Skarphéðinn hefur víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og stjórnsýslunni. Hann hefur m.a. gegnt starfi ferðamálastjóra, verið forstjóri og framkvæmdastjóri ýmissa fyrirtækja, auk þess að hafa starfað sem skrifstofustjóri í forsætisráðuneytinu og deildarstjóri í fjármálaráðuneytinu.
Skarphéðinn er með MBA-gráðu frá Minnesota-háskóla og próf frá viðskiptafræðideild Háskóla Íslands auk þess að hafa stundað framhaldsnám við ríkisháskólann í Oklahoma. Hann mun hefja störf í forsætisráðuneytinu 1. júní nk.
Alls bárust sautján umsóknir um starfið.