Reykholtsmálið: Kannast ekki við að hafa sent skilaboð um hníf, barnaníðsefni og sjálfsmorð

Reykholtsmálið: Kannast ekki við að hafa sent skilaboð um hníf, barnaníðsefni og sjálfsmorð

Reykholtsmálið: Kannast ekki við að hafa sent skilaboð um hníf, barnaníðsefni og sjálfsmorð

Aðalmeðferð í Reykholtsmálinu hélt áfram í Héraðsdómi Suðurlands í dag. Hún hófst í gær þegar spilaðar voru upptökur úr síma Andra Más Mortensens Birgissonar. Hann er einn af sex sem eru ákærð fyrir að svipta mann frelsi sínu í Reykholti í apríl 2024, kúga af honum fé og beita margþættu ofbeldi.

Upptökurnar voru alls um þrjár klukkustundir og ná yfir um vikutímabil.

Mennirnir tveir sem taldir eru hafa farið með Andra Má í Reykholt á heimili brotaþola gáfu skýrslu fyrir dómi í morgun. Þeim er gefið að sök að hafa svipt manninn frelsi sínu og beitt hann ofbeldi.

Andri sagði á upptökunum sem spilaðar voru í gær að mennirnir hafi orðið stressaðir og skilið hann eftir einan með brotaþola.

Ætlaði bara að lána Andra bíl en ákvað svo að fara með

Sá sem var fyrri til að gefa skýrslu í dag er meðal annars gefið að sök að hafa ráðist að brotaþola með höggum og spörkum. Hann lýsti því fyrir dómi að hann hafi upphaflega bara ætlað að lána Andra bíl umrætt kvöld.

Þegar hann hafi komið á staðinn hafi Andri og unnusta hans hins vegar lýst því að brotaþoli skuldaði leigu og hefði verið ógnandi við fjölskyldu hennar. Hann hafi svo ákveðið að fara með Andra og hinum manninum til brotaþola því hann vildi vera viss um að hann fengi bílinn aftur þarna um nóttina.

Hlutirnir ekki eins og honum hefði verið sagt

Maðurinn lýsir atburðarrásinni þannig að hann hafi fljótt áttað sig á því að brotaþoli væri ekki á neinn hátt eins og parið hafði lýst honum – og augljóslega ekki ógnandi. Hann hafi einnig áttað sig á því að þetta snerist um eitthvað allt annað en leiguskuld út frá þeim gögnum Andri hafi verið að biðja um.

Hann segist sjálfur ekki hafa beitt manninn neinu ofbeldi og strax séð að hlutirnir hafi farið úr böndunum.

Andri hafi verið ógnandi við brotaþola en hann hafi þó ekki séð hann beita manninn ofbeldi. Hins vegar hafi hann heyrt Andra vera ógnandi og séð áverka á brotaþola. Hann hafi viljað fara og það hafi hinn maðurinn líka.

Þeir hafi gert það eftir að maðurinn slapp næstum frá þeim.

Ekki „stóri maðurinn“ sem brotaþoli lýsti

Brotaþoli lýsti hjá lögreglu að mennirnir hefðu verið þrír; Andri og tveir aðrir. Annar þeirra hefði verið „stór maður“. Maðurinn er um 190 cm á hæð.

Brotaþoli sagði þennan stóra mann hafa ruðst fyrst inn og kýlt sig og slegið. Sá hefði einnig veist að honum með höggum og spörkum.

Sakborningurinn segist ekki kannast við það og ekki vita hvern brotaþoli ætti við.

Ekki hann sem talaði um hníf, barnaníðsefni og sjálfsmorð á Signal

Þá voru borin undir hann skilaboð á síma Andra af forritinu Signal. Þar hafði maður með sama nafn og maðurinn ber skrifað; „Fæ gamla Range úr viðgerð seinna í dag, betra að fara á honum.“

Hann sé vinur Andra og ætli að taka með sér beittan teppahníf og hanska, koma honum fyrir í baðkari og skera af honum fötin „til að brjóta hann sem fyrst.“

Þá ætli hann að koma fyrir barnaníðsefni inn á tölvu viðkomandi og hringja á lögregluna svo að sá hafi ekki annan valkost en að gera það sem þeir komu fyrir. Annað hvort það eða að „sjálfsmorða hann„ eins og það er orðað.

