Salka: Blæs nýju lífi í merkasta bókmenntaarf þjóðarinnar með frumlegum hætti

Salka: Blæs nýju lífi í merkasta bókmenntaarf þjóðarinnar með frumlegum hætti

Katla Ársælsdóttir skrifar:

Nýju lífi hefur verið blásið í Söguloft Landnámssetursins í Borgarnesi undanfarna mánuði þar sem einleikurinn Salka – ástin og dauðinn er sýndur í tilefni af tuttugu ára afmæli setursins. Verkið var frumsýnt í febrúar en vinsældir sýningarinnar fara ekki dvínandi og uppselt er á margar sýningar fram á sumar. Unnur Ösp Stefánsdóttir leikur og skrifar leikgerðina. Hún er vel að sér í einleikjum og lék meðal annars í einleiknum Saknaðarilmi þar sem hún vann leikgerðina upp úr verkum Elísabetar Jökulsdóttur. Sá einleikur hlaut einnig mikilla vinsælda og var sýningu þrjú leikár í röð í Þjóðleikhúsinu. Björn Thors leikstýrir báðum einleikjunum.

Í verkinu Salka – ástin og dauðinn leiðir Unnur Ösp áhorfendur í gegnum fyrri hluta skáldsögunnar Sölku Völku, einnar af þekktustu og áhrifamestu skáldsögunum í íslenskri bókmenntasögu.

Unnur Ösp Stefánsdóttir leikur einleikinn Salka - ástin og dauðinn í Landnámssetrinu Borgarnesi febrúar 2026.
„Þær mæðgur eru sárafátækar og lenda í ýmsum hremmingum, á borð við heimilisofbeldi og fósturláts.“Jorri

Við fylgjum Sölku í gegnum uppvaxtarárin frá því að hana og Sigurlínu móður hennar rekur óvænt að landi á Óseyri við Axlarfjörð allt að dánardegi Sigurlínu. Þar á milli gerist ýmislegt. Þær mæðgur eru sárafátækar og lenda í ýmsum hremmingum á borð við heimilisofbeldi og fósturlát. Þær, og ekki síst Salka, kynnast ólíkum birtingarmyndum ástarinnar og dauðans.

Í byrjun sýningar heyrist Halldór Laxness lesa grein um tónlist og minnist meðal annars á Bach sem hann hlustaði mikið á við skrif, sér í lagi á skáldsögunni Sölku Völku. Í gegnum verkið óma ýmis tónverk í útsetningu Davíðs Þórs Jónssonar sem dýpka merkingu sögunnar, tengja áhorfendur við skáldið og færa þá nær persónunum.

„Ég er alls enginn kvenmaður og skal aldrei verða” segir Salka. Hún fer óhefðbundnar leiðir og klæðist til að mynda buxum en móðir hennar, sem er mun íhaldssamari, er túlkuð sem kjóll á herðatré.

Filippía I. Elísdóttir sá um búninga en múndering Unnar Aspar var mjög í anda Sölku, dökkar flauelsbuxur og dökk í skyrta í stíl. Filippía hannaði einnig leikmynd sem var ekki stór og tók lítið pláss á litlu Sögulofti Landnámssetursins en átti þó vel við.

Úr sýningunni Salka - ástin og dauðinn í Landnámssetrinu. Unnur Ösp Stefánsdóttir í hlutverki Sölku.
„Þetta er vel útfærð og áhrifamikil sýning.“Landnámssetrið

Salka Valka er saga sem hefur staðist tímans tönn, en hvers vegna? Er það aðalpersónan sjálf sem fólk getur enn, næstum hundrað árum seinna, speglað sig í? Verkið spyr slíkra spurninga. Er Salka til í mér? Eða okkur öllum? Þessari spurningu er varpað fram til áhorfenda. Samfélagið hefur breyst en hefur maðurinn gert það líka? „Stríð er stríð, stúlka er stúlka,” segir Unnur Ösp í lok verksins sem má túlka sem svo að eigi við um tímaleysi sögunnar.

Verkið tekst á við ýmis þemu á borð við ofbeldi, fátækt, fíkn og sjálfstæðisbaráttu, eins og mörg bókmenntaverk Halldórs Laxness. Aðstandendur sýningarinnar gera það með frumlegum hætti og blása nýju lífi í sögu sem er ein sú merkasta í bókmenntaarfi þjóðarinnar.

