Sagðir hafa beitt þekktri brellu - Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda - DV

Sagðir hafa beitt þekktri brellu - Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda - DV

Sagðir hafa beitt þekktri brellu - Tilhæfulausir reikningar gefnir út í nafni fíkniefnaneytenda - DV

Héraðsdómur Reykjavíkur hefur hafnað því að fella úr gildi úrskurð skattrannsóknarstjóra og staðfestingu yfirskattanefndar á þeim úrskurði sem snýst um endurákvörðun opinberra gjalda og virðisaukaskatts fyrirtækis. Voru forsvarsmenn fyrirtækisins sagðir hafa fengið þrjá fíkniefnaneytendur til að gefa út tilhæfulausa reikninga í þeirra nafni á fyrirtækið sem hafi lagt fé inn á bankareikninga, í nafni umræddra einstaklinga, en féð verið tekið út jafnóðum og greitt sem laun sem ekki hafi verið gefin upp til skatts. Með þessum reikningum gat fyrirtækið einnig lækkað skattstofn sinn til bæði tekju- og virðisaukaskatts. Fram kemur í dómnum að þetta sé þekkt aðferð í verktakastarfsemi við að koma fé undan skatti.

Málið snýr raunar að skattskilum fyrirtækis sem tekið hefur verið til gjaldþrotaskipta en annað fyrirtæki fékk heimild til að reka málið fyrir hönd búsins.

Úrskurður skattrannsóknarstjóra, sem staðfestur var af yfirskattanefnd, snýr að endurálagningu opinberra gjalda vegna áranna 2018-2021 og virðisaukaskatts fyrir árin 2017-2019. Héraðssaksóknari hafnaði því hins vegar að höfða sakamál á hendur forsvarsmönnum fyrirtækisins þar sem embættið taldi verulegan vafa leika á því hvort umræddir reikningar væru tilhæfulausir. Skattrannsóknarstjóri felldi í kjölfarið niður réttarstöðu forsvarsmannanna sem grunaðir menn og eftir það snerist málið um endurákvörðun skattstofns fyrirtækisins.

Niðurstaða skattrannsóknarstjóra var að útgefnir sölureikningar í nafni þriggja einstaklinga á hendur fyrirtækinu ættu ekki við rök að styðjast og væru ekki hæfir sem grundvöllur innskatts og rekstrargjalda. Innskattur væri oftalinn um 31.803.625 króna og rekstrargjöld væru oftalin um 132.515.114 króna.

Látinn og óvinnufær

Við rannsókn málsins kom fram að einn þessara þriggja einstaklinga, hefði verið öryrki um árabil og verið í mikilli fíkniefnaneyslu á þeim tíma sem reikningar voru gefnir út í hans nafni. Hann hefði veitt öðrum einstaklingi sem nú er látinn, umboð gegn 100.000 króna greiðslu auk lyfja til þess að opna bankareikning. Sá einstaklingur hefði jafnframt stofnað virðisaukaskattsnúmer í hans nafni og gefið út sölureikninga án hans heimildar. Alls voru gefnir út sölureikningar í nafni þessa manns sem var öryrki og fíkniefnaneytandi að fjárhæð 36.441.947 króna.

Fóstursonur annars forsvarsmanna fyrirtækisins útbjó reikningana og andvirði þeirra var lagt inn á bankareikninga og tekið út jafnóðum í reiðufé af þeim manni sem nú er látinn.

Gefnir voru út 70 reikningar í nafni annars einstaklings af þessum þremur að fjárhæð 95.610.180 króna. Fyrirtækið lagði 97.001.351 krónur inn á reikninga þessa einstaklings sem tók féð út jafnóðum í reiðufé. Sagðist einstaklingurinn hafa verið í mikilli fíkniefnaneyslu á þessum tíma en samt getað unnið. Fóstursonurinn hafi útbúið rafræna reikninga fyrir hann en hann séð sjálfur um handskrifaða reikninga.

Loks voru gefnir út reikningar í nafni þess þriðja, af áðurnefndum þremur einstaklingum, að fjárhæð 32.266.614 krónur. Fjárhæðin var lögð inn á reikninga viðkomandi sem tók þá út jafnóðum í reiðufé. Sagðist viðkomandi hafa hluta ársins 2019, þegar reikningarnir voru gefnir út, hafa verið í óreglu en myndi ekki nákvæmlega hvenær það var.

