Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna, gerir athugasemd við að forstjóri Icelandair skuli boða flugmenn til fundar til að ræða kjaramál, án áðkomu stéttarfélagsins.
Bogi Nils Bogason forstjóri Icelandair, sendi flugmönnum tölvupóst í morgun, þar sem boðað er til fundarins. Í fundarboðinu segir Bogi að stjórnendur viti að margt brenni á flugmönnum, þar á meðal áhyggjur af hugsanlegri fjárfestingu félagsins í Fly Play Europe, einingu flugfélagsins Play á Möltu.
„Við erum nú kannski ekkert voðalega hressir með það fundarboð. Kjaraviðræður eiga að eiga sér stað við stéttarfélög. Það er lögbundið. Ég bendi bara á fjórðu grein laga um stéttarfélög og vinnudeilur,“ segir Jón Þór í samtali við fréttastofu á leið inn á samningafund hjá ríkissáttasemjara.
Lagagreinin sem hann vísar í kveður á um að atvinnurekendum sé óheimilt að reyna að hafa áhrif á afskipti starfsmanna af stéttarfélögum eða vinnudeilum, t.d. með hótunum um uppsögn.
Harka er tekin að færast í kjaraviðræðurnar. Ferðir hafa fallið niður hjá Icelandair. Í fréttum RÚV í gær var haft eftir Boga Nils að flugmenn væru í óformlegum verkfallsaðgerðum. Flugmenn hafa unnið samkvæmt sinni skyldu.
Flugmenn hafa unnið samkvæmt sinni skyldu en illa hefur gengið að fá flugmenn til að hlaupa í skarðir og taka aukavinnu þegar á þarf að halda.
„Ég veit ekki hvernig menn vilja túlka það hvort það sé verkfallsaðgerð að vinna eftir kjarasamningi. Ég held að það sé ansi langsótt.“