Project Hail Mary: Vanhæfi vísindamaðurinn og geim-labradorinn hans

Project Hail Mary: Vanhæfi vísindamaðurinn og geim-labradorinn hans

Project Hail Mary: Vanhæfi vísindamaðurinn og geim-labradorinn hans

Kolbeinn Rastrick skrifar:

Project Hail Mary hefur farið sigurför um heiminn og hagnaður hennar á opnunarhelginni varð sá mesti í sögu MGM-kvikmyndaversins. Myndin er byggð á samnefndri vísindaskáldsögu rithöfundarins Andy Weir sem skrifaði einnig bókina The Martian sem varð að kvikmynd árið 2021. MGM keypti réttinn að sögunni árið 2020, ári áður en bókin kom út, og var þá þegar búið að ákveða að Ryan Gosling myndi leika aðalhlutverkið. Leikstjórarnir Phil Lord og Christopher Miller sem hafa unnið ítrekað saman voru ráðnir til þess að leikstýra sama ár en þeir eru hvað þekktastir fyrir að hafa leikstýrt og skrifað teiknimyndina Skýjað með kjötbollum á köflum og Lego-myndina. Drew Goddard sem aðlagaði bókina The Martian að hvíta tjaldinu var svo fenginn til að gera það sama við Project Hail Mary.

Myndin gerist í nálægri framtíð en vísindafólk hefur komist að því að örverur eru búnar að smita að því er virðist allan geiminn og stefnir í að sólin muni á næstu 30 árum kólna allverulega. Afleiðingarnar yrðu útrýming alls lífríkis á jörðinni. Eina haldbæra vonin sem vísindafólkið hefur komið auga á er að stjarnan Tau Ceti, sem er rétt undir 12 ljósárum frá jörðinni, virðist ekki vera smituð þrátt fyrir að stjörnurnar í kringum hana séu það. Til þess að finna út úr því hvað veldur og vonandi finna lausn sem gæti komið jörðinni til bjargar er tekin ákvörðun um að senda mannað geimfar til Tau Ceti. Það gefst bara tími til þess að búa til eldsneyti sem endist aðra leið og ber verkefnið og geimfarið því nafnið Maríubæn.

Þetta heiti er fengið úr amerískum fótbolta, en það á við um örvæntingarfullt kast sem á sér stað oftast í lok leiks. Leikmaður sendir boltann eins langt yfir völlinn og hann getur til þess að kannski mögulega skora eitt lokamark sem gæti bjargað leiknum. Hail Mary eða Maríubænin á því vel við um verkefni jarðarinnar í samhengi myndarinnar sem örþrifaráð til þess að lifa af.

Einn af geimförunum sem eiga ekki aftur snúið og söguhetja myndarinnar er doktor Ryland Grace, sem Ryan Gosling leikur. Hann vaknar á Maríubæninni nálægt Tau Ceti eftir fjögur ár í svefndái og kemst að því að hann er eini eftirlifandi geimfarinn á skipinu. Það er því undir honum einum komið að bjarga jörðinni. Að því er hann best veit. Það er nefnilega annað geimskip mætt á undan honum og það hefur greinilega ekki vakið athygli einungis jarðarbúa að á Tau Ceti sé mögulega lausn að finna.

Úr kvikmyndinni Project Hail Mary, 2026.
Ryan Gosling í hlutverki sínu í Project Hail Mary: „Hann er klaufskur og hálf vitlaus en Ryan Gosling glæðir persónu hans svo miklum sjarma að strax frá fyrstu mínútu er erfitt að halda ekki með honum.“Amazon MGM Studios / Project Hail Mary

Í upphafi myndar fylgjumst við með nývöknuðum Ryland Grace átta sig smátt saman á hvar hann er staddur og hvað hann á að vera að gera. Eftir svona langan tíma í svefndái er hann búinn að gleyma þeim atburðum sem leiddu að því að hann var valinn í þetta verkefni. Til skiptis sýnir myndin atriði af honum aðlagast lífinu á geimskipinu og svo atburði fortíðar sem birtast bæði honum og áhorfendum eftir því sem líður á myndina og hann endurheimtir minningar sínar. Hann er klaufskur og hálfvitlaus en Ryan Gosling glæðir persónu hans svo miklum sjarma að strax frá fyrstu mínútu er erfitt að halda ekki með honum. Klaufaskapur hans og vanhæfni má í fyrri hlutanum afsaka með því að hann er nývaknaður og hann er því nokkuð samstíga með áhorfendum sem vita heldur ekki hvað er í vændum eða bíður hans á þessu ókunnuga geimskipi.