Í hótelrekstri en kannaðist ekki við skilaboð um hótelherbergi

Maðurinn sagðist ekki kannast við þessi skilaboð, né önnur sem fundust á síma Andra. Hann notist bara við símtöl og Messenger, ekki Signal, sem er dulkóðað samskiptaforrit.

Í öðrum skilaboðum frá sama aðila er rætt um verð á hótelherbergi, sem maðurinn sagðist ekki heldur kannast við. Dómarinn spurði hann hvort hann hafi ekki verið í hótelrekstri á þessum tíma, sem hann játaði en vissi ekki til þess að hann hafi sent þessi skilaboð.

Hann ítrekaði að hafa ekki beitt neinu ofbeldi þetta kvöld og að hann myndi aldrei hafa það í sér eftir að hafa áttað sig á að brotaþoli væri ekki ógnandi eða ofbeldismaður – og eldri en hann hefði haldið.

Þvertekur fyrir að hafa farið á heimili brotaþola

Seinni maðurinn gaf talsvert styttri skýrslu fyrir dómi. Hann sagðist hreinlega ekki hafa verið með í þessari ferð Andra og hins mannsins. Hann hafi dvalið heima hjá Andra næturnar á undan og farið af stað með þeim í bílnum þarna á föstudagskvöldinu. Fjórir menn hafi verið í bílnum að honum meðtöldum.

Honum hafi þó fljótt hætt að lítast á blikuna og ákveðið að fara út úr bílnum í Mosfellsbæ og hinir haldið áfram.

Hans frásögn rímar ekki við frásögn Andra og hins mannsins sem segja báðir að þeir hafi verið þrír sem fóru af stað í bílnum, og á heimili brotaþola. Það kom aldrei fram hver fjórði maðurinn á að hafa verið en maðurinn hélt því statt og stöðugt fram að hann hafi ekki farið með þeim þetta kvöld.

Hann hafi reddað sér fari til baka, og endað hjá fjölskyldu sinni í Keflavík. Það passar hins vegar við það að fyrri maðurinn sagðist hafa skutlað honum á Suðurnes eftir að þeir forðuðu sér af heimili brotaþola þarna um nóttina.

Þriðji maðurinn sem gaf skýrslu fyrir dómi í dag er tengdafaðir Andra Más. Greint verður frá skýrslu hans í annarri grein.

#ekki #hafa #kannast #reykholtsmálið #við


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-08-18-reykholtsmalid-kannast-ekki-vid-ad-hafa-sent-skilabod-um-hnif-barnanidsefni-og-sjalfsmord-484254

