Við veltum upp þeim möguleikum sem eru í stöðunni þar og förum svo einnig yfir úrslitin á landsbyggðinni þar sem kosið var í sveitarstjórnir.
Þá heyrum við í framkvæmdastjóra Maskínu sem segir að skoðanakannanir hafi verið nokkuð nálægt úrslitunum að þessu sinni.
Einnig fjöllum við um afgreiðslu utanríkismálanefndar Alþingis á þingsályktunartillögu um þjóðaratvæðagreiðsluna sem fram á að fara í haust.
Í sportinu fjöllum við svo um íslandsmeistaratitilinn í körfubolta kvenna sem fór til Njarðvíkur og hitum upp fyrir karlaleikinn sem fram fer í kvöld.