Samgöngur til Vestmannaeyja og nauðsyn ferjuáætlunar verða efni opins fundar sem umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis heldur í dag. Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra verður gestur fundarins. Fundurinn hefst klukkan þrjú í dag.
Mikið verður um að vera í salarkynnum Alþingis í dag þar sem þingnefndir funda í gríð og erg áður en þingfundir hefjast á ný á miðvikudag. Hlé var gert á þeim í aðdraganda sveitarstjórnarkosninga.
Meðal þess sem gerist í dag er að utanríkismálanefnd fjallar um þingsályktunartillögu ríkisstjórnarinnar um að haldin verði þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður.