Níumenningarnir sem handteknir voru í tengslum við umfangsmikið smygl í svokölluðu Straumsvíkurmáli hafa verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald í fjórar vikur til viðbótar.
Þetta staðfestir Ævar Pálmi Pálmason, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá rannsóknardeild lögreglunnar.
Fyrri gæsluvarðhaldsúrskurður rann út í dag.
Málið er það stærsta sinnar tegundar á Íslandi en 106 kílóum af kókaíni var smyglað með skipinu Koznitza sem kom frá Brasilíu í júní.
Meðal þeirra sem voru handteknir eru Brasilíumenn, Rúmeni og að minnsta kosti þrír Íslendingar. Tveir þeirra eru Lúther Ólason og Lárus Freyr Einarsson.