Sagði af sér eftir skilaboð frá félagsmálaráðuneytinu
Félagsmálaráðuneytið sagði formanni endurhæfingarráðs að boða ekki til frekari funda. Hann baðst lausnar í kjölfarið. Ráðuneyti Ölmu Möller og Ingu Sæland hafa ekki náð saman um hlutverk ráðsins, sem átti að tryggja faglega ráðgjöf og samþættingu endurhæfingarmála á milli ráðuneyta.
Arnór Víkingsson, læknir og formaður endurhæfingarráðs, fékk skilaboð frá félagsmálaráðuneytinu síðasta haust um að boða ekki til frekari funda hjá ráðinu.
„Ráðið var búið að vera starfandi í þrjú ár en í fyrrahaust komu skilaboð frá ráðuneytinu um að hefja ekki störf,“ segir Arnór. „Þrátt fyrir eftirgrennslan mína um ástæður og framhaldið fékk ég engin svör og ég sendi því afsagnarbeiðni í lok síðasta árs.“
Endurhæfingarráði er ætlað að vera heilbrigðisráðherra og félagsmálaráðherra til ráðgjafar við faglega stefnumörkun á sviði endurhæfingar og hvað varðar skipulag þjónustu til …