Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn - Vísir
Repúblikanar fylgja Trump: Árásin sögð sýna nauðsyn þess að klára veislusalinn - Vísir
📅 2026-04-28 10:55:54👁️ 0 lesið
Nokkrum klukkustundum eftir árásina á laugardaginn steig Trump í pontu og sagði nauðsynlegt að klára veislusalinn sem fyrst. Repúblikanar hafa margir tekið undir það.Dómari stöðvaði framkvæmdirnar, að mestu, í lok marsmánaðar. Hann sagði þá að vinna við veislusalinn mætti ekki halda áfram án þess að þingið veitti framkvæmdunum blessun sína. Var það eftir að verndarsamtök í Washington DC höfðuðu mál gegn ríkisstjórninni.Sjá einnig: Ákærður fyrir banatilræði við Trump Þá sagði dómarinn, sem var skipaður í embætti af George W. Bush, að Trump virtist hafa farið langt út fyrir valdsvið sitt með því að láta rífa austurálmu Hvíta hússins og reisa veislusal þar í staðinn.„Forseti Bandaríkjanna er umráðamaður Hvíta hússins fyrir forsetafjölskyldur framtíðarinnar. Hann er hins vegar ekki eigandi hússins,“ sagði dómarinn.
Framkvæmdir við byrgi og aðra aðstöðu neðanjarðar undir veislusalnum máttu þó halda áfram.Meðal annars hafa þingmenn kallað eftir því að þingið stigi inn í og ryðji tálma úr vegi Trumps þegar kemur að veislusalnum og veiti jafnvel fjármunum til framkvæmdarinnar. Trump hét því upprunalega að veislusalurinn myndi ekki kosta ríkið, heldur yrðu framkvæmdirnar fjármagnaðar með fjárveitingum frá auðugum Bandaríkjamönnum.Þó nokkrir þingmenn hafa, samkvæmt New York Times, sagst ætla að leggja fram frumvarp um veislusalinn á komandi dögum. Þeirra á meðal er Lindsey Graham, náinn bandamaður Trumps, sem sagðist þegar hafa lagt fram frumvarp um að veita fjögur hundruð milljónir dala til framkvæmdanna. Það væri nauðsynlegt fyrir Bandaríkin að klára veislusalinn sem fyrst.Graham sagði að árásin á kvöldverðinum á laugardaginn, sem fór fram á hóteli í Washington DC, hefði sýnt fram á að Bandaríkin ættu við vandamál að stríða.
„Vandamálið er að það er mjög erfitt að hafa hóp af mjög mikilvægu fólki á sama staðnum, án þess að það sé mjög, mjög öruggur staður.“
Tim Sheehy, öldungadeildarþingmaður frá Montana, sló á svipaða strengi. Hann sagði á X hann myndi einnig krefjast þess að þingið myndi hjálpa Trump að klára veislusalinn.„Það er smánarlegt fyrir öflugustu þjóð heimsins að við getum ekki haldið viðburði í höfuðborginni okkar, þar á meðal viðburði sem forsetinn sækir, án ofbeldisógnar og bandatilræða.“
This week I will introduce and seek unanimous consent for legislation providing express approval for construction of a Presidential ballroom.
It is an embarrassment to the strongest nation on earth that we cannot host gatherings in our nation’s capital, including ones attended…— Tim Sheehy (@TimSheehyMT) April 26, 2026
Umræddur kvöldverður hefur um áratugi verið haldinn á sama hótelinu í Washington en hann er haldinn af samtökum blaðamanna sem starfa í Hvíta húsinu, ekki af ríkisstjórn Bandaríkjanna. Þess vegna er alfarið óljóst hvort hann hefði yfir höfuð verið haldinn í veislusalnum, ef búið væri að reisa hann.Þá eru gestir á kvöldverðinum fleiri en tvö þúsund og veislusalur Trumps á að geta hýst um þúsund manns.
