Rússlandsforseti hefur beðið varnarmálaráðuneytið að undirbúa miklar árásir á Úkraínu til að hefna árása sem hann segir Úkraínumenn hafa gert á stúdentagarða í Lugansk-héraði í Úkraínu í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá rússneskum stjórnvöldum voru sex drepnir og 39 særðust í drónaárás í gær á stúdentagarða í borginni Starobilsk í Lugansk. Þá er fimmtán manna enn saknað eftir árásina, samkvæmt Vladimír Pútín Rússlandsforseta. Hann segir nema á aldrinum 14–18 ára hafa verið á stúdentagörðunum. Pútín segir árásina vera hryðjuverk og hann hafi beðið varnarmálaráðuneytið að undirbúa miklar gagnárásir.
Þessar upplýsingar frá Pútín um árásina hafa ekki verið sannreyndar enn. Í frétt breska ríkisútvarpsins um árásina kemur fram að engar ljósmyndir eða myndskeið hafi verið sýnd í rússnesku sjónvarpi af þeim sem áttu að hafa verið drepnir í árásinni. Sýnd var mynd af einni ungri konu sem sögð var hafa fengið brak í höfuðið.
Úkraínski herinn hefur neitað því að hafa gert árás á almenna borgara og segir stjórnvöld í Moskvu vera að dreifa röngum upplýsingum. Í tilkynningu sem herinn sendi frá sér í gær kemur fram að úkraínski herinn hafi gert árás á hernaðarlega innviði og höfuðstöðvar Rubicon, sérstakrar drónaherdeildar sem ráðist á almenna borgara og borgaralega innviði í Úkraínu. Úkraínski herinn fari eftir alþjóðlegum mannúðarlögum og lögum um stríð.
Starobilsk er um 65 km frá víglínunni. Rússar náðu héraðinu á sitt vald skömmu eftir innrásina 2022 og það er nær alfarið hernumið af Rússum.