📰 Aðrar fréttir

Tveir handteknir grunaður um skipulagningu hryðjuverks gegn gyðingum í Manchester
📅 03.10.2026 👁️ 0
Tveir handteknir grunaður um skipulagningu hryðjuverks gegn gyðingum í Manchester
Salam Ahmadyan og Rahman Salehi, íranskir karlmenn á fertugsaldri, voru handteknir í Liverpool og Salford og ákærðir fyrir ráðabrugg um hryðjuverk gag...
Christa Pike í öndunarvél eftir misheppnaða aftöku
📅 03.10.2026 👁️ 0
Christa Pike í öndunarvél eftir misheppnaða aftöku
Christa Pike liggur meðvitundarlaus á spítala eftir að tvær tilraunir til að taka hana af lífi fóru út um þúfur.Á miðvikudag átti aftaka Pike að fara ...
Glæparannsókn vegna starfsemi Telenor í Mjanmar: „Fyrirheit voru svikin“
📅 02.10.2026 👁️ 1
Glæparannsókn vegna starfsemi Telenor í Mjanmar: „Fyrirheit voru svikin“
Þann 15. september, klukkan tíu að morgni að staðartíma, fóru norska ríkislögreglan, PST, og norska öryggislögreglan, Kripos, fylktu liði í höfuðstöðv...
Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 1
Neitar að hafa haldið fram hjá Lönu del Rey - Vísir
Það kom aðdáendum í opna skjöldu þegar greint var frá því árið 2024 að Lana Del Rey, sem réttu nafni heitir Elizabeth Woolridge, hefði gengið í það he...
Celebrity Traitors claim their first victim as Richard E Grant tries to save his skin
📅 02.10.2026 👁️ 1
Celebrity Traitors claim their first victim as Richard E Grant tries to save his skin
There was a murder and a recruitment in the latest episode, and that was just in the opening minutes.
111 milljónir söfnuðust til styrktar Reykjalundi
📅 02.10.2026 👁️ 2
111 milljónir söfnuðust til styrktar Reykjalundi
Alls söfnuðust 111.340.000 krónur til styrktar Reykjalundi í söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund í kvöld.Brýn þörf er á uppbyggingu og ...
Lögreglan leitar að Halldóri Inga
📅 02.10.2026 👁️ 2
Lögreglan leitar að Halldóri Inga
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af Halldóri Inga Emilssyni, 43 ára. Ekkert hefur spurst til hans í nokkurn tíma.„Talið er líkleg...
Sagðir undir­búa stórsókn gegn Hútum - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Sagðir undir­búa stórsókn gegn Hútum - Vísir
Þar að auki myndu nokkur Evrópuríki aðstoða Sáda við að verjast árásum í Sádi-Arabíu en Bretar og Frakkar gera það nú þegar. Samkvæmt heimildum Reuter...
Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga
📅 02.10.2026 👁️ 2
Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu óskar eftir að ná tali af Halldóri Inga Emilssyni, 43 ára, en ekkert hefur spurst til hans í nokkurn tíma. Talið er lík...
Ice Spice fór á klósettið á OTO - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Ice Spice fór á klósettið á OTO - Vísir
Samkvæmt heimildum fréttastofu sást til Ice Spice á Keflavíkurflugvelli í gærmorgun, fimmtudag, þar sem hún var að koma úr flugi frá New York, heimabo...
Móðir fórnarlambs Christu Pike var vitni að misheppnuðu aftökunni – „Ég vill fara og drepa Christu“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Móðir fórnarlambs Christu Pike var vitni að misheppnuðu aftökunni – „Ég vill fara og drepa Christu“
Móðir fórnarlambs Christu Pike, sem átti að taka af lífi 30. september, var viðstödd hina misheppnuðu aftöku. Segist hún hafa viljað klára verkið sjál...
Mikill áhugi á íslensku ullinni í Ullarviku Suðurlands
📅 02.10.2026 👁️ 2
Mikill áhugi á íslensku ullinni í Ullarviku Suðurlands
Fjöldi erlendra ferðamanna hefur komið til landsins til að taka þátt í vikunni. „Vefa á borðvefstól“ var eitt af námskeiðum vikunnar.Á bænum Hrafnasel...