Sagði veilsusalinn „hégómaverkefni“
Veislusalur Trumps mælist tiltölulega óvinsæll meðal kjósenda í Bandaríkjunum, samkvæmt frétt CNN. Þegar Trump tilkynnti veislusalinn fyrst og lét rífa austurálmuna sýndu kannanir að flestir, eða frá 56 til 61 prósent kjósenda, sögðust ósammála því að reisa ætti veislusalinn. Það var þegar hann átti ekki að kosta ríkið neitt.Þingkosningar verða haldnar í Bandaríkjunum í haust og er útlitið fyrir Repúblikana ekki gott, samkvæmt könnunum. Veislusalurinn yrði enn eitt vopnið sem Demókratar gætu notað gegn Repúblikönum í aðdraganda kosninga.Sjá einnig: Óvænt jafntefli í kjördæmastríðinu Demókratar hafa ekki tekið vel í ummæli þingmanna Repúblikanaflokksins. Chuck Schumer, leiðtogi flokksins í öldungadeildinni, sagði í gær að honum virtist Trump vilja einangra sig í „víggirtri höll“.Hann sagði einnig að ef Repúblikönum væri alvara með að bæta öryggi Trumps ættu þeir að auka fjárveitingar til lífvarðasveitar forsetaembættisins.Hakeem Jeffries, leiðtogi flokksins í fulltrúadeildinni, gagnrýndi veislusalinn sem „hégómaverkefni“ Trumps. Hann sagði að Repúblikanar ættu frekar að einbeita sér að málefnum sem skiptu almenning máli, eins og verðlagi, sem hefði hækkað verulega í Bandaríkjunum undir stjórn Trumps.Frá því hann tók aftur við embætti forseta í fyrra hefur Trump varið miklu púðri í að koma nafni sínu á sem flesta hluti og stofnanir í Bandaríkjunum, auk þess sem hann hefur reynt að setja mark sitt á Bandaríkin, Hvíta húsið og embættið með öðrum hætti.Má þar nefna:
The John F. Kennedy memorial center for the performing arts, sem heitir nú „The Donald Trump and The John F. Kennedy memorial center for the performing arts.
Friðarstofnunina svokölluðu sem heitir nú Donald J. Trump Friðarstofnun Bandaríkjanna.
Nýja tegund herskipa sem eiga að bera nafn Trumps, þó að fyrsta skipið í flokknum muni heita Defiant en flokkar bera yfirleitt nafn fyrstu skipanna.
Trump gold card, sem eru kort sem auðugir innflytjendur geta greitt fyrir og fengið ríkisborgararétt með því.
TrumpRx, sem er opinber vefsíða þar sem fólk á að geta fengið ódýrari lyf.
Þá stendur til að nefna nýja tegund herþota X-47, eftir Donald Trump, sem er bæði 45. og 47. forseti Bandaríkjanna.
Nýjar forsetaflugvélar Bandaríkjanna munu bera sömu liti og einkaflugvélar hans sjálfs.
Trump hefur einnig viljað setja mynd af sér á og George Washington á aðgangspassa fyrir þjóðgarða í Bandaríkjunum. Engin hefð hefur verið fyrir því en passarnir hafa alltaf verið skreyttir með myndum úr þjóðgörðum.
Ríkisstjórn Trumps hefur einnig reynt að fá Dulles-flugvöllinn í Washington DC nefndan í höfuðið á honum. Flugvöllurinn er nefndur í höfuð Johns Foster Dulles, sem var utanríkisráðherra í forsetatíð Dwights D. Eisenhower.
Á hans fyrsta kjörtímabili skreytti undirskrift Trumps ávísanir sem sendar voru til allra Bandaríkjamanna vegna faraldurs Covid.
Undirskrift Trumps verður bætt á bandaríska seðla og verður hann fyrsti forseti Bandaríkjanna til að gera það.
Þá vill Trump reisa stærðarinnar sigurboga við Alrington-kirkjugarðinn í Washington DC.
Ásgeir Erlendsson, upplýsingafulltrúi hjá Landhelgisgæslunni, staðfestir í samtali við Vísi að skipið sé enn í íslensku efnahagslögsögunni en greint v...
„Veðrið hefur verið svolítið tvískipt. Blíða hérna hjá okkur fyrir sunnan og vestanlands. Veðrið er almennt bjart og hlýtt, hitinn er búinn að ná yfir...
Ryan Reynolds fór í viðtal í vikunni hjá tímaritinu GQ með samstarfsfélaga sínum og meðeiganda í Wrexham AFC, Rob McElhenney, þar sem þeir voru spurði...
Samfélagsrýnirinn Máni Pétursson segir hlaðvarpara á hægri vængnum meðvirka með Sjálfstæðisflokknum þegar kemur að umbótum á starfsumhverfi einkarekin...
