Listasysturnar Áslaug og Brynja Harðardætur Tveiten blása til gluggasýningar á vinnustofu Brynju við Hafnarstræti 88 á Akureyri. Sýningin verður uppi fram til 22. júní og eru þar sýndar m.a. embættismyndir af forsetum Íslands.
Í samtali við mbl.is segir myndlistakonan Brynja Harðardóttir Tveiten að þær systurnar hafi staðið fyrir fjöldanum öllum af samskonar gluggasýningum síðan árið 2023.
Hafa þær meðal annars verið með jólaglugga í desember, barnamenningarhátíðarglugga í apríl og einnig hafa þær haft gluggasýningar í október í tilefni átaks gegn brjóstakrabbameini.
Nostalgía og líðandi stundir
„Við reynum að tengja þessar gluggasýningar við líðandi stundir en alltaf með einhverju nostalgíuívafi,“ segir Brynja.
„Tilgangurinn er í rauninni bara að nota gluggann á vinnustofunni minni í Hafnarstrætinu og búa til svolítið ævintýri fyrir fólk sem gengur fram hjá,“ segir Brynja og bætir við að þær systurnar skemmti sér altént stórkostlega við að búa til þessar upplifanir í miðju bæjarins.
Hún hvetur fólk til að staldra við og hafa gaman.
„Það þarf ekki alltaf flugelda til að hafa gaman, það er hægt að búa til ævintýri úr litlu með smá hugsjónasemi.“
„Gluggi sem gefur á báða bóga“
Hún segir gluggasýningarnar tákna ákveðna aðferðafræði til að gefa gömlum hlutum líf en á sama tíma áskorunina sem felst í því að átta sig á því hvenær hlutur er búinn að þjóna sínum tilgangi og þá að æfa sig í að sleppa honum.
„Þetta er gluggi sem gefur á báða bóga. Það er svo gaman að vera hinum megin við gluggann að vinna.“
Brynju finnst fátt skemmtilegra en að sjá fólk labba fram hjá glugganum hennar og heyra það „úa og hrópa upp yfir sig“.
Kærleiksgjörningur
Vilja þær systur benda gestum og gangandi á að fyrir utan vinnustofuna er að finna rauðan póstkassa sem í er gestabók sem má endilega kvitta fyrir sig í. Í gegnum tíðina hafa þær fengið alls konar kveðjur hvaðanæva úr heiminum.
„Í kassanum má einnig finna lítil rauð tréhjörtu sem fara vel í vasa eða eru tilvalin til að gefa áfram. Þetta er svona kærleiksgjörningur,“ segir Brynja að lokum.