Lýsa eftir Hall­dóri Inga - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Lýsa eftir Hall­dóri Inga - Vísir
Lögreglan greinir frá þessu í tilkynningu en þar segir að engin mynd sé tiltæk af Halldóri. Talið er líklegt að Halldór, sem er um 183 cm á hæð, grann...
Leggja til að kjarasamningar haldi með nýju endurskoðunarákvæði
📅 02.10.2026 👁️ 2
Leggja til að kjarasamningar haldi með nýju endurskoðunarákvæði
Halla Gunnarsdóttir formaður VR segir að þó að atvinnuleysi sé ekki mikið innan VR hafi laun stórs hluta félagsfólks lækkað síðustu tvö ár.Alls var 18...
Tories pledge to build 50,000 new prison places
📅 02.10.2026 👁️ 2
Tories pledge to build 50,000 new prison places
The party says its proposals would stop prisoners being released early and cut crime.
King's Caribbean tour will not shy away from 'darkest days of our past'
📅 02.10.2026 👁️ 2
King's Caribbean tour will not shy away from 'darkest days of our past'
In recent years, the King has expressed his "personal sorrow" at the UK's role in slavery.
„Of margar sögur af vondri með­ferð“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Of margar sögur af vondri með­ferð“ - Vísir
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra birti í gær drög að að frumvarpi til breytinga á útlendingalögum í samráðsgátt stjórnvalda. Frumvar...
Michael Douglas viðurkennir að hafa haldið við fræga samleikkonu sína fyrir 40 árum - „Ástandið heima var slæmt“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Michael Douglas viðurkennir að hafa haldið við fræga samleikkonu sína fyrir 40 árum - „Ástandið heima var slæmt“
Stórleikarinn Michael Douglas greinir frá því í nýrri bók að hafa haldið við samleikkonu sína Kathleen Turner fyrir rúmum fjórum áratugum síðan. Þau v...
Endurhæfum Reykjalund: Kveðja frá forseta Íslands
📅 02.10.2026 👁️ 2
Endurhæfum Reykjalund: Kveðja frá forseta Íslands
Halla Tómasdóttir sendir Reykjalundi kveðju og hvetur Íslendinga til að styrkja Reykjalund til endurhæfingar.„Nú þarf Reykjalundur á okkur að halda. V...
Grunaður morðingi Ann Widdecombe ákærður fyrir að skipuleggja hryðjuverk gegn Nigel Farage
📅 02.10.2026 👁️ 2
Grunaður morðingi Ann Widdecombe ákærður fyrir að skipuleggja hryðjuverk gegn Nigel Farage
Hinn 28 ára gamli Joshua Kerry, sem er ákærður fyrir morðið á Ann Widdecombe, fyrrverandi ráðherra og talskonu Umbótaflokksins eða Reform UK, hefur ei...
Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar - Vísir
Frá því er greint í tilkynningu að bæjarráð Hafnafjarðar hafi ákveðið á fundi í gær að setja það sem grundvallarviðmið við fjárhagsáætlunargerð bæjari...
„Viljum ekki leggja börnin okkar að veði til að komast í skólann“
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Viljum ekki leggja börnin okkar að veði til að komast í skólann“
Foreldrar skólabarna í Breiðdals- og Stöðvarfjarðarskóla segja tímaspursmál hvenær slys verður þegar skólabíll ekur með börn þeirra um Kambanesskriður...
Búið að opna veginn um Eyrarhlíð
📅 02.10.2026 👁️ 2
Búið að opna veginn um Eyrarhlíð
Vegurinn um Eyrarhlíð, milli Hnífsdals og Ísafjarðar, hefur verið opnaður á ný. Frá þessu greinir lögreglan á Vesturlandi.Aurskriða féll á veginn fyrr...
Two men charged with terrorism offences in Manchester
📅 02.10.2026 👁️ 2
Two men charged with terrorism offences in Manchester
The pair were arrested in the Northern Quarter area of the city on the eve of Yom Kippur.
Þórarinn varar við óvæntri afleiðingu skattahækkunar: „Helgarpabbar landsins dæmdir í eilífa útlegð“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Þórarinn varar við óvæntri afleiðingu skattahækkunar: „Helgarpabbar landsins dæmdir í eilífa útlegð“
