Rússneska njósnaskipið Yuri Ivanov hefur undanfarna daga siglt um íslenska efnahagslögsögu norður og vestur af landinu.
Í tilkynningu frá utanríkisráðuneytinu segir að Landhelgisgæsla Íslands, í nánu samráði við varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins og herstjórnir Atlantshafsbandalagsins, fylgist grannt með ferðum skipsins.
Skipið er þó ekki innan 12 mílna landhelgi Íslands en í júnímánuði var skipið á svipuðum slóðum og var ferðum þess þá sem nú fylgt eftir af Landhelgisgæslunni.
Öryggi sjófarenda ekki ógnað
Yuri Ivanov starfar yfirleitt á alþjóðlegum hafsvæðum, þar sem það safnar upplýsingum án þess að brjóta alþjóðalög.
Skipið er með takmarkaðan vopnabúnað og sinnir fyrst og fremst njósnum og upplýsingaöflun, en engin merki eru um að neðansjávarinnviðum eða öryggi sjófarenda stafi ógn af skipinu samkvæmt tilkynningu ráðuneytisins.