Jón Svanberg Hjartarson, framkvæmdastjóri Neyðarlínunnar, segir það vera mjög alvarlegt ef almenningur nái ekki sambandi við Neyðarlínuna. „Það getur bara verið dauðans alvara.“
Rúnar Jósefsson, íbúi á Skagaströnd, reyndi fimm sinnum að hringja í Neyðarlínuna á föstudagsmorgun þegar bróðir hans var hætt kominn vegna sýkingar í heila. Alltaf hringdi út í símtölum til Neyðarlínunnar en hann gat þó hringt önnur símtöl.
Jón Svanberg ræddi málið í sjónvarpsfréttum. Hann telur líklegt að ástæðan fyrir sambandsleysinu tengist farsímakerfum sem lokað hefur verið fyrir.
„Rökin hníga flest að því að þarna sé samspil þess að það sé búið að loka 2G og 3G farsímakerfunum þannig að neyðarsímtal sem fer í neyðarham í símanum nær bara ekki í gegn,“ segir Jón.
Hann segir að það sem sé til ráða sé uppfærsla á símtækjum eða hreinlega að skipta þeim út vegna þess að kerfið þjónusti þau ekki lengur. Samkvæmt Jóni eru um sex þúsund tæki á Íslandi sem gætu lent í þessum sömu aðstæðum, sem hann segir vera „mjög bagalegt“.
„Við höfum rætt þetta mjög ítarlega og að sjálfsögðu með algjöra núllsýn í þessu, að það eiga allir að geta hringt í 112 þegar eitthvað er að.“
Þeir sem séu með þessi tæki ættu að hafa fengið skilaboð og jafnvel símtöl frá sínum símafélögum. Ef þú nærð ekki í 112 í síma séu tvær aðrar leiðir – 112 Neyðarlínu appið eða netspjallið í gegnum heimasíðuna. „Það er bara ótækt að það náist ekki samband við 112 eftir hefðbundnum leiðum,“ segir Jón.
Jón hvetur fólk til að hringja í prufunúmerið 1280 og kanna hvort símar þeirra nái sambandi. Þá komi símsvari sem svarar þér hvort að símtalið nái í gegn. „Þá áttu að vera viss um að þú getir náð í 112 ef þú þarft á því að halda. Ef símsvarinn segir að símtalið berist ekki í gegn eða þú færð bara dauða línu er eitthvað að.“
Þetta eru skilaboðin sem þú vilt heyra þegar hringt er í 1280:
„Prófun, neyðarsímtal. Símtalið þitt komst til skila.“
Jón Svanberg segir eldra fólk oft ekki með nýjustu tækni. Þess vegna sé mikilvægt að aðstandendur fólks í viðkvæmri stöðu athugi hvort það virki að hringja í Neyðarlínuna. „Það þarf að aðstoða með þetta, þannig að bara hvetja fólk til þess að kíkja á símann hjá ömmu og afa og gá hvort það leynist gamalt sms hjá símafyrirtækjum um að eitthvað virki ekki, og/eða hringja í 1280 til þess að kanna málið.“
Þá skuli fólk hafa samband við sitt símafélag til þess að fá leiðbeiningar um uppfærslu eða til þess að kaupa nýjan síma.
En ekkert ykkar megin sem þið getið stillt?
„Nei, ekki gagnvart þessu, því miður.“
Í spilaranum hér að neðan má horfa á umfjöllun sjónvarpsfrétta um íbúann á Skagaströnd sem endar á viðtali við framkvæmdastjóra Neyðarlínunnar.