Fyrirhuguð hækkun virðisaukaskatts á baðlón heldur áfram að vekja líflegar umræður, en eins og greint hefur verið frá stendur til að hækka hann úr 11%...
Ekkert hæft í því að Landvirkjun verði seld
📅 02.10.2026 👁️ 2
Ekkert hæft í því að Landvirkjun verði seld
Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsmálaráðherra segir að það sé eftirsjá að Herði Arnarsyni fráfarandi forstjóra Landsvirkjunar. Ekkert sé hæ...
Staðsetning Íslands mikilvæg fyrir Kanada
📅 02.10.2026 👁️ 2
Staðsetning Íslands mikilvæg fyrir Kanada
Ógn Rússa á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum er alvarleg. Þetta segir varnarmálaráðherra Kanada. Rússar beiti fjölþáttaógnum og drónum á mikilvæga i...
One dead after lorry overturns on motorway in Tenerife
📅 02.10.2026 👁️ 2
One dead after lorry overturns on motorway in Tenerife
One person has died and several others have been injured following a serious accident involving an overturned lorry and numerous vehicles on the TF-5 ...
Bíll í ljósum logum á Reykjanesbrautinni
📅 02.10.2026 👁️ 2
Bíll í ljósum logum á Reykjanesbrautinni
Bíll stendur í ljósum logum á Reykjanesbrautinni, stutt innan við Grindavíkurafleggjara. Viðbragð á vegum Brunavarna Suðurnesja er á leið á vettvang e...
Í­búar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vega­gerðinni - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Í­búar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vega­gerðinni - Vísir
Reikningar hrönnuðust inn á heimabanka íbúa og einn íbúi sem Vísir ræddi við fékk rukkanir upp á tæplega hálfa milljón króna samtals, meðal annars fyr...
Í beinni: Endurhæfum Reykjalund
📅 02.10.2026 👁️ 2
Í beinni: Endurhæfum Reykjalund
Hér má horfa á beina útsendingu frá söfnunar- og skemmtiþættinum Endurhæfum Reykjalund til styrktar endurhæfingarmiðstöðinni að Reykjalundi í Mosfells...
Christa Pike unconscious and on ventilator after botched execution, lawyer says
📅 02.10.2026 👁️ 2
Christa Pike unconscious and on ventilator after botched execution, lawyer says
As of Thursday night, Pike remained critically ill and is being treated at a hospital in Nashville, Tennessee.
Um 8% vilja búa í stórum fjölbýlishúsum – en það er 83% af því sem er byggt
📅 02.10.2026 👁️ 2
Um 8% vilja búa í stórum fjölbýlishúsum – en það er 83% af því sem er byggt
Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun (HMS) lét í vor gera könnun um skipulags- og búsetuóskir Íslendinga. Hún var lögð fyrir rúmlega fjögur þúsu...
Widdecombe suspect charged with planning acts of terror against Farage
📅 02.10.2026 👁️ 2
Widdecombe suspect charged with planning acts of terror against Farage
Counter terror police say the further charge comes after a "hugely intensive and complex investigation".
Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök
📅 02.10.2026 👁️ 2
Hornfirðingar rukkaðir um svimandi háar upphæðir fyrir mistök
Íbúum á Hornafirði brá mörgum heldur betur í brún þegar fyrstu reikningar fyrir að keyra yfir hringveginn yfir Hornafjarðarfljót voru sendir út í dag....
Þingið hafnar húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Þingið hafnar húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar
Tillögur ríkisstjórnar Spánar, sem áttu að leysa húsnæðiskreppuna sem hefur leitt af sér mikla mótmælaöldu í landinu, voru felldar á spænska þinginu í...
Noregskonungur segir öryggi landsins ógnað
📅 02.10.2026 👁️ 2
Noregskonungur segir öryggi landsins ógnað
Hákon, nýkrýndur Noregskonungur, setti norska stórþingið í fyrsta sinn í dag sem þjóðhöfðingi landsins.Við setninguna flutti hann ræðu þar sem hann sa...