Það er þessi fyrsti hluti sem er hvað sterkastur vegna þess að hann vekur forvitni áhorfenda. Þetta er atburður sem flestir hafa velt fyrir sér og ótal skáldverk hafa tekið fyrir; hvernig skyldi fyrsti fundur manneskjunnar og geimverunnar æxlast. Það er hvatinn til þess að svala forvitninni sem gerir þennan atburð áhugaverðan þrátt fyrir að hann sé skáldaður. Þess lags hugaræfingar eru í raun grunnurinn að vísindaskáldskapargreininni, þar sem mögulegar framfarir í tækni og vísindum eru notaðar til þess að skoða mögulega framtíð mannkynsins.

Oft er einnig talað um harðan eða mjúkan vísindaskáldskap. Þó erfitt sé að alhæfa um þessi hugtök þá er oftast talað um harðan vísindaskáldskap í samhengi verka sem halda sig á nokkuð raunsæjum nótum og styðjast upp að vissu marki við vísindalegar staðreyndir. Hinn mjúki vísindaskáldskapur er aftur á móti verk sem líkjast meira fantasíunni eða svokölluðum geimóperum. Í hinum harða vísindaskáldskap er vísindalegur trúverðugleiki því mikilvægur hluti af verkinu og það sem vekur áhuga aðdáenda þessarar greinar. Ástæðan fyrir þessari útlistun á þessum tveimur mismunandi áherslum innan vísindaskáldskaparins, er að skýra hvernig Project Hail Mary skemmir fyrir sjálfri sér með því að gera ekki upp á milli þeirra.

Fyrst er þó best að taka fram að þetta er grínmynd með vísindaskáldskaparívafi. Það líða varla meira en fimm mínútur í senn áður en það er eitthvað grín eða gaman sem poppar upp til þess að halda tón myndarinnar rækilega á léttu nótunum. Húmorinn snýst að mestu leyti um samband Ryland við geimveruna Rocky sem skilur ekki kaldhæðni og er með svipaða skapgerð og labrador-hundur. Þar sem myndin virðist vera með bráðaofnæmi fyrir að reyna ekki að vera fyndin veltur allt álit áhorfanda á því hvort þeim finnist henni takast það. Það er nefnilega það eina sem hún hefur upp á að bjóða og vei þeim sem finnst þessi barnalegi Hollywood-húmor ekki fyndinn því þá bíða þín næstum þrjár klukkustundir af leiðindum.

Úr kvikmyndinni Project Hail Mary, 2026.
„Vei þeim sem finnst þessi barnalegi Hollywood-húmor ekki fyndinn því þá bíða þín næstum þrjár klukkustundir af leiðindum.“Amazon MGM Studios / Project Hail Mary

Aftur að vísindaskáldskapnum, fyrri hlutinn vekur nefnilega upp framtíðarforvitnina sem heldur áhuganum þrátt fyrir óþreytandi grínstrauminn. Fyrsta manneskjan á eftir að eiga í samskiptum við fyrstu þekktu geimveruna auk þess að manneskjan á eftir að uppgötva hvað gæti mögulega stoppað geimsmitið ógurlega. Takturinn í Project Hail Mary er mjög hraður og í ofanálag er tónlist nær stanslaust í gangi yfir hverri senu. Það er því ákveðinn stiklufílingur í myndinni sem hefði kannski gengið ef það ætti bara að fleyta henni áfram að mest spennandi hluta sögunnar. Það er, fyrstu kynnunum. Þegar þangað er komið tímir myndin þó varla meira en tíu mínútum í að láta Ryland og Rocky kynnast og læra að tala saman á nothæfri ensku. Það að skoða og fara djúpt í pælingar um hvernig tvær verur sem gætu ekki verið ólíkari gætu fundið sameiginlegan grundvöll til þess að eiga í samskiptum liggur greinilega algjörlega utan áhugasviðs myndarinnar.

