Sá einstaklingur sem segist bera ábyrgð á því að hafa málað yfir inngildingarfána við Grafarvogskirkju með litum íslenska fánans hefur sent Nútímanum yfirlýsingu þar sem hann tekur ábyrgð á gjörningnum og útskýrir ástæður sínar.
Fyrr í dag greindi Nútíminn fyrstur fjölmiðla frá því að málað hefði verið yfir inngildingarfánann við Grafarvogskirkju. Málið vakti í kjölfarið mikla athygli og var síðar greint frá því af öðrum fjölmiðlum. Lögreglan hefur staðfest að rannsókn standi yfir og að málið sé rannsakað sem meintur hatursglæpur.
Íslenski fáninn málaður yfir inngildandi framfarafánann við Grafarvogskirkju
Segir markmiðið hafa verið að vekja umræðu
Í yfirlýsingu sinni hafnar maðurinn því að gjörningurinn hafi verið sprottinn af hatri í garð samkynhneigðra eða annarra hópa. Hann segir markmið sitt hafa verið að vekja umræðu um stöðu þjóðfánans, þjóðernisvitund og það sem hann kallar pólitískan réttrúnað.
Hann segir gjörninginn hafa verið „myndlistargjörning“ sem hafi verið hugsaður sem prófsteinn á viðbrögð samfélagsins og fullyrðir að öll viðbrögð hafi orðið eins og hann hafi gert ráð fyrir.
Gagnrýnir tvöfalt siðferði í umræðunni
Jafnframt gagnrýnir hann að íslensku fánalitirnir séu, að hans mati, túlkaðir sem tákn um hatur á sama tíma og regnbogafáninn njóti sérstakrar verndar í opinberri umræðu. Þá segir hann að sér finnist óeðlilegt að hann hafi þurft að framkvæma gjörninginn í skjóli myrkurs en að aðrir geti sett fram pólitísk eða samfélagsleg skilaboð á kirkjunni án sambærilegrar gagnrýni.
Að lokum segist hann bíða þess að lögreglan hafi samband vegna rannsóknarinnar og ítrekar að hann hafi ekki borið hatur í brjósti heldur viljað koma af stað umræðu.
Yfirlýsing hans fer hér á eftir í heild:
„Eitt eilífðar smáblóm með titrandi tár.
Það er áhugavert að fylgjast með umræðunni eftir myndlistar gjörningin sem ég stóð fyrir.
Mér fannst hann fullkominn prófsteinn til þess að mæla hvar samfélagið er statt þessa stundina.
Ég hafði lengi hugsað þennan gjörning í bak og fyrir og hvaða áhrif hann hefði og hver viðbrögðin yrðu, og nákvæmlega allar sviðsmyndir sem ég spáði rættust.
Hér úthrópar góðafólkið um að íslensku fánalitirnir séu orðið tákn um hatur og allt það slæma sem á sér stað í heiminum og að um skemmdarverk sé að ræða. En hér var ekki einu sinni um hinn eiginlega íslenska fána að ræða heldur einungis liti hans og hlutföll.
En við þurfum þá að staldra við og spyrja okkur öll grundvallarspurningar, af hverju samfélagið er komið á þann stað að við erum búin að gleyma hver við erum sem þjóð og hvað það er sem tengir okkur öll saman.
Ég hef ekkert á móti samkynhneigðu fólki frekar en öðru fólki. En þessi gjörningur afhjúpar með öllu þankagang þess hóps sem finnst hann vera undir árásum sem er alls ekki tilfellið, einfaldlega stekkur fólk strax til og vill verða fórnalamb á núll einni. Hér er einfaldlega verið að skipta einum lit út fyrir annan á einum af þessum fjölmörgu stöðum þar sem regnbogalitirnir eru og þreyta samfélagsumræðunni einhverju besta prófi sem um getur. Hér er ekkert fórnarlamb.
Auðvitað er það galin staða að ef maður vill fá íslensku þjóðfána litina á kirkjuna sem ég hef sótt í frá því að ég var barn í sunnudagaskóla og tekið þátt í starfi hennar og verið mér á tímamótum í lífinu, að þá þurfi ég að koma eins og glæpamaður í skjóli myrkurs og mála í flýti og ekki getað gefið mér tímann, aðstæðurnar eða virðinguna sem svona verkefni á skilið.
En á sama tíma má biskup Íslands gera nákvæmlega það sem passar hennar persónulega erindi sama hvað öðrum sóknarbörnum finnst.
Af hverju eru blátt, rautt og hvítt orðið glæpur í dag, en regnbogalitir í lagi?
Við búum orðið í landi þar sem fólk má ekki hafa skoðanir sem fara á mis við aðrar skoðanir án þess að vera rökkuð niður. Þessi pólitíski réttrúnaður sem er í boði góða fólksins þarf að fara í gagngera endurskoðun ef við ætlum að geta sameinast sem þjóð aftur að sameiginlegu markmiði um velferð.
Ég ber ekkert hatur í hjarta mér heldur einungis ást á íslenskri grundu og von um bjarta framtíð fyrir sjálfstæða íslenska þjóð um ókomin ár.
Ég sem myndlistarmaður var einn þarna að verki þó svo að ég hafi fengið aðstoð.
Ég bíð nú rólegur heima hjá mér eftir að lögreglan handtaki mig fyrir grafalvarlegan hatursglæp og geri mig þar að píslarvotti.
Sálmur 23:1.“**