Íslenska ríkinu hefur verið gert að greiða milljón í miskabætur vegna óhóflegs dráttar og alvarlegra mistaka við rannsókn á líkamsárás sem átti sér stað árið 2020. Að mati Héraðsdóms Reykjavíkur báru vinnubrögð lögreglunnar vott um skort á skipulagi, stjórnunarvanda og skeytingarleysi gagnvart mikilvægum hagsmunum þolanda árásarinnar.
Ríkið greiðir milljón vegna „ámælisverðs skeytingarleysis“ lögreglu