Unnu víst

Forsvarsmenn fyrirtækisins vildu hins vegar meina að þremenningarnir hefðu svo sannarlega allir skilað sinni vinnu fyrir fyrtækið, í samræmi við hina útgefnu reikninga, og skattrannsóknarstjóri hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni við að skera úr um það. Sögðust þeir ekki geta borið ábyrgð á því ef þremenningarnir hafi ekki skilað virðisaukaskatti, af þeirri þjónustu sem þeir seldu fyrirtækinu, til ríkisins. Það væri röng og ólögmæt ályktun að reikningarnir hafi verið tilhæfulausir.

Opinber gjöld og virðisaukaskattur fyrirtækisins voru á endanum endurákvörðuð á þeim grundvelli að ekki væri hægt að fallast á innskatt frá umræddum þremur undirverktökum og ekki heldur fallist á að um væri að ræða frádráttarbæran rekstrarkostnað í skattskilum tekjuskatts. Þessi úrskurður skattrannsóknarstjóra var kærður til yfirskattanefndar sem staðfesti hann.

Fyrir dómi rökstuddi lögmaður íslenska ríksins meðal annars úrskurð skattrannsóknarstjóra með því að einn af þremenningunum hefði sagst ekkert hafa unnið á þeim tíma sem reikningarnir, sem gefnir voru út í hans nafni, náðu yfir og hefði ekkert kannast við reikningana. Hinir tveir sögðust hafa skilað vinnu fyrir fyrirtækið, í samræmi við reikningana, en skattrannsóknarstjóri færði ítarleg rök fyrir því að gögn gæfu annað til kynna. Virðisaukaskatti hafi ekki verið skilað, bókhald ekki haldið og ekkert benti til að tvímenningarnir hafi haft einhvern kostnað af sinni meintu verktakastarfsemi, sem þeir sögðust hafa staðið í. Litlar upplýsingar hafi komið fram í gögnum um þá vinnu sem tvímenningarnir segðust hafa unnið í verktöku fyrir fyrirtækið.

Ekki fordómar

Í niðurstöðu Héraðsdóms Reykjavíkur er ekki tekið undir með forsvarsmönnum fyrirtækisins um að skattrannsóknarstjóri hafi sýnt af sér hlutdrægni og fordóma með því að láta þau orð falla að ljóst sé að einstaklingur sem sé í mikilli fíkniefnaneyslu sé hreinlega ekki í standi til að standa fyrir umfangsmiklum atvinnurekstri og að tíðast sé fólk sem þannig sé ástatt um eignalaust og láti sér afleiðingar í léttu rúmi liggja.

Dómurinn segir þetta ekki fordóma heldur lýsingu á þeim erfiðleikum sem fólk í fíkniefnaneyslu eigi við að etja og valdi ummælin ekki vanhæfi skattrannsóknarstjóra í málinu eins og lögmaður fyrirtækisins hafði krafist. Dómurinn segir ekkert benda til að skattrannsóknarstjóri hafi ekki sinnt rannsóknarskyldu sinni eða ekki virt andmælarétt. Í úrskurði skattrannsóknarstjóra sé tekið fram að þó að tilteknir reikningar séu tilhæfulausir feli það ekki í sér að engin verðmæti hafi verið afhent, heldur einfaldlega að útgefandi reikninganna hafi ekki látið þau í té. Þar af leiðandi sé rökstuðningi í úrskurðinum ekki ábótavant eins og forsvarsmenn fyrirtækisins héldu fram.

Þekkt

Í niðurstöðu skattrannsóknarstjóra komi fram að þau verk sem þremenningarnir rukkuðu fyrir hafi sannarlega verið unnin en það útiloki ekki að reikningarnir, sem gefnir hafi verið út í þeirra nafni séu tilhæfulausir. Þótt að þremenningarnir, sem hafi verið í virkri fíkniefnaneyslu á þeim tíma sem verkin voru unnin, hafi að einhverju leyti komið að vinnu fyrir fyrirtækið útiloki það heldur ekki að reikningarnir teljist tilhæfulausir.