Þetta er vel útfærð og áhrifamikil sýning. Unnur Ösp grípur áhorfandann með glæsilegri framkomu á sviðinu. Hún skiptir léttilega milli hlutverka og án dramatískra tilbrigða. Það þurfti einungis litlar hreyfingar og líkamsbeitingu eins og bogið bak og eilitla breytingu á raddblæ til að skipta um hlutverk. Með því var framkoman fumlaus og einlæg. Útsetning Davíðs Þórs Jónssonar á ýmsum þekktum tónverkum var ómissandi þáttur í verkinu sem og lýsing Björns Bergsteins Guðmundssonar sem var skörp og ýtti undir dramatíska framvindu verksins.

Að finna sig utanveltu, lenda í ástarsorg og öðrum hremmingum og vera í stöðugri leit að sjálfum sér og stað til að tilheyra er allt hluti af því að vera til. Því hlýtur þessi frakka og ákveðna unga kona að búa að einhverju leyti innra með okkur öllum, næstum hundrað árum eftir að hún birtist íslenskum lesendum fyrst.

Katla Ársælsdóttir flutti pistil sinn í Víðsjá á Rás 1 sem finna má í spilaranum hér fyrir ofan. Katla lærði leikhúsfræði í Trinity College í Dublin og bókmenntafræði í Háskóla Íslands.

#bókmenntaarf #þjóðarinnar #frumlegum #merkasta #salka


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-04-17-salka-blaes-nyju-lifi-i-merkasta-bokmenntaarf-thjodarinnar-med-frumlegum-haetti-472583

📰 Aðrar fréttir

Eina íslenska kollagenið framleitt á Blönduósi
📅 26.04.2026 08:00:00 👁️ 0

Eina íslenska kollagenið framleitt á Blönduósi

#kollagenið#framleitt#blönduósi#íslenska#eina
Dregið verulega úr starfsemi Iðunnar mathallar
📅 26.04.2026 07:53:40 👁️ 0

Dregið verulega úr starfsemi Iðunnar mathallar

#starfsemi#mathallar#verulega#iðunnar#dregið
Teenager in critical condition after motorbike crash in Gran Canaria
📅 26.04.2026 07:49:00 👁️ 0

Teenager in critical condition after motorbike crash in Gran Canaria

#condition#motorbike#teenager#critical#canaria
Enn má búast við slyddu eða snjó­komu - Vísir
📅 26.04.2026 07:39:24 👁️ 0

Enn má búast við slyddu eða snjó­komu - Vísir

#snjókomu#slyddu#búast#vísir
Tenerife’s new Sea Sports Centre is delayed by a year
📅 26.04.2026 07:39:00 👁️ 0

Tenerife’s new Sea Sports Centre is delayed by a year

#tenerife#delayed#sports#centre#year
Improving Secure Document Sharing Beyond Email Attachments
📅 26.04.2026 07:30:00 👁️ 0

Improving Secure Document Sharing Beyond Email Attachments

#attachments#improving#document#sharing#secure
Ölvun, vopna­burður og áfengishnupl - Vísir
📅 26.04.2026 07:25:43 👁️ 0

Ölvun, vopna­burður og áfengishnupl - Vísir

#áfengishnupl#vopnaburður#ölvun#vísir
40 ár frá Chernobyl-slysinu
📅 26.04.2026 07:22:06 👁️ 0

40 ár frá Chernobyl-slysinu

#chernobyl#slysinu
Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum - Vísir
📅 26.04.2026 07:03:00 👁️ 0

Seldu sex milljónir dósa af nikótínpúðum - Vísir

#nikótínpúðum#milljónir#seldu#vísir#dósa
SUNDAY WEATHER: Cloud, occasional showers, and light winds in the Canary Islands
📅 26.04.2026 06:29:00 👁️ 0

SUNDAY WEATHER: Cloud, occasional showers, and light winds in the Canary Islands

#occasional#weather#showers#islands#sunday
In pictures: Chaos as gunfire heard in Washington ballroom
📅 26.04.2026 06:24:33 👁️ 0

In pictures: Chaos as gunfire heard in Washington ballroom

#washington#pictures#ballroom#gunfire#chaos
London Marathon sports quiz: How much money was raised? How many runners compete?
📅 26.04.2026 05:15:26 👁️ 0

London Marathon sports quiz: How much money was raised? How many runners compete?

