Tilboð Reita í uppbyggingu nýs hjúkrunarheimilis á Akureyri hefur verið valið hagstæðast í útboði Framkvæmdasýslunnar – Ríkiseigna (FSRE). Hjúkrunarheimilið mun rísa við Þursaholt 6 og verða um 9.100 fermetrar að stærð með rými fyrir 140 íbúa.
Alls bárust tíu tilboð frá fimm bjóðendum í verkefnið og var tilboð Reita metið hagstæðast samkvæmt þeim viðmiðum sem voru sett fram í útboðsgögnum. Leigutilboð félagsins nemur 5.800 krónum á fermetra, sem samsvarar um 633 milljónum króna á ári. Áætlaður framkvæmdakostnaður er um 8,9 milljarðar króna.
„Öldrun þjóðar kallar á stórtæka aukningu“
Að framkvæmdum loknum tekur við 25 ára verðtryggður leigusamningur milli Reita og Ríkiseigna. Reitir munu annast rekstur húsnæðisins en rekstur hjúkrunarheimilisins sjálfs verður í höndum annars aðila á vegum ríkisins.
„Við fögnum tækifærinu að fá að leggja þekkingu og reynslu okkar á vogarskálarnar við að byggja upp nýtt og glæsilegt hjúkrunarheimili á Akureyri. Þróun fasteigna og innviða sem samfélagið þarfnast er liður í framtíðarsýn Reita og öldrun þjóðar kallar á stórtæka aukningu hjúkrunarheimila víðs vegar um land,“ segir Guðni Aðalsteinsson, forstjóri Reita.
Hann segir félagið leggja metnað í örugga og hraða uppbyggingu til að mæta vaxandi þörf fyrir hjúkrunarrými.
Byggingaraðferðin stytti framkvæmdatíma
Byggingin verður reist úr blöndu af forsmíðuðum og forsteyptum einingum. Reitir munu vinna að hönnun og framkvæmdum í samstarfi við Art-Verk ehf., sem hefur reynslu af sambærilegum verkefnum. Að sögn félagsins mun byggingaraðferðin stytta framkvæmdatíma, auka sveigjanleika í hönnun og stuðla að auknum gæðum húsnæðisins.
Næstu skref eru að ganga frá frumuppdráttum í samstarfi við rekstraraðila og FSRE áður en farið verður í gerð aðaluppdrátta og endanlegrar hönnunar. Þegar því er lokið geta framkvæmdir hafist.