Héraðsdómur segir ljóst að þeir sem stýrðu fyrirtækinu hefðu verið meðvitaðir um að þremenningarnir hafi allir átt við alvarlegan fíknivanda að etja. Það sé ótrúverðugt að þeir hafi ráðið við að halda úti verktakastarfsemi í því umfangi sem hinir umræddu reikningar beri með sér.

Dómurinn vísar enn fremur til þess að úrskurður yfirskattanefndar sem staðfesti úrskurð skattrannsóknarstjóra byggi á því að það sé þekkt aðferð í verktakastarfsemi að láta einstaklinga í viðkvæmri stöðu vera leppa í viðskiptum sem fengju sem slíkir greiðslur inn á bankareikninga samkvæmt útgefnum sölureikningum án þess þó að viðkomandi einstaklingar hafi með höndum eiginlega verktakastarfsemi, en fjármunirnir væru síðan teknir út í reiðufé og nýttir til að greiða laun sem ekki væru gefin upp til skatts.

Kerfisbundið

Það sem einkenndi slík viðskipti væri ef viðkomandi einstaklingar sinntu ekki þeim skyldum sem lög leggi á rekstraraðila, bæru engan kostnað af þeirri starfsemi sem látið sé í veðri vaka að þeir hefðu með höndum og væru í þannig ástandi að verulegur vafi væri á því að þeir gætu valdið því að sinna umræddri starfsemi. Það að margir aðilar sem svona væri ástatt fyrir kæmu fram sem undirverktakar í þjónustu ákveðins aðila fæli í sér ákveðið munstur sem benti til kerfisbundinna undanskota.

Ljóst sé að þremenningarnir hafi allir verið fíkniefnaneytendur, einn þeirra óvinnufær og sá og annar hinna tveggja hafi aldrei séð reikningana fyrr en þeir voru bornir undir þá. Þremenningarnir hafi ekki haft neinn kostnað af hinni meintu verktakatarfsemi, ekki haldið bókhald, ekki skilað vinnu- og tímaskýrslum og engin verktilboð af þeirra hálfu fundist. Reikningarnir hafi verið greiddir inn á bankareikninga þessara þriggja einstaklinga og fjármunirnir samtímis teknir út í reiðufé. Til viðbótar þessu hafi fóstursonur fyrirsvarsmanns stefnanda annast reikningsgerð og í einhverjum tilvikum skilað inn virðisaukaskattsskýrslum að öllu leyti eða að hluta fyrir tvo af þessum einstaklingum.

Héraðsdómur fellst því ekki á að fella beri úrskurði skattrannsóknarstjóra og yfirskattanefndar, um að umræddir reikningar hafi verið tilhæfulausir og geti því ekki talist grundvöllur frádráttar frá tekju- og virðisaukaskatti, úr gildi.

 

 

 

 

 

 

 

 

 

 

#fíkniefnaneytenda #reikningar #sagðir #tilhæfulausir #þekktri


Upprunaleg slóð:
https://www.dv.is/frettir/2026/4/19/sagdir-hafa-beitt-thekktri-brellu-tilhaefulausir-reikningar-gefnir-ut-nafni-fikniefnaneytenda/

