi réttindi flugfarþega séu í farvatninu. Helsta breytingin er að handfarangurstaska skuli alltaf vera innifalin í miðaverði ásamt lítilli tösku og farþegar geti farið fram á afslátt þarfnist þeir stærri töskunnar ekki.
Þannig verða stór lággjaldaflugfélög á borð við Ryanair og Easy-Jet að hætta innheimtu sérstaks gjalds fyrir handfarangur. Bætur fyrir niðurfellingu eða tafir á flugi yfir þrjár klukkustundir verða áfram þær sömu, milli 250 og 600 evrur á farþega eftir lengd ferðar.
Tilgangurinn er að auka gegnsæi og auðvelda samanburð á flugmiðaverði. Hagsmunasamtök flugfélaga í Evrópu, Airlines for Europe, vara við að nýju reglurnar leiði af sér hækkun á grunnverði flugferða auk þess sem þau árétta að félögunum sé iðulega refsað fyrir afleiðingar atvika sem þau ráði ekki við.
Auk þessa verður óheimilt að rukka sérstaklega þurfi að breyta nafni farþega á farmiða eða leiðrétta innsláttarvillu og svokallað no-show gjald verður bannað. Hið sama á við um gjald fyrir að fullorðinn sitji við hlið barns og flugfélögum er gert að veita meiri þjónustu frestist tengiflug.
Flugfélögin mega heldur ekki krefjast þess að farþegar hali niður sérstöku appi fyrir brottfararspjöld eins og Ryanair tók upp í nóvember. Atkvæði verða greidd um tillögurnar á Evrópuþinginu í júlí.