Vegagerðin hefur hafnað beiðni Akureyrarbæjar um að draga til baka fækkun ferða Grímseyjarferjunnar Sæfara. Kemur raunar fram í minnisblaði Vegagerðar...
Það er bannað að gleyma sólarvörninni á svona dögum.Vísir/Vilhelm Þessi börn eiga framtíðina fyrir sér í sjósundi.Vísir/Vilhelm Það þarf ekki alltaf a...
Laugardaginn 29. ágúst næstkomandi fer fram þjóðaratkvæðagreiðsla þar sem spurt verður: „Á Ísland að hefja á ný aðildarviðræður við Evrópusambandið?“ ...
Skýrslutaka yfir Ming Ting hófst upp úr klukkan 10 í morgun, eftir nokkra töf vegna tæknilegra örðugleika. Þegar þessi frétt er skrifuð hefur hún gefi...
Um þrjátíu Grindvíkingar auk nokkurra þingmanna Suðurkjördæmis mættu á mótmæli á Austurvelli í hádeginu sem boðuð höfðu verið með skömmum fyrirvara í ...
A fisherman has died after falling into the sea while fishing from a remote cliffside area in the north of Gran Canaria this morning (Friday).The inci...
Stýrihópur um hagræðingu í borgarkerfinu lítur fyrst til Ráðhúss Reykjavíkur, til dæmis breytinga á skrifstofu borgarstjóra, í aðgerðum sínum. „Við ho...
Gerður Björk Sveinsdóttir bæjarstjóri Vesturbyggðar segist hafa fyrst heyrt af ákvörðun Vegagerðarinnar, um að taka ferjuna Baldur tímabundið úr áætlu...
Athugði: Hér að neðan eru opinskáar lýsingar á ofbeldi sem gætu valdið óhug.Ming Ting Mancel, sem er ákærð fyrir að bana dóttur sinni á Edition-hóteli...
Ónafngreindur embættismaður í Hvíta húsinu hefur gefið helstu fjölmiðlum upplýsingar um innihald samnings Bandaríkjanna og Íran sem er í nokkru ósamræ...
Fyrr í dag var greint frá ákvörðun borgarráðs um að afþakka risaeðlubein, nánar tiltekið þríhyrnu (triceratops), sem samtökin Leap Lab vildu gefa borg...
Séra Guðni Már Harðarson hefur verið prestur í Lindakirkju í 18 ár og verið afar vinsæll í starfinu þar. Hann yfirgefur söfnuð sinn fljótlega, að minn...
Samfélagsmiðlarnir Facebook, Messenger og Instagram lágu niðri fyrr í dag. Miðlarnir, sem allir eru í eigu tæknirisans Meta, virðast þó vera komnir af...
Landsþing Ungra miðflokksmanna var haldið á Blönduósi 18.-19. apríl en þetta var fyrsta slíka þingið sem hreyfingin hefur staðið að. Í auglýsingu fyri...
Defending the realm is supposed to be a prime minister's first priority. Yet Sir Keir Starmer is accused by two departing defence ministers of failing...
Töluverður viðbúnaður var í Elliðaárdalnum. Þrír eða fjórir slökkviliðsbílar og lögregla voru á vettvangi, að sögn fréttamanns á svæðinu. Inni í húsin...
IWSC hefur verið haldin frá árinu 1969 og er talin meðal virtustu alþjóðlegu keppna á sviði vína og sterkra drykkja. Á hverju ári eru þúsundir vara fr...
IWSC hefur verið haldin frá árinu 1969 og er talin meðal virtustu alþjóðlegu keppna á sviði vína og sterkra drykkja. Á hverju ári eru þúsundir vara fr...
Fréttir bárust af því í morgun að samkomulag hefði náðst milli þingflokkanna um þinglok og má því búast við að þingmál fari næstu daga að renna í gegn...
Rússland er ekki að leita að átökum segir æðsti hershöfðingi NATO Fréttin12. júní 2026ErlentLeave a Comment Alexus G. Grynkewich, yfirmaður herafla NA...
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur kynnt til umsagnar drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum. Samkvæmt drögunum verður notkun...
A 50-year-old man has been arrested in Arrecife after allegedly attempting to run from Local Police officers and resisting arrest during a routine sto...