#marathon#runners#compete#london#sports
Police: Correspondents' dinner suspect charged checkpoint, had multiple weapons
📅 26.04.2026 04:27:08 👁️ 0

Police: Correspondents' dinner suspect charged checkpoint, had multiple weapons

#correspondents#checkpoint#multiple#suspect#charged
Video shows correspondents' dinner suspect charge checkpoint
📅 26.04.2026 04:27:08 👁️ 0

Video shows correspondents' dinner suspect charge checkpoint

#correspondents#checkpoint#suspect#dinner#charge
Inside the room as shots rang out at correspondents' dinner
📅 26.04.2026 04:22:59 👁️ 0

Inside the room as shots rang out at correspondents' dinner

#correspondents#inside#dinner#shots#room
What we know about the gunshots at the White House Correspondents' Dinner
📅 26.04.2026 04:22:29 👁️ 0

What we know about the gunshots at the White House Correspondents' Dinner

#correspondents#gunshots#dinner#about#white
'You just didn't know': Gary O'Donoghue describes confusion and fears at correspondents' dinner
📅 26.04.2026 04:08:27 👁️ 0

'You just didn't know': Gary O'Donoghue describes confusion and fears at correspondents' dinner

#correspondents#describes#confusion#donoghue#dinner
14 létust þegar sprengja sprakk við hraðbraut
📅 26.04.2026 03:12:42 👁️ 0

14 létust þegar sprengja sprakk við hraðbraut

#hraðbraut#sprengja#létust#sprakk#þegar
Dunmurry: Homes evacuated after suspected car bomb explodes near police station
📅 26.04.2026 03:03:41 👁️ 0

Dunmurry: Homes evacuated after suspected car bomb explodes near police station

#evacuated#suspected#dunmurry#explodes#station
Starmer insists 'majority' of Labour MPs back his leadership
📅 26.04.2026 02:43:41 👁️ 0

Starmer insists 'majority' of Labour MPs back his leadership

#leadership#majority#starmer#insists#labour
Ógn á galakvöldverði og for­setinn fluttur á brott - Vísir
📅 26.04.2026 01:46:01 👁️ 0

Ógn á galakvöldverði og for­setinn fluttur á brott - Vísir

#galakvöldverði#forsetinn#fluttur#brott#vísir
Árásarmaður reyndi að gera árás á galakvöldverði – Bandaríkjaforseti og ráðherrar fluttir burt í skyndi
📅 26.04.2026 01:38:15 👁️ 0

Árásarmaður reyndi að gera árás á galakvöldverði – Bandaríkjaforseti og ráðherrar fluttir burt í skyndi

#bandaríkjaforseti#galakvöldverði#árásarmaður#ráðherrar#fluttir
Trump rushed from White House correspondents' dinner after suspected gunshots heard
📅 26.04.2026 01:13:23 👁️ 0

Trump rushed from White House correspondents' dinner after suspected gunshots heard

#correspondents#suspected#gunshots#rushed#dinner
Trump fluttur burt í skyndi þegar skothvellir heyrðust
📅 26.04.2026 00:57:40 👁️ 0

Trump fluttur burt í skyndi þegar skothvellir heyrðust

#skothvellir#heyrðust#fluttur#skyndi#trump
Útflutningur á sólarorkubúnaði tvöfaldaðist í mars
📅 26.04.2026 00:40:05 👁️ 0

Útflutningur á sólarorkubúnaði tvöfaldaðist í mars

#sólarorkubúnaði#útflutningur#tvöfaldaðist#mars
Why the voice note craze is yet to truly explode in Britain
📅 26.04.2026 00:03:47 👁️ 0

Why the voice note craze is yet to truly explode in Britain

#explode#britain#voice#craze#truly
We thought Gen Z weren't drinking alcohol. But do canned cocktails suggest otherwise?
📅 26.04.2026 00:02:24 👁️ 0

We thought Gen Z weren't drinking alcohol. But do canned cocktails suggest otherwise?

#cocktails#otherwise#drinking#thought#alcohol
UK steps up plans for potential shortages caused by Iran war
📅 25.04.2026 23:55:25 👁️ 0

UK steps up plans for potential shortages caused by Iran war

#potential#shortages#caused#steps#plans
Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin
📅 25.04.2026 23:21:43 👁️ 0

Fyrrverandi húsfreyja á Bakkakoti er látin

#fyrrverandi#húsfreyja#bakkakoti#látin
Bónda­konan á Bakka­koti er látin - Vísir
📅 25.04.2026 23:14:28 👁️ 0

Bónda­konan á Bakka­koti er látin - Vísir

#bóndakonan#bakkakoti#látin#vísir
The Epsom rape crime that never happened - but sparked a frenzy anyway
📅 25.04.2026 23:03:26 👁️ 0

The Epsom rape crime that never happened - but sparked a frenzy anyway

#happened#sparked#frenzy#anyway#epsom
I didn't tell my boyfriend my age when we started dating. I worried he might end things
📅 25.04.2026 23:03:01 👁️ 0

I didn't tell my boyfriend my age when we started dating. I worried he might end things