📰 Aðrar fréttir

„Ég elska verðbólgu…“
📅 11.06.2026 👁️ 0
„Ég elska verðbólgu…“
Í Heimsglugganum á Morgunvaktinni á Rás 1 var fjallað um klípuna sem Trump hefur komið sér í þar sem hvorki gengur né rekur að fá Írani til að semja u...
Rýmdu skrif­stofur Hag­kaupa vegna hótunar - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Rýmdu skrif­stofur Hag­kaupa vegna hótunar - Vísir
Sigurður Reynaldsson framkvæmdastjóri Hagkaupa staðfestir þetta í samtali við fréttastofu. Hann gat ekki sagt til um það hvers eðlis hótunin var. Það ...
Hver er Íslendingurinn og eiginmaðurinn sem átti að eignast Vélfag
📅 11.06.2026 👁️ 0
Hver er Íslendingurinn og eiginmaðurinn sem átti að eignast Vélfag
Hver er Íslendingurinn og eiginmaðurinn sem átti að eignast Vélfag Fréttin11. júní 2026InnlendarLeave a Comment Ivan Nicolai Kaufmann. Ivan Nicolai Ka...
Gerði alvarlega atlögu að tveimur mönnum með hnífi á Mónakó
📅 11.06.2026 👁️ 0
Gerði alvarlega atlögu að tveimur mönnum með hnífi á Mónakó
Lögreglan handtók mann í gærkvöld sem er grunaður um að hafa stungið tvo með hnífi í spilasalnum Mónakó.Þetta staðfestir Guðmundur Ásgeirsson lögreglu...
Cramlington crash police officer, 19, dies in hospital
📅 11.06.2026 👁️ 0
Cramlington crash police officer, 19, dies in hospital
A 19-year-old police officer hurt in a crash while responding to a report of a separate collision has died of her injuries.Northumbria Police said Jes...
Segir af sér vegna fjárskorts í varnarmálum
📅 11.06.2026 👁️ 0
Segir af sér vegna fjárskorts í varnarmálum
John Healey sagði í dag af sér sem varnarmálaráðherra Bretlands. Hann segir að auknar fjárveitingar þurfi til að byggja upp hernaðargetu breska hersin...
Vara við minni hagvexti og vaxandi verðbólgu
📅 11.06.2026 👁️ 0
Vara við minni hagvexti og vaxandi verðbólgu
Stjórnvöld hafa hert taumhald í hagstjórn með viðeigandi hætti til að bregðast við aukinni innlendri eftirspurn. Þrátt fyrir það hafa launahækkanir ve...
Ráð­stöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Ráð­stöfun Baldurs til Eyja brjóti gegn samningi - Vísir
Ferðaþjónustuaðilar og íbúar á sunnanverðum Vestfjörðum og á Breiðafjarðareyjum hafa viðrað óánægju sína með að Breiðafjarðarferjan Baldur verði tekin...
Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Samkeppniseftirlitið dragi upp skakka mynd af matvælaverðinu - Vísir
Samtök Iðnaðarins benda á að laun hafi hækkað umfram matvælaverð og að skjalið dragi upp skakka mynd af verðinu. Þá fjöllum við um ólgu innan Samfylki...
Jeffrey Donaldson: Former DUP leader takes the stand in sex abuse trial
📅 11.06.2026 👁️ 0
Jeffrey Donaldson: Former DUP leader takes the stand in sex abuse trial
Former DUP leader Sir Jeffrey Donaldson has taken the witness stand at his trial on sex abuse charges.He was called to give evidence by his defence ba...
Brúin yfir Djúpa­fjörð boðin út - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Brúin yfir Djúpa­fjörð boðin út - Vísir
Útboðsgögn eru aðgengileg á vef þeirra en útboðið stendur til klukkan 14, 14. júlí á þessu ári. Í tilkynningu Vegagerðarinnar kemur fram að brúin verð...
Varnar­mála­ráð­herra Breta segir af sér - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Varnar­mála­ráð­herra Breta segir af sér - Vísir
Varnarmálaráðherrann greinir frá þessu í færslu á X og birtir þar bréf stílað á forsætisráðherrann þar sem hann segist finna engra annarra kosta völ e...
Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Telja 200.000 hafa látið lífið af völdum hita í Evrópu - Vísir
Til viðbótar við þá sem týndu lífi hafa milljónir Evrópubúa þjáðst líkamlega og andlega af völdum hitabylgja á síðustu árum. Henri Kluge, yfirmaður Al...
Boðar hallalaus fjárlög „sama hvað það kostar“
