Íslendingur greinir frá því að litlu hafi munað að hann lenti í lífshættulegum árekstri vegna bíls sem var lagður á þjóðveginum. Algengt sé að ferðamenn stoppa bíla á veginum til að litast um og taka ljósmyndir.„Í dag var ég næstum því dauður út af heimsku ferðamanns,“ segir Íslendingur í færslu á samfélagsmiðlinum Reddit í gær. Segist hann gera ráð fyrir að um bílaleigubíl ferðamanns hafi verið að ræða, Dacia Duster sem lögð var á þjóðveginum. En sú bíltegund er ein algengasta bílaleigutegundin á Íslandi.
Reiður ökumaður á Holtavörðuheiði – „Í dag var ég næstum því dauður út af heimsku ferðamanns“