Vladimír Pútín Rússlandsforseti sagði að samskipti milli Rússlands og Kína hefðu nú náð áður óþekktum hæðum. Þetta kom fram í myndbandi á rússneskum fjölmiðli, þar sem Pútín ræðir við Xi Jinping, forseta Kína, í Beijing í dag.
Pútín sagði jafnframt að samskipti landanna væru fyrirmynd yfirgripsmikilla samskipta og stefnumótandi samvinnu. Forseti Kína fagnaði einnig traustu sambandi þjóðanna. Hann sagði að þjóðunum hefði tekist jafnt og þétt að styrkja traust sín á milli og samvinnu með seiglu sem væri óhagganleg þrátt fyrir ýmsa örðugleika og mótlæti.
Xi og Pútín ræddu einnig stöðu mála í Mið-Austurlöndum. Xi sagði að frekari átök væru óráðleg og það væri mikilvægt að ná vopnahléi sem fyrst og halda áfram samningaviðræðum, samkvæmt kínversku fréttastofunni Xinhua.