📅 11.06.2026 👁️ 0
Boðar hallalaus fjárlög „sama hvað það kostar“
Ráðherrar ríkisstjórnarinnar og þingmenn stjórnarandstöðunnar tókust á um það á Alþingi í dag hvort uppfæra þyrfti fjármálaáætlun vegna brostinna fors...
Björn Þorláksson segist hafa verið skammaður fyrir að taka viðtal við Margréti Friðriksdóttur
📅 11.06.2026 👁️ 0
Björn Þorláksson segist hafa verið skammaður fyrir að taka viðtal við Margréti Friðriksdóttur
Björn Þorláksson, blaðamaður á Samstöðinni, segir að viðtal hans við Margréti Friðriksdóttur í þættinum Rauða borðinu hafi vakið með ólíkindum ólík vi...
Íris ósátt: „Það á að mismuna börnum eftir afmælisdegi“ - DV
📅 11.06.2026 👁️ 0
Íris ósátt: „Það á að mismuna börnum eftir afmælisdegi“ - DV
Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, bendir á að reglur um aldurslágmark barna sem mega starfa í vinnuskólanum í Vestmannaeyjabæ leiði til þ...
Her­mann Nökkvi verður að­stoðar­maður Vil­hjálms Árna­sonar - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Her­mann Nökkvi verður að­stoðar­maður Vil­hjálms Árna­sonar - Vísir
Hermann greinir frá vistaskiptunum í færslu á samfélagsmiðlum. Þar segir hann að áætlunin hafi verið að hefja aftur störf á Morgunblaðinu eftir að haf...
Strictly Come Dancing: Dani Dyer returns a year after pulling out with broken ankle
📅 11.06.2026 👁️ 0
Strictly Come Dancing: Dani Dyer returns a year after pulling out with broken ankle
Dani Dyer has joined the line-up for Strictly Come Dancing, a year after she was forced to withdraw from the BBC show when she broke her ankle.The med...
Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Hætta við að lækka sakhæfisaldur í þrettán ár - Vísir
Sænska þingið átti að greiða atkvæði um frumvarp minnihlutastjórnar Ulfs Kristersson, forsætisráðherra, um að lækka tímabundið sakhæfisaldur úr fimmtá...
Eyþór Eðvarðsson skrifar: ETS fyrir hugsandi einstaklinga - DV
📅 11.06.2026 👁️ 0
Eyþór Eðvarðsson skrifar: ETS fyrir hugsandi einstaklinga - DV
Ef þú trúir einhverju af eftirfarandi er líklega betra að hætta lestrinum núna: að loftslagsvísindamenn hafi ekki áttað sig á því að áður hafa komið h...
Harbour rýfur þögnina - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Harbour rýfur þögnina - Vísir
David Harbour er þekktastur fyrir að leika Jim Hopper í Stranger Things (2016-25) og Rauða verndarann í nokkrum Marvel-myndum. Um þessar mundir leikur...
Sorg­legt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Sorg­legt hve fáir Kópavogsbúar hafi skrifað undir listann - Vísir
„Það er sorglegt hve illa er tekið undir þennan undirskriftalista,“ skrifar Kolbeinn Reginsson fyrrverandi bæjarfulltrúi í Facebook hópinn Vinir Hamra...
The Canary Islands sees highest number of new homes built in 14 years
📅 11.06.2026 👁️ 0
The Canary Islands sees highest number of new homes built in 14 years
The Canary Islands recorded their strongest year for private home builds in 14 years during 2025, but experts warn that construction levels remain wel...
Framleiðendur vilja lægri virðisaukaskatt á matvæli
📅 11.06.2026 👁️ 0
Framleiðendur vilja lægri virðisaukaskatt á matvæli
Verkefnastjóri hjá Samtökum fyrirtækja í landbúnaði segir marga þætti koma til skoðunar þegar horft sé til hækkunar á matvælaverði en verð á matvöru á...
Lifetime cover and age of enrolment: what you should look for in a health insurance policy
📅 11.06.2026 👁️ 0
Lifetime cover and age of enrolment: what you should look for in a health insurance policy
Age often influences the conditions of medical insurance policies. For this reason, when choosing private health insurance, it is essential to review ...
Mímir kallar eftir samúð og tillitssemi við konungsfjölskylduna - „Ekkert af þessu varðar almenning“ - DV