Hugmyndin um að Ryland sé vísindamaður og myndi ef til vill haga sér þannig virðist einnig vera fjarstæðukennd í myndinni. Sem og hugmyndin um að Rocky gæti verið á einhvern hátt ólíkur manneskjunum í hegðun eða tilfinningastarfsemi. Þeir félagar lenda ekki einu sinni í einu einasta rifrildi. Í staðinn fyrir að velta slíkum spurningum fyrir sér heldur myndin bara uppteknum takti og geysist áfram í ævintýrinu um vanhæfa vísindamanninn og geim-labradorinn hans.

Þessi hraði og áhersla á léttúð gerir það einnig að verkum þau augnablik sem eiga að virka hádramatísk eins og þegar Ryland er í lífshættu ná aldrei neinum hæðum. Það er augljóst hver lokaniðurstaðan verður um leið og atriðið byrjar og öll spenna því týnd og tröllum gefin. Á því ber Ryan Gosling einnig ákveðna ábyrgð þar sem hann virðist ófær um annað en kátínu og í mesta lagi miðlungsmiklar áhyggjur. Það verður ekki tekið af honum að hann er mjög góður gamanleikari en þegar myndin krefur hann um dramað mistekst honum hrapallega.

Þegar vísindaskáldskapurinn hefur lítið sem ekkert með vísindi að gera og dramanu tekst ekki að vera dramatískt hvað stendur þá eftir? Það er ekkert frumlegt í myndinni og þeim sniðugu hugmyndum sem hún rambar óvart á, er fljótt sópað til hliðar til þess að einblína á ósköp fyrirsjáanlegt samband Rylands og Rockys. Leikmyndin er þó flott, hún má eiga það. Grínið er svo auðvitað erfitt að dæma þar sem húmor er svo mismunandi. Lélegustu myndir geta þannig auðveldlega skemmt áhorfendum ef þeim finnst þær fyndnar. Það er þó er erfitt að mæla með Project Hail Mary eingöngu á þeim forsendum sérstaklega eftir að hafa þurft að sitja undir þessu svokallaða gríni í fleiri klukkustundir. Leikstjórarnir Phil Lord og Christopher Miller mættu bara halda sig við barnamyndirnar enda fellur það greinilega betur að hæfileikum þeirra. Eflaust eru einhver börn sem geta skemmt sér konunglega yfir Project Hail Mary en það er varla hægt að bjóða fullorðnu fólki upp á þessa þvælu.

Kolbeinn Rastrick flutti pistilinn í Lestinni á Rás 1. Kolbeinn hefur lokið meistaranámi í kvikmyndafræði við Háskóla Íslands og unnið fyrir kvikmyndahátíðirnar RIFF og Stockfish.

#hail #labradorinn #project #vanhæfi #vísindamaðurinn


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/menning-og-daegurmal/2026-04-18-project-hail-mary-vanhaefi-visindamadurinn-og-geim-labradorinn-hans-472938

