Reform UK gjörbreytir breskum stjórnmálum með stórsigri í sveitastjórnarkosningum – Hrun hjá Verkamannaflokknum sem heimtar afsögn Starmer
Bresk stjórnmál virðast vera að taka sögulega stefnu eftir sveitarstjórnarkosningarnar í Englandi þar sem flokkur Nigel Farage, Reform UK, hefur hvern stórsigurinn á fætur öðrum.
Úrslitin hafa verið það slæm fyrir ríkisstjórn Keir Starmer að verkalýðsleiðtogar, sveitarstjórnarfólk og jafnvel þingmenn úr hans eigin flokki eru þegar byrjaðir að kalla eftir afsögn hans.
AuglýsingFarage lýsti úrslitunum sem sögulegri breytingu á breskum stjórnmálum og sagði gamla vinstri og hægri flokka kerfið vera að hrynja.
„Verkamannaflokkurinn er að þurrkast út, jafnvel í kjöm kjördæmum sem áttu að vera hans sterkustu vígi,“ sagði Farage eftir að tilkynnt var um fyrstu stóru sigrana.
Flokkur Starmer tapar meirihluta sæta sinna
Samkvæmt nýjustu tölum þegar þetta er skrifað hafði Labour tapað um 77 prósent þeirra sæta sem flokkurinn var að verja í þeim sveitarfélögunum þar sem búið er að telja.
Stærstu sigrar Reform UK eru meðal annars:
-18 af 19 sætum í Tameside.
-16 af 19 sætum í Halton.
-7 af 8 sætum í kjördæmi Angelu Rayner varaformanns Verkamannaflokksins.
-Öll 12 sætin sem voru í boði í Hartlepool.
Í Newcastle-under-Lyme vann Reform 27 af 44 sætum og tók stjórn sveitarfélagsins af Íhaldsflokknum.
Þá náði flokkurinn einnig stórsigri í Essex þar sem hann komst yfir 40 af 78 sætum í sveitarstjórninni.
Íhaldsflokkurinn einnig í miklum vandræðum
Þótt Verkamannaflokkurinn hafi fengið verstu höggin virðist Íhaldsflokkurinn einnig vera að missa stóran hluta fylgis síns til Reform UK.
Í Havering í austurhluta London fór Reform úr engu í 39 sæti á meðan Íhaldsflokkurinn missti öll sæti sín.
Mikil óánægja virðist ríkja meðal kjósenda vegna innflytjendamála, verðbólgu, orkukostnaðar og stöðu breska hagkerfisins.
Kallað eftir afsögn Starmer
Þrýstingurinn á Keir Starmer eftir úrslitin er nú á suðupunkti. Verkalýðsleiðtogar hafa kallað eftir því að hann segi af sér og nokkrir þingmenn Verkamannaflokksins hafa einnig gefið sterklega í skyn að flokkurinn þurfi nýjan leiðtoga. Sjálfur sagðist Starmer ekki ætla að segja af sér þrátt fyrir mjög slæma niðurstöðu.
Nigel Farage sagði að nú væri Reform UK orðinn alvöru þingflokkur á landsvísu og fullyrti að flokkurinn stefndi á sömu sigurgöngu í þingkosningum.
Auglýsing