Rúmenski karlmaðurinn sem var handtekinn í heimalandi sínu í byrjun maí fyrir að vera grunaður um að hafa millifært á sig um 160 milljónir króna úr Arion banka og farið með Norrænu úr landi er enn í farbanni hér.
Stefán Örn Stefánsson aðstoðaryfirlögregluþjónn segir að málið sé ennþá hjá lögreglu í rannsókn og hafi ekki verið vísað til ákærusviðs.
Bíða eftir gögnum frá Rúmeníu
Að sögn hans var maðurinn úrskurðaður í farbann í fjórar vikur en að þá verði tekin afstaða til þess hvort það verði framlengt.
Á fyrri stigum málsins tókst að endurheimta mikið fé og segir Stefán að núna bíði lögregla eftir gögnum frá greiðsluþjónustufyrirtækjum í Rúmeníu og síðan fari málið til ákærusviðs.
Hann segir að þegar rannsókninni ljúki verði málið sent til ákærusviðs, sem taki afstöðu til þess hvort gefin verði út ákæra.
„Ómögulegt er að segja til um hvenær það verður, bæði hvað varðar útgáfu ákæru og hvenær málið verður tekið fyrir fyrir dómi. Að því sögðu er ekki mikið eftir af rannsókninni og ég reikna með að málið fari til ákærusviðs í júlí,“ segir hann að lokum.