Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári - Vísir
24.04.2026 11:03:14👁️ 0 lesið
Ríkisútvarpið segir frá því að starfsmaðurinn hafi verið ráðinn aftur til starfa við skólann. Ólína Þorvarðardóttir Kjerúlf, rektor skólans, staðfesti það við ríkisfjölmiðilinn.
Starfsmaðurinn var einn þriggja sem Margrét Jónsdóttir Njarðvík, þáverandi rektor, lét siðanefnd skólans rannsaka vegna fræðigreina sem þeir voru titlaðir meðhöfundar að í vetur. Siðanefnd hreinsaði starfsmennina af sök.Málið olli miklu fjaðrafoki á Bifröst en Félag akademískra starfsmanna lýsti yfir vantrausti á rektor og tvo aðra stjórnendur vegna þess. Gagnrýndi félagið meðal annars að stjórnendur hefðu látið gervigreindarforrit meta hvort starfsmennirnir hefðu lagt nægilega mikið af mörkum til greinanna til þess að verðskulda höfundarmerkingu. Margrét lét af störfum sem rektor fyrr á þessu ári.Í sömu viku og starfsmönnunum þremur var greint frá því að þeir væru til skoðunar var einn þeirra rekinn. Ástæðan var sögð trúnaðarbrestur þar sem hann hefði kennt áfanga við annan skóla. Samskiptastjóri skólans sagði Vísi í febrúar að brottreksturinn hefði verið alls ótengdur siðanefndarmálinu.
Borinn röngum sökum
Ólína, núverandi rektor, segir starfsmanninn sem um ræðir ekki hafa brotið af sér.„Maðurinn hefur verið hreinsaður af siðanefnd skólans af rangri sök sem var borin upp á hann,“ skrifar Ólína í Facebook-færslu þar sem hún gagnrýnir harðlega frétt RÚV af endurráðningu mannsins.Rektorinn greinir engu að síður frá því í frétt RÚV að Félag akademískra starfsmanna hafi samþykkt að draga til baka vantraust á rannsóknarstjóra skólans. RÚV segir að hann sé eini af stjórnendunum þremur sem hófu siðanefndarmálið sem sé enn við dagleg störf við skólann.