#boyfriend#started#worried#dating#things
Noah Kahan was crowned a superstar. It messed with his head
📅 25.04.2026 23:01:58 👁️ 0

Noah Kahan was crowned a superstar. It messed with his head

#superstar#crowned#messed#kahan#noah
Þóra í Bakkakoti er látin
📅 25.04.2026 22:59:00 👁️ 0

Þóra í Bakkakoti er látin

#bakkakoti#látin#þóra
Linnulausar árásir á Dnipro
📅 25.04.2026 22:41:32 👁️ 0

Linnulausar árásir á Dnipro

#linnulausar#árásir#dnipro
Trump cancels US envoys' trip to Pakistan for talks on Iran war
📅 25.04.2026 21:34:12 👁️ 0

Trump cancels US envoys' trip to Pakistan for talks on Iran war

#pakistan#cancels#envoys#trump#talks
Ísrael gerir loftárásir í suðurhluta Líbanons
📅 25.04.2026 21:24:21 👁️ 0

Ísrael gerir loftárásir í suðurhluta Líbanons

#loftárásir#suðurhluta#líbanons#ísrael#gerir
Giuffre family hold anniversary vigil ahead of King's US visit
📅 25.04.2026 21:23:21 👁️ 0

Giuffre family hold anniversary vigil ahead of King's US visit

#anniversary#giuffre#family#vigil#ahead
„Treystið nefinu og leyfið bragðlaukunum að leiða ykkur áfram“
📅 25.04.2026 20:56:43 👁️ 0

„Treystið nefinu og leyfið bragðlaukunum að leiða ykkur áfram“

#bragðlaukunum#treystið#nefinu#leyfið#leiða
Kjósendur í Palestínu vonast eftir breytingum
📅 25.04.2026 20:24:55 👁️ 0

Kjósendur í Palestínu vonast eftir breytingum

#breytingum#kjósendur#palestínu#vonast#eftir
Ör­væntir ekki yfir fregnum af falli meiri­hlutans - Vísir
📅 25.04.2026 20:13:52 👁️ 0

Ör­væntir ekki yfir fregnum af falli meiri­hlutans - Vísir

#meirihlutans#örvæntir#fregnum#falli#vísir
Framleiða hljóðdempandi veggpanela úr endurnýttu textílefni
📅 25.04.2026 19:59:41 👁️ 0

Framleiða hljóðdempandi veggpanela úr endurnýttu textílefni

#hljóðdempandi#veggpanela#endurnýttu#textílefni#framleiða
Hlaut al­var­lega höfuð­á­verka eftir á­rekstur á rafhlaupahjóli - Vísir
📅 25.04.2026 19:57:08 👁️ 0

Hlaut al­var­lega höfuð­á­verka eftir á­rekstur á rafhlaupahjóli - Vísir

#rafhlaupahjóli#höfuðáverka#alvarlega#árekstur#hlaut
Woman and child die after getting into difficulty in water at London park
📅 25.04.2026 19:49:02 👁️ 0

Woman and child die after getting into difficulty in water at London park

#difficulty#getting#london#woman#child
Orbán steps down from Hungarian parliament after landslide defeat
📅 25.04.2026 19:22:31 👁️ 0

Orbán steps down from Hungarian parliament after landslide defeat

#parliament#hungarian#landslide#defeat#orbán
Ofbeldi gagnvart ríkisstarfsmönnum algengt vandamál
📅 25.04.2026 19:20:04 👁️ 0

Ofbeldi gagnvart ríkisstarfsmönnum algengt vandamál

#ríkisstarfsmönnum#gagnvart#vandamál#ofbeldi#algengt
Orbán hættir á þingi - Vísir
📅 25.04.2026 19:03:52 👁️ 0

Orbán hættir á þingi - Vísir

#hættir#orbán#þingi#vísir
Protest by 500 campervans brings TF-1 to a crawl in Tenerife
📅 25.04.2026 18:54:00 👁️ 0

Protest by 500 campervans brings TF-1 to a crawl in Tenerife

#campervans#tenerife#protest#brings#crawl
Reyna áfram að liðka fyrir friðarviðræðum
📅 25.04.2026 18:50:38 👁️ 0

Reyna áfram að liðka fyrir friðarviðræðum

#friðarviðræðum#reyna#áfram#liðka#fyrir
Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konung­lega heim­sókn - Vísir
📅 25.04.2026 18:43:42 👁️ 0

Trump lífgar í gömlum glæðum Falklandseyjastríðsins fyrir konung­lega heim­sókn - Vísir

#falklandseyjastríðsins#konunglega#heimsókn#lífgar#gömlum