Saknað í Eyjum
Lögreglan biður um aðstoð við að finna mann sem sást síðast í Vestmannaeyjum í morgun.
Lögreglan í Vestmannaeyjum leitar að Hauki Haukssyni, sem hefur ekki sést frá því klukkan 7 í morgun.
Haukur er grannvaxinn 183 sm. á hæð og var íklæddur ljósdrapplituðum buxum, ljósri hettupeysu og svörtum stuttum jakka yfir. Hann hafði meðferðis lítinn svartan bakpoka.
Þeir sem hafa orðið hans varir eru beðnir um setja sig í samband við lögregluna í Vestmannaeyjum í gegnum 112.