Stærsta mansalsrannsókn sem komið hefur upp á Íslandi hefur staðið yfir í meira en tvö ár. Þetta er rannsóknin á meintum brotum víetnamska viðskiptamannsins Quang Lé sem rak veitingastaðinn Wok On í Reykjavík og fleiri.
Lögreglumaðurinn Gunnar Axel Davíðsson stýrir rannsókninni á málinu hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Hver er staðan á rannsókninni núna og hvenær á henni að ljúka? „Þetta bara tekur tíma. [...] Það hyllir undir lokin. Einhvern tímann þarf allt að enda. [...] Á næstu mánuðum þá er markmiðið að senda þetta frá okkur til héraðssaksóknara,“ segir hann í samtali við fréttastofu.
Fjallað er um rannsóknina á Quang Lé og stöðu hennar í fréttaskýringaþættinum Þetta helst í dag. Þar er rætt við Gunnar Axel og fréttakonu RÚV, Urði Örlygsdóttur, sem fjallaði um málið í Kveik í mars 2024. Þáttinn má hlusta hér:
Mikil aukning mansalsbrota í heiminum
Gunnar Axel segir aðspurður að rannsóknin á máli Quangs Lé sé sú langstærsta sem hafi komið upp á Íslandi og einnig ein sú stærsta sem hafi komið upp á Norðurlöndunum.
Það að slíkt mansalsmál hafi komið upp á Íslandi núna segir ákveðna alþjóðlega sögu líka. Tölur frá öðrum löndum sýna aukna tíðni mansalsmála eða að minnsta kosti rannsókna á þeim.
Í umfjöllun bandaríska tímaritsins The New Yorker í maí um sögu mansalsfórnarlambs frá Gíneu, Djenu sem send var til Bandaríkjanna sem þræll þegar hún var barn, sagði meðal annars að mansalsmál hefðu aukist um fjórðung í landinu 2013–2023.
Aðrar tölur benda í sömu átt. Samkvæmt skýrslu sem Sameinuðu þjóðirnar sendu frá sér 2024 voru 25 prósent fleiri þekkt tilfelli um mansal í heiminum 2022 en 2019.
Gunnar Axel segir að mikil aukning hafi verið í fjölda mála sem snúast um mansal hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu á síðustu árum. Þá er bæði átt við mansal vegna meints vændis og meints vinnumansals. Hann segir að aukningin í fjölda mála á milli 2021-2024 hafi verið 853 prósent hér á Íslandi.