📰 Aðrar fréttir

Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Jón Viðar fellir dóm yfir Ódys­seifs­kviðu án þess að sjá hana - Vísir
Frá þessu greinir hann í Facebook-færslu þar sem hann rekur mál sitt nokkuð ítarlega. Í færslu sinni, sem er nokkuð ítarleg, segir Jón Viðar að hann h...
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Bráð veikindi og al­elda bíll við Kambana - Vísir
Þetta staðfestir Einar Sigurjónsson aðalsvarðstjóri hjá lögreglunni á Suðurlandi í samtali við fréttastofu. „Þarna var í rauninni bara bráðaveikindati...
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
📅 25.07.2026 👁️ 0
Þyrlan kölluð út vegna veikinda á Suðurlandi
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á Suðurlandi rétt fyrir klukkan 15 til að sinna sjúkraflugi. Þetta staðfestir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðast...
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
📅 25.07.2026 👁️ 0
Kviknaði í bíl fyrir ofan Kambana
Slökkvilið var kallað út vegna bíls sem stóð í ljósum logum á Hellisheiði á fjórða tímanum í dag. Búið er að slökkva eldinn.Þetta staðfestir Halldór Á...
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
Komst undan á­samt fjöl­skyldunni - Vísir
Þetta segir Áskell Harðarson sem flúði heimilið sem hann dvaldi í ásamt fjölskyldu sinni í úthverfi Bordeaux-borgar vegna gróðurelda sem nálguðust. Al...
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
📅 25.07.2026 👁️ 0
Police investigate donations by Richard Tice company to Reform UK
Britain Means Business, owned by the party’s deputy leader Richard Tice, made two donations of £250,000 in the run-up to the 2024 general election.
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
📅 25.07.2026 👁️ 0
Cairngorm residents say wildfire response 'too slow'
Nethy Bridge residents were evacuated on Friday and a major incident was declared.
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
📅 25.07.2026 👁️ 0
Allt að sex sinnum lengri bið á vellinum
Landamæraeftirlit með farþegum sem koma utan Schengen-svæðisins getur tekið allt að sex sinnum lengri tíma en áður. Viðbótarfjármagn og aukamannskapur...
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Einn látinn eftir að flug­vél endaði á hús­þaki - Vísir
Minnst einn lést þegar lítil flugvél hafnaði á húsþaki heimilis í Ganderkesee í norðurhluta Þýskalands í dag.
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Laganemi ákærður vegna sprengju sem fannst á Írlandi
25 ára laganemi hefur verið ákærður í tengslum við sprengju sem fannst nærri landamærum Norður-Írlands og Írlands á miðvikudag. Maður á fimmtugsaldri ...
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Hjálpaði mág­konu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ - Vísir
Þetta segir skurðhjúkrunarfræðingur sem starfar í Noregi en er nú stödd í Alcorcón á Spáni þar sem systir eiginmanns hennar býr en það er í um tuttugu...
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Skiptir krabbameinsmeðferðinni í fjóra leik­hluta - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ekki ó­sann­gjarnt gagn­vart sjálfri sér heldur börnunum - Vísir
Frá því hún greindist í mars hefur baráttuhugur og elja einkennt nálgun hennar á veikindin. Hún hefur skipt meðferðarferlinu upp í fjóra leikhluta, se...
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sigmundur Ernir skrifar: Þjóðernisöfgahyggja er ákall um afturför
Æði margir afturhaldsseggirnir eru með böggum hildar að afloknu heimsmeistaramótinu í knattspyrnu út af fjölda þeldökkra fótboltasnillinga sem léku li...
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
📅 25.07.2026 👁️ 1
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar
Frægustu fasteignaviðskipti sögunnar Fyr­ir rétt­um 400 ár­um keyptu nið­ur­lensk­ir kaup­menn sér eyju. Þau kaup áttu eft­ir að draga dilk á eft­ir s...
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þriðjungur foreldra kennir meðferðaraðilum um rofin tengsl við börnin
Um þriðjungur foreldra sem hafa misst samband við fullorðin börn sín telur að meðferðaraðili barnsins hafi haft áhrif á ákvörðun þess um að slíta sams...
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ísland þarf að breyta fjarskiptalögum til að „Chat Control 1“ taki gildi
Reglugerð Evrópusambandsins sem heimilar tæknifyrirtækjum að skanna einkaskilaboð í leit að barnaníðsefni hefur verið samþykkt í sameiginlegu EES-nefn...