Hákon krónprins tók ekki þátt í ríkisráðsfundi í Noregi í dag vegna veikinda Mette-Marit eiginkonu sinnar. Vika er síðan tilkynnt var að krónprinsessa...
Leikarinn Timothée Chalamet fagnaði stórkostlega eftir nauman 107-106 sigur New York Knicks á San Antonio Spurs í fjórða leik úrslitakeppninnar í NBA ...
Stærsta mansalsrannsókn sem komið hefur upp á Íslandi hefur nú staðið yfir í meira en tvö ár. Þetta er rannsóknin á meintum brotum víetnamska viðskipt...
Stærsta mansalsrannsókn sem komið hefur upp á Íslandi hefur staðið yfir í meira en tvö ár. Þetta er rannsóknin á meintum brotum víetnamska viðskiptama...
Einn áhrifamesti listamaður samtímans, Bretinn David Hockney, er látinn. Hann lést í gær á heimili sínu 88 ára að aldri og skilur eftir sig maka sinn ...
Í minnisblaði sem Gabbard sendi út í gær segir að höfundar skýrslnanna tveggja, sem eru frá mars 2023 og janúar 2025, hafi hunsað vísbendingar og sönn...
Donald Trump forseti Bandaríkjanna segir að efnisatriði samkomulags við Íran sem voru birt í írönskum fjölmiðlum í morgun hafi ekkert að gera með þá s...
Viðhald og málningarvinna við brúna yfir Jökulsá á Fjöllum hefur tekið lengri tíma en til stóð. Verkið hófst 26. maí og átti að ljúka 16. júní. Mikil ...
„Hér er verið að stíga eðlilegt og nauðsynlegt skref til að tryggja lög og reglu í íslensku samfélagi,“ segir Sævar Þór Jónsson hæstaréttarlögmaður í ...
Hann fékk nýlega synjun frá Sjúkratryggingum um greiðsluþátttöku vegna læknismeðferðar erlendis sem gæti lengt lífslíkur hans og var vísað til þess að...
Þar kemur fram að fólk eigi í vandræðum með að tengjast samfélagsmiðlinum bæði í símaappi og í tölvu. Þá virðist fólk eiga í erfiðleikum með að skrá s...
Þar kom fram að fólk ætti í vandræðum með að tengjast samfélagsmiðlinum bæði í símaappi og í tölvu. Fólk átti í erfiðleikum með að skrá sig inn í forr...
Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins sendi fjölda bíla í útkall í Elliðaárdal upp úr klukkan eitt í dag. Tilkynning hafði borist um reyk við Toppstöðina. L...
Skipin tvö bera heitin MSC Virtuosa og Norwegian Star. Virtuosa er stærsta skip sem hefur komið til Ísafjarðar en það kom í sína fyrstu heimsókn til Í...
Í Netið logar tökum við saman stærstu umræðurnar sem fóru eins og eldur um netið. Hér eru málin sem vöktu mesta athygli, sterkustu viðbrögðin og heitu...
Tónlistarkennari sem flaug snemma heim úr fríi sínu til að koma fram á óvæntum tónleikum segist ekki hafa vitað hún myndi syngja dúett með Ed Sheeran ...
Davíð var gestur Margrétar Bjarkar Jónsdóttur og Örnu Þorsteinsdóttur í nýjasta þætti hlaðvarpsins Vörumerki. Þar fór hann yfir rauðu og grænu flöggin...
Á fundi borgarráðs 16. apríl 2026 var samþykkt að gerður yrði samningur fyrir hönd Samtaka hjólabúa, félags sem hafði þá ekki verið stofnað. Samningur...
Að sögn varðstjóra slökkviliðs eru viðbragðsaðilar nýmættir á vettvang um klukkan 13.15 í dag. Hann segir við Vísi að líklegast sé um lítinn eld að r...
Að sögn varðstjóra slökkviliðs kom upp eldur í hitaskáp og reykur barst víða. „Þeir eru bara að klára að reykræsta á vettvangi,“ sagði varðstjóri slö...
Scotland's first minister was targeted by an Israeli firm spreading online disinformation before the Holyrood election, a French government agency has...
Fínasta veður er víðast hvar á landinu núna og helgarspáin góð. „Það er sums staðar dálítill strekkingur og það hefur nú orðið hvað hlýjast í morgun á...
Southwark Council has confirmed that it has taken possession of a council property linked to Sierra Leone's First Lady, Fatima Bio, following a year-l...