Við hittum einnig Áslaugu Örnu sem mætti aftur á Alþingi í dag en kvaddi jafnóðum, sjáum myndir af fyrstu vindmyllunni sem er risin í Vaðölduveri og hittum Hjallastefnufólk sem fagnaði í dag stórum áfanga og nýjum skóla.
Þá kynnir Kristján Már Unnarsson sér eftirlitskerfið á Keflavíkurflugvelli sem er heldur betur öflugt og við verðum í beinni með leikhópnum Lottu sem frumsýnir nýtt leikrit í dag – tuttugasta sumarið í röð.
Í Sportpakkanum hittum við meðal annars Andreu Rut sem varð bikarmeistari í Belgíu á sínu fyrsta tímabili í atvinnumennsku og í Íslandi í dag hittum við tvo rakara sem lýsa mikilli og ánægjulegri aðsókn í fagið.
Þetta og margt fleira á samtengdum rásum Sýnar, Vísis og Bylgjunnar klukkan 18:30.