Vegurinn um Eyrarhlíð lokaður vegna aurskriðu
📅 02.10.2026 👁️ 2
Vegurinn um Eyrarhlíð lokaður vegna aurskriðu
Eyrarhlíð, vegurinn milli Hnífsdals og Ísafjarðar, er lokaður vegna aurskriðu sem féll á veginn.
Aur­skriða féll á veginn og honum lokað - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Aur­skriða féll á veginn og honum lokað - Vísir
Lögregla hefur lokað veginum um Eyrarhlíð á Vestfjörðum eftir að aurskriða féll yfir veginn. 
Wolt hafnar því að sendlar starfi í gerviverktöku
📅 02.10.2026 👁️ 2
Wolt hafnar því að sendlar starfi í gerviverktöku
Heimsendingarfyrirtækið Wolt segir fullyrðingar um að sendlar fyrirtækisins starfi í svokallaðri gerviverktöku rangar.Gerviverktaka eigi við þegar ein...
Svarthöfði skrifar: Skúli kveinkar sér í heita pottinum
📅 02.10.2026 👁️ 2
Svarthöfði skrifar: Skúli kveinkar sér í heita pottinum
Lengi hefur verið plagsiður á Íslandi að kvarta undan sköttum og jafnvel koma sér undan að greiða þá. Nýlega kynnti fjármálaráðherra í hyggju væri að ...
Starfs­maður Reykja­víkur­borgar smitaðist af nóróveiru - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Starfs­maður Reykja­víkur­borgar smitaðist af nóróveiru - Vísir
Samkvæmt heimildum Vísis hefur einn starfsmaður á skrifstofu Reykjavíkurborgar í Borgartúni fengið staðfestingu á nóróveirusmiti í dag. Þá herma heimi...
Daniel Thomas in court accused of entering Dover migrant site
📅 02.10.2026 👁️ 2
Daniel Thomas in court accused of entering Dover migrant site
Thomas, also known as Danny Tommo, is accused of multiple offences in Dover in the spring.
G7 to release 100 million barrels of oil and diesel after Trump export ban threat
📅 02.10.2026 👁️ 2
G7 to release 100 million barrels of oil and diesel after Trump export ban threat
The coordinated release is aimed at heading off further price spikes and avoiding a ban on US diesel exports.
„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
„Ef það er ekki erfitt þá er það ekki þess virði“ - Vísir
Menntaskólinn í Reykjavík varð 180 ára í gær þó saga hans teygi sig aftur til 1056. Fjölbreytt dagskrá var á vegum skólans í vikunni, á þriðjudagskvöl...
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Beta Reynis syrgir föður sinn og stendur frammi fyrir nýjum lærdómi – „Sorgin birtist ekki alltaf sem tár“
Í dag, 2. október, er afmælisdagur Reynis heitins Árnasonar, en hann lést fyrir tæplega ári síðan, þá nýorðinn 78 ára gamall. Dóttir hans, næringarfræ...
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heimir furðar sig á aðgerðaleysinu: „Þetta er svo ofboðslega ljótur og stór smánarblettur á okkur“
„Það sló mig verulega að sjá í fréttum að það væru fjórtán pláss í notkun, fjórtán pláss í notkun á Vogi. Staðan á Íslandi er sú að það að eru á milli...
Diesel prices in the UK have hit an all time high - here's why
📅 02.10.2026 👁️ 2
Diesel prices in the UK have hit an all time high - here's why
Diesel has now hit an average of £2 a litre in the UK, the RAC motoring group says, with petrol prices also rising.
Of mörg dæmi um vonda meðferð á au-pair stúlkum hafi kallað á breytingar
📅 02.10.2026 👁️ 2
Of mörg dæmi um vonda meðferð á au-pair stúlkum hafi kallað á breytingar
Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra segir þær breytingar sem hún boðar á veitingu dvalarleyfa nauðsynlegar til þess að fá yfirsýn í mál...
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
📅 02.10.2026 👁️ 2
Heiða í veikinda­leyfi - Vísir
Þetta var tilkynnt á fundi forsætisnefndar fyrr í vikunni. Þar segir að Heiða hafi skilað inn tilkynningu um veikindaleyfi ásamt læknisvottorði þar se...