Í tilkynningu frá Lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu kemur fram að uppboðið fari fram á vefsvæði Vöku, en boðin verða upp um 90 reiðhjól. Árlega eru boðin upp reiðhjól sem fundist hafa á höfuðborgarsvæðinu og enginn hefur hirt um að sækja.
Samkvæmt tilkynningu á að greiða fyrir hjólin á vefsvæði Vöku í gegnum greiðslugátt. Skoðunardagar verða 22., 23. og 24. júní frá kl. 15 til 17 á Héðinsgötu 2 í Reykjavík. Myndir af reiðhjólunum munu verða birtar á vefsíðu uppboðsins.