Karlmaður hlaut skilorðsbundinn dóm í Héraðsdómi Norðurlands eystra fyrir að hafa ráðist á dóttur sína á heimili þeirra árið 2024. Dóttirin var að reyna að stöðva deilur foreldra sinna á heimilinu.
Í dómnum segir að maðurinn hafi slegið dótturina tvisvar utan undir, tekið hana niður í gólfið og sparkað í líkama hennar. Dóttirin reyndi að koma sér undan föður sínum en þá greip hann um úlnlið hennar, dró hana til sín og ýtti henni upp við vegg svo hnakki hennar skall í vegginn.
Maðurinn tók dóttur sína í kjölfarið hálstaki, ýtti henni aftur í gólfið og dró hana eftir það með því að halda í hettu á hettupeysu sem hún var klædd í.
Dóttirin hlaut heilahristing eftir árásina auk þess sem hún var með áverka á andliti.
Vildu ekki gefa skýrslu
Dóttirin og móðirin vildu ekki gefa skýrslu fyrir dómi og var stuðst við skýrslur þeirra hjá lögreglu. Faðirinn gaf skýrslu fyrir dómi.
Feðginin sammæltust um að átökin á milli þeirra hafi byrjað þegar dóttirin löðrungaði föður sinn en í dómnum segir að óvissa ríki um atburðarásina eftir það.
Faðirinn gekkst við því að hafa slegið dóttur sína utan undir einu sinni en neitaði að hafa slegið hana tvisvar.
Neitaði hann að hafa sparkað í dótturina eða ýtt henni upp við vegg.
„Dettandi út um allt“
Faðirinn útskýrði áverka dóttur sinnar á þann veg að hún væri „dettandi út um allt“. Hann gat þó ekki gefið skýringar á blóði sem sást á ljósmyndum af vettvangi og kvaðst hann ekki vita úr hverjum það hafi verið.
Dómurinn taldi sannað að faðirinn hefði slegið dóttur sína og ýtt henni upp við vegg en önnur brot þótti ekki hægt að sanna.
Með hliðsjón af aflsmunum ákærða og brotaþola og áverkum brotaþola taldi dómurinn viðbrögð ákærða úr öllu hófi.
Eins og áður segir fékk maðurinn skilorðsbundinn dóm til 30 daga. Refsingin fellur niður eftir tvö ár haldi ákærði skilorði.