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fagna „heim­komu“ Baldurs eftir margra vikna fjar­veru - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 0
„Við á­kváðum að snúa bara vörn í sókn“ - Vísir
„Hvatinn að þessu var að sjálfsögðu sá að Baldur hefur ekki siglt hérna yfir Breiðafjörðinn til Brjánslækjar, bara Stykkishólms, í sex vikur vegna þes...
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
📅 25.07.2026 👁️ 1
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi
Stríð Trumps gegn hryðjuverkum öfgavinstrimanna nær alþjóðlegu stigi Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuverk, TrumpLeave a Comment Donald Trump Bandarí...
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins - Vísir
Guðrún Gunnlaugsdóttir hefur starfað sem ljósmóðir og hjúkrunarfræðingur hjá Landspítalanum í áratugi og skrifaði á dögunum skoðanagrein á Vísi þar se...
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
📅 25.07.2026 👁️ 1
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer
Rússland tryggir sér sigur í Úkraínudeilunni – John Mearsheimer Fréttin25. júlí 2026Erlent, ÚkraínustríðiðLeave a Comment John Mearsheimer, sérfræðing...
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu
Ítarleg svissnesk rannsókn leiðir í ljós að Hamas eyddi árum í að byggja upp virkt hryðjuverkanet um alla Evrópu Fréttin25. júlí 2026Erlent, Hryðjuver...
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
📅 25.07.2026 👁️ 1
Kolefnisgjaldið sem drepur allt
Kolefnisgjaldið sem drepur allt Fréttin25. júlí 2026Evrópusambandið, Geir Ágústsson, Innlent, SamgöngurLeave a Comment Geir Ágústsson skrifar: Haft ef...
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Þetta er búið að vera athyglisverður sólarhringur“
„Þetta er búinn að vera athyglisverður sólarhringur. Við vöknuðum í gær í glampandi sól og blíðu, eins og næstum hvern einasta dag síðustu þrjár vikur...
Utanríkisráðuneyti á villigötum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Utanríkisráðuneyti á villigötum
Utanríkisráðuneyti á villigötum Fréttin25. júlí 2026Björn Bjarnason, Evrópusambandið, Innlent, StjórnmálLeave a Comment Björn Bjarnason skrifar: Inngr...
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
📅 25.07.2026 👁️ 1
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands
Bobby Fischer og fyrri ESB-umsókn Íslands Fréttin25. júlí 2026Fjölmiðlar, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment Bobby Fisher heitinn. Páll Vilhjál...
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumarbústað rétt fyrir utan höfuðborgina
Þrír slökkviliðsbílar voru kallaðir út vegna elds í sumarbústað laust eftir klukkan 12 í dag. Bústaðurinn er alelda. Þetta staðfestir Guðmundur Hreins...
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldur í sumar­bú­stað við Suður­lands­veg - Vísir
Þrír slökkviliðsbílar voru sendir á vettvang þar sem er þó nokkur viðbúnaður og unnið að því að ráða niðurlögum eldsins. Þetta staðfestir aðalvarðstjó...
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
📅 25.07.2026 👁️ 1
Andy Burnham to appear on Sunday with Laura Kuenssberg
See inside Andy Burnham's first week in charge, with an exclusive behind the scenes look with Laura Kuenssberg.
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli ver­búð - Vísir
Lísbet Guðmundsdóttir fornleifafræðingur stýrir uppgreftinum og segir að um sé að ræða verstöð sem var í notkun frá elleftu öldinni og fram á þá átján...
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
📅 25.07.2026 👁️ 1
Sveinn Andri Sveinsson: Ólafur Ragnar hefur aldrei verið spámannlega vaxinn
Nei-hópurinn hefur verið háværari en já-hópurinn en fyrir því er góð ástæða. Skilaboð já-hópsins eru einföld og mjög skýr og snýst um að þjóðin veiti ...
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ís­lendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum - Vísir
Þá heyrum við frá lögrelunni um alvarlega líkamsárás sem varð í Reykjavík í nótt þar sem manni var fleygt fram af svölum. Einnig tökum við stöðuna á B...
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vindmyllur á Héraði í rammaáætlun
Áform Orkusölunnar um að reisa tvær vindmyllur við Lagarfossvirkjun á Héraði hafa vakið úlfúð í nærsamfélaginu. Heimastjórn leggst gegn framkvæmdinni ...
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleiri en þeir sem tókust á lentu í á­tökum ung­menna - Vísir
