Í fréttatímanum verður einnig tekin staðan eftir umfangsmikla netárás á stærsta hýsingaraðila hérlendis í síðustu viku. Framkvæmdastjóri nethýsingarfyrirtækisins 1984 lýsir stefnuleysi hjá stjórnvöldum í netöryggismálum. Hið opinbera vilji fremur refsa en styðja þegar ráðist sé á mikilvæga innviði líkt og hafi verið gert í netárás fyrir helgi. Búið sé að hreinsa upp eftir árásina og vonir standa til þess að starfsemin verði komin í eðlilegt horf í vikunni.
Þá verður rætt við Sigurjón Þórðarson, þingmann Flokks fólksins, um umdeild viðskipti með strandveiðibát í hans eigu. Sigurjón segir kaup ungrar konu í fyrra á bátnum, sem hann á og rekur, ekki hafa gengið upp vegna bilunar. Hún hafi ætlað að greiða fyrir bátinn með tekjum af veiddum afla en það hafi ekki gengið eftir og kaupin því gengið tilbaka.
Haldið verður áfram að fjalla um hveitiskandalinn í Danmörku sem teygir anga sína til Íslands. Matvælastofnun furðar sig á að engin tilkynning hafi borist frá formlegu viðvörunarkerfi í Evrópu um að mengað hveiti hafi borist til Íslands. Deildarstjóri hjá stofnuninni segir það undarlegt og hefur óskað skýringa. Íslensk fyrirtæki innkölluðu hveitið sjálf í síðustu viku. Ekki er vitað hversu mikið magn barst til landsins.
Þá verður rætt við forstjóra Samkeppniseftirlitsins um þróun eldsneytisverðs. Kallað verður eftir frekari gögnum frá olíufélögunum til að unnt sé að leggja mat á breytingar á innkaupsverði eldsneytis í haust og hvernig þær hafa skilað sér í verði til neytenda.
Sportið fjallar meðal annars um umdeilt rautt spjald og drama í enska boltanum sem rúllaði af stað um helgina.
Fjölbreyttar hádegisfréttir eru framundan á Bylgjunni á slaginu tólf. Umsjónarmaður er Telma L. Tómasson.