📅 11.06.2026 👁️ 0
Mímir kallar eftir samúð og tillitssemi við konungsfjölskylduna - „Ekkert af þessu varðar almenning“ - DV
Íslensk-norski þingmaðurinn Mímir Kristjánsson kallar eftir því að norskir fjölmiðlar sýni konungsfjölskyldunni þar í landi meiri tillitssemi og samúð...
Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“ - DV
📅 11.06.2026 👁️ 0
Áhrifavaldur hraunar yfir Ísland og fær það óþvegið: „Langversti ferðamannastaður sem ég hef heimsótt á ævinni“ - DV
Áhrifavaldur með tæplega 12 þúsund fylgjendur á Instagram hefur vakið athygli fyrir myndband þar sem hann fer býsna hörðum orðum um Ísland. Margir Ísl...
JD Vance says Netanyahu 'has got some things wrong'
📅 11.06.2026 👁️ 0
JD Vance says Netanyahu 'has got some things wrong'
Israeli Prime Minister Benjamin Netanyahu has "certainly gotten some things wrong", US Vice-President JD Vance has said, as ties between the two partn...
Segja afstöðu stjórnvalda gegn enduruppbyggingu í Grindavík fjandsamlega
📅 11.06.2026 👁️ 0
Segja afstöðu stjórnvalda gegn enduruppbyggingu í Grindavík fjandsamlega
Járngerður, hagsmunasamtök íbúa um framtíð og endurreisn Grindavíkur, tekur undir með nýkjörinni bæjarstjórn Grindavíkur þar sem bæjarstjórn segir afs...
Formaður, varaformaður og ritarar Sjálfstæðisflokksins hætt á þingi
📅 11.06.2026 👁️ 0
Formaður, varaformaður og ritarar Sjálfstæðisflokksins hætt á þingi
Formaður, varaformaður og ritarar Sjálfstæðisflokksins hætt á þingi Einu og hálfu ári frá al­þing­is­kosn­ing­um hafa fjór­ir áhrifa­menn úr Sjálf­stæ...
Hætta við að leyfa fangelsun 13 ára barna
📅 11.06.2026 👁️ 0
Hætta við að leyfa fangelsun 13 ára barna
Umdeild tillaga sænsku ríkisstjórnarinnar um að heimila að 13 ára börn verði sett í fangelsi hefur verið dregin til baka. Gunnar Strömmer dómsmálaráðh...
Serena Williams' Queen's run over as injured Victoria Mboko withdraws
📅 11.06.2026 👁️ 0
Serena Williams' Queen's run over as injured Victoria Mboko withdraws
Serena Williams' doubles campaign at Queen's is curtailed as her playing partner Victoria Mboko withdraws with a left knee injury.
Leggja til að mestu gljúfur­kerfi lands­grunnsins verði vernduð - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 0
Leggja til að mestu gljúfur­kerfi lands­grunnsins verði vernduð - Vísir
Hafró leggur til að landgrunnshlíðar Suðurlands frá Háfadjúpi í vestri til Papagrunns í austri verði friðlýstar til þess að koma í veg fyrir hnignun b...
Pope Leo visits Canary Islands to highlight perilous journeys of migrants
📅 11.06.2026 👁️ 1
Pope Leo visits Canary Islands to highlight perilous journeys of migrants
Bakary Jaiju was 19 when he climbed into a wooden boat in the Gambia and set out for Europe. He would be at sea for seven frightening days as his supp...
Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 1
Tvær vikur á braut um jörðu og síðan til tunglsins - Vísir
Þá er hún nauðsynleg fyrir fyrstu mönnuðu geimferðina til yfirborðs tunglsins frá árinu 1972. Randy Bresnik mun leiða ferðina. Með honum fara einnig þ...
Swae Lee heldur tón­leika á Ís­landi - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 1
Swae Lee heldur tón­leika á Ís­landi - Vísir
Swae Lee tilkynnti í dag um Evróputúr sinn í kjölfarið á útgáfu breiðskífunnar Same Difference sem kom út í apríl. Á túrnum kemur Lee fram í Varsjá í ...
„Ljóst að deilunni er ekki lokið“ - Vísir
📅 11.06.2026 👁️ 1
„Ljóst að deilunni er ekki lokið“ - Vísir
Landvernd, Náttúruverndarsamtök Íslands, Náttúrugrið, Verndarsjóður villtra laxastofna og Íslenski náttúruverndarsjóðurinn gáfu frá sér tilkynningu í ...
Bresk stjórnvöld boða stórauknar takmarkanir á samfélagsmiðlum eftir óeirðirnar í Belfast
📅 11.06.2026 👁️ 2
Bresk stjórnvöld boða stórauknar takmarkanir á samfélagsmiðlum eftir óeirðirnar í Belfast
Breska ríkisstjórnin hyggst veita fjölmiðlaeftirlitinu Ofcom auknar heimildir til að grípa inn í dreifingu efnis á samfélagsmiðlum þegar talið er að „...
Skattfrelsi erlendra fjárfesta
📅 11.06.2026 👁️ 1
Skattfrelsi erlendra fjárfesta
Skattfrelsi erlendra fjárfesta Í al­þjóð­legri skatt­lagn­ingu gild­ir að ríki skatt­leggi heim­il­is­fasta og tekj­ur sem þar verða til. Dap­ur­legt ...
England midfielder Declan Rice on his sunburn and World Cup heat
📅 11.06.2026 👁️ 0
England midfielder Declan Rice on his sunburn and World Cup heat
Declan Rice says he and his England teammates are still getting used to the heat in the US, as he admitted he got a telling off from his mum for turni...
Overturned lorry caused major traffic jams on Tenerife’s TF-1 motorway
📅 11.06.2026 👁️ 1
Overturned lorry caused major traffic jams on Tenerife’s TF-1 motorway
Thousands of drivers faced lengthy delays on Tenerife’s TF-1 motorway yesterday after an overturned lorry brought traffic heading towards Santa Cruz t...
Ógnvekjandi upplifun Jóns Gnarr á Grænlandi: „Aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta“ - DV
📅 11.06.2026 👁️ 2
Ógnvekjandi upplifun Jóns Gnarr á Grænlandi: „Aðeins einu sinni áður upplifað nokkuð í líkingu við þetta“ - DV
Jón Gnarr, þingmaður Viðreisnar, er nú staddur á Grænlandi í opinberum erindagjörðum sem þingmaður og formaður Vestnorræna ráðsins. Jón kom til Grænla...
Gamalt fólk fær gervigreindardúkkur
📅 11.06.2026 👁️ 1
Gamalt fólk fær gervigreindardúkkur
Gamalt fólk fær gervigreindardúkkur Einmana, aldr­að fólk í Suð­ur-Kór­eu fær svo­kall­að­ar „umönn­un­ar­dúkk­ur“ frá rík­inu. Helm­ing­ur íbúa er yf...
Afkoma ríkisins versnar milli ára
📅 11.06.2026 👁️ 1
Afkoma ríkisins versnar milli ára
Afkoma hins opinbera hefur versnað milli ára samkvæmt bráðabirgðamatiHagstofunnar á afkomunni á fyrsta ársfjórðungi.Hallinn hjá hinu opinbera nam 23,7...
Nearly 3,000 patients a day face corridor care in NHS
📅 11.06.2026 👁️ 1
Nearly 3,000 patients a day face corridor care in NHS
Nearly 3,000 patients a day had to be cared for in hospital corridors or make-shift treatment areas rather in a bed on a ward in England last month, f...
Samfylkingin logar stafnanna á milli: „Við krefjumst þess að framkvæmd laganna verði stöðvuð“ - DV
📅 11.06.2026 👁️ 2
Samfylkingin logar stafnanna á milli: „Við krefjumst þess að framkvæmd laganna verði stöðvuð“ - DV
Stór hópur í Samfylkingunni, eða óflokksbundið jafnaðarfólk, hefur skrifað opið bréf þar sem nýju lögunum um brottfararstöð er mótmælt og krafist að f...
Öfund margra í Laugardalnum til sölu
📅 11.06.2026 👁️ 1
Öfund margra í Laugardalnum til sölu
Öfund margra í Laugardalnum til sölu Njörvasund 13 Glæsilegt einbýlishús við Njörvasund 13 í Reykjavík er komið á sölu. Um er að ræða sérhannaða eign ...
Segja viðræður þýðingarlausar í skugga árása
📅 11.06.2026 👁️ 2
Segja viðræður þýðingarlausar í skugga árása
Þrír indverskir farmenn særðust þegar bandaríski flotinn skaut á flutningaskip sem þeir voru á úti fyrir ströndum Óman. Siglingaráðherra Indlands grei...
Þrír Indverjar féllu í árás Bandaríkjahers
📅 11.06.2026 👁️ 1
Þrír Indverjar féllu í árás Bandaríkjahers
Íranar segjast hafa lokað alfarið fyrir skipaumferð um Hormússund. Stofnun sem Íranar settu á fót til að stýra umferð og innheimta gjöld sagði í dag a...
Íranar segjast hafa lokað Hormússundi
📅 11.06.2026 👁️ 0
Íranar segjast hafa lokað Hormússundi
Vaktin heldur áfram. Ég heiti Mist Grönvold og er hér með tekin við af Brynjólfi Þór.Giorgia Meloni, forsætisráðherra Ítalíu, segir brýnt að Evrópusam...