„Það endar með því að verða þarna átök milli einhverra, nokkurra ungmenna,“ segir Heimir Ríkarðsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuð...
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fleeing a wall of flames: Tourists describe France wildfires escape
Families visiting France from the UK and elsewhere have told the BBC how their holidays have become evacuation missions.
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Áttu eitt­hvað van­talað við manninn sem endaði fram af svölunum - Vísir
Þetta segir Heimir Ríkarðsson aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. „Það komu þarna tveir að heimili þessa manns, og töldu s...
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ættum ekki að flytja inn mistök annarra þjóða
Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, óttast að ef erlendri fjárfestingu verði hleypt inn í íslenskan sjáva...
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
📅 25.07.2026 👁️ 1
„Það sem þið gerið mun móta framtíð íslams á Íslandi næstu 300 árin“
Bandaríski íslamski fræðimaðurinn og prédikarinn Yasir Qadhi heimsótti Ísland á dögunum og ávarpaði þar söfnuð múslima. Í ræðunni hvatti hann múslima ...
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
📅 25.07.2026 👁️ 1
Vopnfirðingar vitjuðu minninganna á einstakri ljósmyndasýningu
Það ríkti alveg sérstök stemning, hlaðin gleði og ljúfum minningum, þegar Vopnfirðingar fjölmenntu á ljósmyndasýninguna „Þorpið“ sem var haldin var í ...
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
📅 25.07.2026 👁️ 1
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika
Þurfti að æfa glímu í stað fimleika Guðný Helga Sæ­mundsen seg­ir sveita­líf­ið hafa mót­að sig mest. Þar hafi ein­fald­leiki lífs­ins orð­ið til þess...
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
📅 25.07.2026 👁️ 1
Segir hundaeigendur í vonlausri stöðu á leigumarkaði – „Ég bið fólk um að opna hugann og slaka á fordómunum“
„Ef maður fer inn á Igloo þá koma kannski upp 500 möguleikar en þegar maður hakar við „gæludýr leyfð“ í filter þá eru möguleikarnir kannski bara tveir...
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
📅 25.07.2026 👁️ 1
Brutust inn um glugga og hentu manni fram af svölum
Tveir menn sem voru handteknir fyrir að henda manni fram af svölum á fyrstu hæð í gærkvöld komust inn í íbúð hans í gegnum glugga. Maðurinn hafði neit...
Ari úr­skurðaður í gæslu­varð­hald á Kýpur - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Ari úr­skurðaður í gæslu­varð­hald á Kýpur - Vísir
Þetta kemur fram í svari lögreglunnar á Kýpur við fyrirspurn fréttastofu. Þar kemur fram að evrópsk handtökuskipun hafi verið gefin út á hendur Ara, s...
Rúmenar skjóta í fyrsta sinn niður dróna sem flugu inn í lofthelgi landsins
📅 25.07.2026 👁️ 1
Rúmenar skjóta í fyrsta sinn niður dróna sem flugu inn í lofthelgi landsins
Rúmenar skutu niður dróna sem rauf lofthelgi landsins í dag, annan daginn í röð. Dróninn var skotinn niður af F-16 orrustuþotu. Rannsakendur segja að ...
Tíu bestu veitingastaðirnir hringinn í kringum landið
📅 25.07.2026 👁️ 1
Tíu bestu veitingastaðirnir hringinn í kringum landið
Fjölmargir ferðamenn nota vefinn Tripadvisor á ferðalögum sínum til að finna meðmæli með veitingastöðum, stöðum sem vert er að skoða og upplifunum, í ...
Piddington hótar að „segja sig úr Bretlandi“ vegna hælisleitendabúða
📅 25.07.2026 👁️ 1
Piddington hótar að „segja sig úr Bretlandi“ vegna hælisleitendabúða
Íbúar í Piddington, örlitlu þorpi í Oxfordshire á Englandi, undirbúa táknræna þjóðaratkvæðagreiðslu um sjálfstæði frá Bretlandi. Ástæðan er fyrirhuguð...
Fólki gert að yfir­gefa heimili sín í út­hverfum Bordeaux - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Fólki gert að yfir­gefa heimili sín í út­hverfum Bordeaux - Vísir
Forsætisráðherra Frakklands hefur sagt gróðureldana þá skæðustu sem nokkurn tímann hafa herjað á landið og að ríflega hundrað og fjörutíu þúsund manns...
Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið - Vísir
📅 25.07.2026 👁️ 1
Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið - Vísir
Forsætisráðherra Frakklands hefur sagt gróðureldana þá skæðustu sem nokkurn tímann hafa herjað á landið og að ríflega hundrað og fjörutíu þúsund manns...
Yfir 220 þúsund þurft að flýja vegna eldanna
📅 25.07.2026 👁️ 1
Yfir 220 þúsund þurft að flýja vegna eldanna
Gríðarlegir gróðureldar hafa breiðst út í Frakklandi og á Spáni og samtals hafa yfir 220 þúsund manns þurft að flýja heimili sín.Spánn lýsti yfir neyð...