Bresk snekkja tilkynnti í dag um að rússneskt herskip, Admiral Grigorovich, hefði skotið viðvörunarskotum nærri sér í Ermarsundi. Breska varnarmálaráðuneytið hefur tilkynnt að atvikið sé til skoðunar.
Atvikið átti sér stað skömmu fyrir hádegi í dag að staðartíma. Snekkjan var á siglingu milli Wight-eyju og Normandí. Skotin höfnuðu um 450 metra frá snekkjunni og virtist ekki beint að henni. Hún var ekki í breskri lögsögu.
Þetta er til marks um aukna spennu milli Breta og Rússa. Aðeins eru tveir dagar síðan breskir hermenn tóku yfir flutningaskipið Smyrtos, sem er hluti af rússneska skuggaflotanum, og handtóku skipstjórann. Skipið er hluti af rússneska skuggaflotanum þó að það sigli undir fána Kamerún.
Merki um áhyggjur Rússa
Sjóherinn hafði fylgst með rússneska herskipinu í nokkurn tíma þegar atvikið átti sér stað. Skipið hefur siglt reglulega nærri Bretlandi undanfarna mánuði og hefur haft það hlutverk að fylgja skipum rússneska skuggaflotans.
Michael Clarke, greinandi hjá Sky News, segir að ekkert þessu líkt hafi gerst nýlega. Hann leiðir að því líkum að þessi viðvörunarskot gefi til kynna að Rússar hafi áhyggjur af aukinni veru breska sjóhersins til að stöðva skip þeirra.