Rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu á brunanum á meðferðarheimilinu Stuðlum, þar sem drengur lést, er lokið og málið verið afhent ákærusviði embættisins. Tíu hafa réttarstöðu sakbornings í málinu.
Þessu greinir Morgunblaðið frá, en Elín Agnes Eide, yfirlögregluþjónn á miðlægri rannsóknardeild lögreglunnar, staðfesti þetta.
Bruninn varð 19. október 2024 og rannsóknin því tekið rúmlega 20 mánuði. Eldur kviknaði í álmu þar sem börn eru neyðarvistuð, með þeim afleiðingum að hinn 17 ára gamli Geir Örn Jacobsen lést.
Í skýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar um brunann segir að hægt hefði verið að koma í veg fyrir mannslát ef brunavarnir hefðu verið virkar í samræmi við brunahönnun.