Rannveig Elíasdóttir gerir alvarlegar athugasemdir við framkomu lyflækningadeildar Sjúkrahússins á Akureyri, en hún var í síðustu viku dregin út úr herbergi þar sem faðir hennar lá banaleguna og svo læst inni í fangaklefa. Það sem hún vann sér til sakar var að gera athugasemdir við þá meðferð sem föður hennar var veitt. Rannveig segir að komið hafi verið fram við hann líkt og hann væri í lífslokameðferð án þess að slík meðferð hefði verið rædd við hann sjálfan eða aðstandendur hans.
Rannveig lýsir átakanlegri reynslu: „Ég er hágrátandi. Mamma er öskrandi og pabbi, sem er deyjandi, er grátandi“